Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Blaðsíða 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004
Fréttir DV
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 17
I t
AL KAIDA ER GRUNAÐ
UM EFTIRFARANDI:
UR SKJOLUM SEM BRESKA LOGREGLAN GERÐI
UPPTÆK VIÐ HÚSLEIT HJÁ HÓPI MANNA SEM
GRUNUR LÉK Á AÐ TILHEYRÐU AL KAÍDA:
Tviburaturn-
arnir /einu vet-
fangi breyttist
ásýnd hinsvest-
ræna heims þeg-
ar tveimurfar-
þegaflugvélum
var flogið á bygg
ingarnar
Lögreglan á Spáni hefur tvo marókóska
hálfbræður í haldi en þeir eru grunaðir um
að hafa tekið þátt í hryðjuverkunum í Ma-
dríd síðastliðinn fímmtudag þar sem 200
rnanns týndu lífi. Bræðurnir, Jamal
Zougant og Mohammad Shawi, eru taldir í
slagtogi með al Kaída hryðjuverkasamtök-
unum og einnig er talið að þeir hafi tekið
þátt í árásinni á Bandaríkin 11. september
2001.
Nöfn bræðranna munu hafa komið
upp í símtali milli Abdullah A1 Magrebi,
liðsmanns al Kaída, og Barakat Yarkas sem
búsettur er á Spáni. Mennimir tveir ræddu
saman í síma í ágúst 2001, mánuði fyrir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum, og á A1
Magrebi að hafa sagt við Yarkas í símtali:
„Þú verður að hafa samband við Jamal og
bróður hans, Mohammad Shawi, í Tanger.
Ég ætla til Tanger vegna þess að þeir
(bræðurnir) þekkja vel til Said Chedadi."
Chedadi var handtekinn á Spáni í nóv-
ember 2001 vegna rannsóknar á hvort og
hverjir væru liðsmenn al Kaída á Spáni.
Bræðurnir munu vel kunnugir honum.
Zougarn og Shawa hafa rekið farsíma-
verslun í Lavapies-hverfmu í Madríd um
nokkurt skeið. Ástæða þess að þeir sitja nú
í varðhaldi er sú að sími og fyrirframgreitt
símakort fannst í bakpoka ásamt sprengju
fyrir utarí Atocha-brautarstöðina á
fimmtudag. Sprengjan var ein nokkurra
sem lögreglu tókst að gera óvirka. Lögregla
telur fullvíst að síminn og kortið sé úr
verslun bræðranna sem er staðsett í um
200 metra fjarlægð frá brautarstöðinni. Vit-
að er að sprengjurnar voru gerðar virkar
með farsíma.
Bræðurnir hafa hreint sakavottorð á
Spáni erí annar þeirra, Zougam, var hand-
tekinn í Marokkó í maí í fyrra - grunaður
um aðild að sprengjutilræði sem varð 43
að bana. Honum var hins vegar sleppt án
ákæru og hélt hann aftur til Madrídar þar
sem hann hefur starfað í versluninni æ
síðan. Hann mun vera kallaður Engill
dauðans meðal félaga sinna og er þá vísað
til tilræðisins í Casablanca.
Lögreglumenn gerðu húsleit í verslun
bræðranna í fyrradag og á heimilum þeirra.
Ekki hefur fengist uppgefið hvort eitthvað
markvert fannst við þá leit. Auk bræðranna
eru einn Marokkómaður og fjórir Indverjar
í haldi lögreglunnar í Madríd. Leit stendur
að öðrum Marokkómanni, Mohammed
Bena, en liann var ófundinn í gær.
Virðing vottuð Fjölmargir hafa lagt leið sina að brautarstöðinni EL Pozo og vottað hinum látnu virðingu slna. El Pozo er
ein þriggja brautarstööva þar sem sprengjur sprungu á fimmtudagsmorgun.
Farsími tengir bræður við hryðjuverkin
(nafni Allah, hins miskunnsama og örláta
Til allra sigurvegara sem helga sig sannleikanum ...
... og skrifuðu með blóði sínu og sársauka þessar línur...
Uppgjörið sem við köllum eftir gagnvart trúníðingasamfélögunum í vestri þekkir
ekki kappræður Sókratesar, hugsjónir Plató né heldur háttvísi Aristótelesar. En það
þekkir staðhæfingar kúlnaregns, markmið launmorða, sprengja og eyðileggingar
og ráðsnilld hríðskotariffla.
(slömsk stjórnvöld hafa aldrei og munu aldrei ná völdum á friðsaman hátt eða
með nokkurs konar samvinnu. Þau ná völdum eins og þau hafa alltaf gert með ...
penna og byssu ... orðum og kúlum ... tungu og tönnum.
Tveir þeirra sem sitja inni vegna hryðjuverkanna í Madríd taldir tengjast 11. september
Ótrúlega lítið er vitað um hryðjuverkasamtökin al
Kaída þrátt fyrir að samtökin séu án vafa, eftir að hafa
opinberlega lýst yfir ábyrgð á sprengingunum í Ma-
dríd í síðustu viku, þau samtök sem hafa valdið hvað
mestum usla í hinum vestræna heimi síðustu árin.
