Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Side 6
6 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004
Fréttir DV
Evrópa
fordæmir
morðið
Leiðtogar ríkja Evrópu-
sambandsins fordæmdu í
gær morðið áAh-
med Yassin, and-
legum leiðtoga
Hamas-samtak-
anna. Leiðtogarnir
telja aftökuna
brjóta í bága við al-
þjóðalög.Leiðtog-
arnir sögðu aftöku
Yassins mikið
áhyggjuefni um leið og þeir
ítrekuðu fordæmingu sína
á hryðjuverkárásum á ísra-
ela. Yfirlýsing Evrópuleið-
toganna kemur degi eftir að
Bandaríkjamenn beittu
neitunarvaldi í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna gegn
ályktun þar sem morðið á
Yassin er fordæmt.
Færri óhöpp
Umferðarátak Hafn-
arijarðarlögreglunnar
virðist ætla að skila ár-
angri ef marka má tölur
úr umferðinni þarsíð-
ustu viku. Samkvæmt
upplýsingum frá lögregl-
unni voru átta umferðar-
óhöpp tilkynnt í vikunni
sem er nokkuð undir
meðallagi.
Börn dóu
Þrjú börn voru meðal
þeirra níu sem féllu í átök-
um milli Banda-
ríkjahers og and-
spyrnumanna í
bænum Falluja í
Irak í gær. Meðal
hinna föllnu var er-
lendur sjónvarps-
tökumaður. Að
minnsta kosti 25
slösuðust í átökun-
um.
Eiga íslensk
yfirvöld að
rannsaka
peningaflutninga
Kára til Panama?
t
Þórður Friðjónsson,
forstjóri Kauphallarinnar.
„Ég hefekki kynnt mér máliö
út í hörgui. Frá
Kauphallarsjónarmiði er
upplýsingaskylda hjá
hlutaðeigandi markaði,
Nasdaq I þessu tilfelli. Efmeint
brot gerðist hins vegar fyrir
skráningu væri sennilega um
samstarfsverkefni
fjármálaeftirlita í viðkomandi
löndum að ræða."
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst alveg full ástæða
til að skoða þetta betur. Þarna
virðist vera um peningaþvætti
að ræða og mér finnst vera
full ástæða til að fylgja þeim
grun eftir með rannsókn."
Margrét Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri
Frjálslyndaflokksins.
Senn líður að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Um síðustu helgi var
íslenska lagið frumflutt og sitt sýndist hverjum. Talað var um að lagið væri stolið
eða hreinlega tær snilld og myndbandið virkilega vel og faglega unnið. Nú hefur
fyrsta spá veðbankanna fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verið birt.
Jónsi, flytjandi lagsins, gefur lítið fyrir spár og segist ekkert mark á þeim taka.
Islandi spáð 12.
sæti í Eunovision
Nú styttist óðum í söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva Eurovision og eru veðbankarnir þegar
farnir að spá í hvaða þjóð sé líklegust til að sigra. Þetta er
í 49. skiptið sem keppnin fer fram og verður hún haldin í
Istanbul í Tyrklandi að þessu sinni um miðjan
maímánuð.
Eins og allir eflaust vita er það
Jón Jósep Snæbjörnsson, betur
þekktur sem Jónsi söngvari sveitar-
innar í svörtum fötum, sem syngur
framlag íslands að þessu sinni, lagið
Heaven.
Tekur ekkert mark á spám
Nú hafa öll lögin sem taka þátt í
keppninni í ár verið flutt
opinberlega og í kjölfarið hafa
veðbankar tekið við sér og opnað
fyrir veðmál tengd keppninni.
Netveðbankinn www.coral.co.uk
var fyrstur til að birta sinn lista og
þar fær Jónsi sigurlíkurnar 1 á móti
16 líkt og nokkrar aðrar þjóðir.
Samkvæmt þeirra spá eru Svíþjóð og
írland líklegustu þjóðirnar til að
sigra en Bretum er spáð þriðja
sætinu. Allar þessar þjóðir hafa
sigrað keppnina oftar en einu sinni
og hafði það eflaust sitt að segja
þegar listinn var settur saman.
íslendingum er aftur á móti spáð 12.
sæti en raunar hafa nokkrar aðrar
þjóðir sömu vinningslíkur þannig að
túlka má spána á þann veg að ísland
lendi einhversstaðar á milli
átta og sextán. „í rauninni
er mér alveg sama þótt
mér sé spáð fyrsta eða
síðasta sætinu enda tek ég
ekkert mark á svona spám. Ég
ætla bara að fara og gera það
sem við höfum æft," segir Jónsi
og bætir við: „Ég fæ mínar þrjár
mínútur á sviðinu eins og allir
aðrir. Við spyrjum svo að
leikslokum."
Gísli Marteinn og
Logi Bergmann
kynna
Keppnin fer fram
með nokkuð breyttu
sniði þetta árið en
þann 12. maí mun
fara fram undan
úrslitakeppni þar
sem nokkrar
þjóðir munu
bítast um þau
10 sæti sem
laus eru á
úrslitakvöldið. ísland þarf þó ekki að
hafa áhyggjur af því að komast
ekki á sjálft úrslitakvöldið því
góður árangur Birgittu
Haukdal í fyrra tryggði sæti
okkar þar. Að venju mun
sjónvarpið fjalla ítarlega
" um keppnina og hafa þeir
Gísli Marteinn og Logi
Bergmann þegar verið
fengnir til að kynna
herlegheitin. Þá hefur
vefurinn
www.eurovision.is verið
opnaður en þar er allar
upplýsingar um
keppnina að finna.