Mannslífm sem meðlimir samtakanna hafa á sam-
viskunni skipta þúsundum og tjónið sem þeir hafa
valdið er með öllu ómetanlegt. Aðgerðir þeirra hafa
skilið eftir varanlegt ör á þjóðarsál Bandaríkjamanna.
Hvað er al Kaída?
Þetta eru alþjóðleg samtök hryðjuverkamanna sem
hafa það að markmiði að losa þjóðir múslima við öll
vestræn áhrif. Nafnið al Kaída þýðir „bækistöðin", og
eru flestar vestrænar öryggisþjónustur sammála um
að Osama Bin Laden sé höfuðpaur og aðalskipuleggj-
andi samtakanna.
í raun má skipta samtökunum í nokkra hluta: í
innsta kjarna þeirra er um tylft manna sem hafa stað-
ið með Bin Laden síðan á áttunda áratugnum. Gegn-
urn árin hafa æsingamenn frá Afganistan og nálægum
löndum slegist í hópinn en flestir störfuðu þeir á eigin
vegum áður.
Annar hluti er sá sívaxandi fjöldi erlendra aðila
sem slegist hafa í lið með Bin Laden og hafa sumir
e.t.v. aðeins ffemur losaraleg tengsl við hann. Þeir
koma hvaðanæva að en eiga það sameiginlegt að til-
heyra öfgahópum múslima eða aðhyllast kenningar
þeirra. Erfitt hefur reynst fyrir njósnastofnanir vest-
rænna ríkja að rekja tengsl þessa hóps og mannanna í
innsta kjarnanum. Samskiptakerfi þeirra er frumstætt
en flókið og engum hefur enn tekist að fá vitneskju um
hvernig það í raun virkar. Bestu dæmin um það er að
ekki hefur fundist tangur né tetur af Osama Bin Laden
þrátt fyrir mestu leit sem nokkurn tíma hefur verið
sett af stað. í öðru lagi hafa vestrænar leyniþjónustur
heldur enga hugmynd um hvar núverandi bækistöðv-
ar samtakanna eru.
Ágúst 1998
Sprengjuárásir á sendiráð Bandaríkj-
anna í Nairobi,Tansaníu og Kenía
Október 2000
Sprengjuárás á bandaríska orrustuskipið
USS Cole
September 2001
Hryðjuverk á Tvíburaturnunum, Penta-
gon og grönduðu fjórum farþegaflug-
vélum
Október 2002
Sprengjuárás á franskt birgðaflutninga-
skip við strendur Yemen
Apríl 2002
Sprengjuárás á olíuskip ÍTúnis
Október 2002
Sprenging í næturklúbbi á Balí í
Indónesíu
Nóvember 2002
Tilraun til að skjóta niður ísraelska far-
þegavél í Kenía
Maf 2003
Sprengjuárás nálægt vestrænum veit-
ingastað í Marokkó
Maf 2003
Bílsprengjuárásirá íbúðaþyrpingu í Ríad
í Sádi-Arabíu
Febrúar 2004
Sprengjuárásir á þrjár lestir í miðborg
Madrídar
Hvað ber framtíðin í skauti sér??
Ef marka má yfirlýsingar al Kaída hafa Spánverjar
nú á sorglegan hátt sopið seyðið af samstarfi sínu við
Bandaríkjamenn í stríði þeirra gegn hryðjuverkum og
vestrænar leyniþjónustur í Bandaríkjunum, Bretlandi,
Þýskalandi og á ftah'u vara við frekari árásum innan
tíðar. Eru menn nokkuð á einu máli um að hiyðju-
verkaógnin beinist fyrst og ffemst að þeim þjóðum er
fylktu sér um Bandaríkin í stríði þeirra við öxulveldi
hins illa en ísland er eitt þeirra. Sýndi spænska þjóðin
vilja sinn í kosningunum á sunnudaginn og kaus út
þann flokk er einna hæst stóð við hlið George Bush,
Bandaríkjaforseta. Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands á einnig undir högg að sækja vegna sama máls
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra,
svaraði ekki fyrirspurn blaðamanns um möguleg við-
brögð við árásunum í Madríd eða hvort gripið hefur í
verið til einhverra sérstakra aðgerða hér á landi vegna
þeirra.
Ni i
Meðlimir al-
Kaída Bak við lás
og slá iAfganist-
an
■II
■ ■ iIlkT
j. íck
! ! ,
> l - v yp
Orrustuskipið
USS Cole Nokkr-
ir létust þegar
hópur tengdur al
Kaida sprengdi
stórt gat á skips-
skrokkinn
Stífar æfingar
Á þessu kennslu-
myndbandi sam-
takanna er
áhugasömum
kennd meðferð
vopna afýmsu
tagi
Osama Bin
Laden Banda-
ríkjamenn hafa
ekkienn náð að
klófesta þennan
forsprakka al Qa
eda