Einnig er hægt að ná í
öll keppnislögin í ár
á síðunni auk þess
sem ítarleg dagbók
sem þeir Gísli
Marteinn og Logi
' munu sjá um
verða á vefnum
þegar
Fyrsta
Eurovisionspáin
Veðbankinn Coral hefur birt spá
fyrir Eurovisionkeppnina og
samkvæmt henni verða Islendingar
í 12. sæti. Alls munu 24 þjóðir taka
þátt í keppninni í ár og er fsland ein
þeirra 14 þjóða sem hafa þegar
tryggt sér rétt til að keppa á
úrslitakvöldinu. Hinar þjóðirnar
þurfa að komast í gegnum
undanúrslit sem fara fram 12. maí
en úrslitin verða svo þremur
dögum síðar. Listi Coral-
veðbankans nær þó yfir allar
þjóðirnar 36 sem taka þátt í ár.
Himnaríki Jónsa
Jónsi mun flytja fram
lag Islands I Eurovision í
ár og hefur honum verið
' spáð 12.sæti afCoral-veð-
bankanum i Bretlandi. Jónsi
gefur litið fyrir spána og segist
ætla að nýta sinn tíma á sviðinu
sem best og spyrja svo að
leikslokum.
nær
dregur.
agust@dv.is
l.lrland
2. Svíþjóð
3. Bretland
4. Finnland
5. Grikkland
6. Danmörk
7. Rússiand
8. Hvíta-Rússland
9. Belgía
10. Bosnia
1 l.Kýpur
12. ísland
13. Malta
14. Serbia
ISiSpánn
lð.Tyrkland
17. Þýskaiand
18. Holland
19.Sviss
20. Frakkland
21. Utháen
22. Noregur
23. Pólland
24. Portúgal
25. Rúmenía
26. Slóvenia
27. Úkraina
28. Israel
29. Makedónía
30. Króatia
31. Lettland
32. Albania
33. Andorra
34. Austurriki
35. Eistland
36. Mónakó
Legsteinafyrirtæki víkur fyrir háhýsabyggð
Flýja með legsteinana úr Lundi
Legsteinasmiðir Brjánn Guðjónsson og
Þórir Barðdal þurftu að flytja legsteina-
smiðju sina úr Lundi i Kópavoginum vegna
fyrirhugaðra framkvæmda við háhýsi.
Fyrirhuguð háhýsabyggð í Lundi
veldur því að legsteinasmiðir hafa
flutt hafurtask sitt af sveitabænum f
Lundi inn í þéttbýlið við Kársnes-
braut í Kópavoginum. „Það á að fara
að byggja háhýsi þarna í kjölfarið á
því vildu þeir ekki framlengja leigu-
samning við okkur og þá þurftum
við að flýja," segir Brjánn Guðjóns-
son, sölu- og markaðsstjóri Sól-
steina ehf.
Um 1.200 legsteinar eru fram-
leiddir á íslandi á ári hverju. Meðal-
legsteinn kostar um 100 þúsund
krónur. Flestir eru legsteinarnir úr
graníti og er það oftast flutt inn frá
fjarlægum löndum. „Við erum með
menn á Spáni og Italíu sem kaupa
granít frá Indlandi og jafnvel Kína.
Það er líka hægt að nota íslenskt
berg í legsteinana, gabbró eða
stuðlaberg úr blágrýti. Við íslend-
ingar værum heppnir ef við ættum
granít," segir Brjánn.
Legsteinar úr graníti vega að
meðaltali um 200 kílógrömm, en
þeir íslensku eru að jafnaði helmingi
þyngri. Legsteinavertíðin er við það
að heíjast hér á landi. „Það er ákveð-
in vertíð sem er á sumrin hjá okkur
og byrjar í lok maí og er fram á
haust. Fólk vill sinna hinum liðnu á
fallegum sumardögum," segir
Brjánn. jontrausti@dv.is
Tomas Malakauskas telur málflutning
Jónasar Inga ótrúverðugan
Tomas telur lífi sínu
vera ógnað
„Ég er mjög þreyttur - þetta hafa
verið erflðir dagar," sagði Tomas
Malakauskas, einn af sakborningun-
um í Neskaupstaðarmálinu. Á mið-
vikudaginn úrskurðaði hæstiréttur
að ekki væri ástæða til að framlengja
gæsuvarðhald yfir mönnunum
þremur sem sátu inni fyrir að losa
sig við líkið af Vaidasi Jucevicius.
Tomas er sá eini þremenning-
anna sem ekki hefur tjáð sig við fjöl-
miðla. Hann hefur einnig hulið
andlitið á sér meðan Grétar og
Jónas hafa óhræddir sýnt sig
þjóðinni.
„Ég hef ekki talað við
neinn og vil ekki sýna á
mér andlitið," segir
Tomas í viðtali við
DV í gær. „Ég er
bara einhver gaur
sem vill lifa sínu lífi.
Þetta gerðist allt
saman og ég verð
að mæta örlögum
mínum; hugsanlega
mun ég láta lífið út af þessu."
í játningu Grétars komu fram
tengsl þeirra félaga við rússnesk/lit-
hái'ska maffu og gerði Grétar þá
kröfu að gegn játningunni fengju
hann og kærastan vernd.
Tomas hefur ákveðnar skoðanir á
því hvernig félagar hans hafa komið
fram í fjölmiðlum. Jónas hefur til
dæmis haldið því fram að hann hafi
ekki vitað af líkinu í bílnum og stað-
hæfir að hann hafi ekki haft
^hugmynd um tilgang ferðar-
^innar til Neskaupstaðar.
„Jónas virðist viti sínu
fjær," segir Tomas en
bætir við: „Ég þekki
hann samt ekki vel."
kVaröandi yfirlýs-
Jngar Jónasar í
fjölmiðlum seg-
ist Tomas ein-
faldlega ekki
afa áhuga á
fréttunum.
simon@dv.is