Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Side 11
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 77
Varnir gegn
hryðjuverkum
Leiðtogar
Evrópusambandsríkjanna
ætla að berjast
sameiginlega gegn
hryðjuverkum í álfunni og
var samkomulag þess efnis
undirritað í Brussel í
fyrradag. Þar
ákváðu
leiðtogarnir
hvernig aðgerðum
í baráttunni við
hryðjuverk yrði
háttað og var Gijs
de Vries, frá
Hollandi, skipaður
í nýtt embætti yfirmanns
hryðjuverkavarna ESB.
Reyktí
regnkápum
Reykingar, á írlandi,
verða með öllu bannaðar á
opinberum stöðum,
veitingahúsum og krám frá
og með næsta mánudegi.
Til þess að mæta þessu
hafa margir kráareigendur
fjárfest í borðum
og stólum að
undanförnu sem
þeir hyggjast setja
upp fyrir utan
krárnar.
Gashitatæki og
tjaldhimnar fylgja
gjaman með í
kaupunum og þá
kvað sala á regnfatnaði
hafa aukist enda oft
votviðrasamt á þessum
slóðum. Kráareigendur
gera sem sagt sitt besta til
að þjóna reykingamönnum
áfram.
Lögregluyfirvöld íslands, Litháen og Interpol hafa rannsakað meinta starfsemi
„rússnesk-litháískrar“ mafiu hér á landi og gera enn.
litháíska mafían er eon
Þrátt fyrir töluverða eftirgrennslan hefur lögregluyfirvöldum á
íslandi og í Litháen, með aðstoð Interpol, ekki tekist að renna
stoðum undir þá fullyrðihgu Grétars Sigurðarsonar, sak-
bornings í líkfundarmálinu, að hér á landi starfi „rússnesk-
litháísk mafía“, sem hiki ekki við að beita limlestingum og
morðum. Það staðfestir Arnar Jensson aðstoðaryfir-
lögregluþjönn hjá Ríkislögreglustjóra, en tekur fram að þessari
sérstöku athugun sé ekki lokið.
fíkniefnainnflutnings og vegna
veikinda Vaidasar. Eftir að Vaidas
kom til landsins hringdi Tomas í
nokkur símanúmer í Litháen og í
nokkra Litháa hér á landi. Auk þess
var hringt í alþjóðlegt símanúmer
sem Tomas bar að sér hafí verið sagt
að hann gæti hringt í til að finna út
hvort síminn hans
væri
„Það hefur verið kannað hvort
fótur sé fyrir þessu og sú könnun
stendur enn yfir," segir Arnar, en
hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig
nánar um málið.
Þorp Litháa á íslandi
Auk rannsóknar hérlendra
yfirvalda hafa lögregluyfirvöld í
Litháen haft uppi eftirgrennslanir
um meint tengsl skipulagðrar
glæpastarfsemi þar í landi við
Island. Gagnagrunnur Interpol er
notaður og almennt er fylgst með
slíkri starfsemi af vinnuhópi á
vegum Baltic Sea Task Force, sem
ísland tekur þátt í með baltnesku
löndunum, Norðurlöndunum,
Póllandi og Rússlandi.
Með hundruði Litháa og Rússa
stadda hér á landi er Ijóst að lýsingar
Grétars er ekki hægt að afgreiða sem
tilefnislausa óra, þótt sak-
borningurinn Tomas Malakauskas
harðneiti slíkum mafíutengslum.
Það hefur valdið ugg í þjóðfélaginu
að Grétar fullyrðir að slík mafía starfl
hér og þá ekki síður að af henni hafi
stafað sú hætta fyrir Grétar að menn
á vegum slíkrar mafíu myndu sjá til
þess að hann eða kærasta hans yrðu
„limlest eða tekin af lífi" ef hann
sýndi lögreglunni samvinnu með
upplýsingar um afdrif Vaidasar
Jucevicius. Og Litháar eru margir á
íslandi; tæplega 400 Litháar fengu
dvalarleyfi á Islandi aðeins árið 2002
og voru eingöngu Pólverjar og
Filippseyingar fjölmennari með slík
leyfi. Á sama tíma fengu 153
einstaklingar frá Rússlandi dvalar-
leyfi. Auk þess eru á þjóðskrá
tæplega 100 Litháar með íslenska
kennitölu sem hafa dvalið hér á
landi en eru horfnir til Litháens á ný.
í árslok 2003 voru skráðir hér á landi
395 litháískir ríkisborgarar, en
stórfjölgun þeirra hófst á árunum
1999 og 2000. Á aðeins 4 árum hefur
Litháum fjölgað úr 66 í 395.
Forseti Litháen mafíutengdur
Ljóst er að sakborningurinn
Tomas Malakauskas var
stöðugum samskiptum
við aðila í Litháen
vegna
hleraður. Þess utan hringdi Tomas
mjög oft í Kestas Eidintas í Litháen,
en hann hefur áður dvalið á íslandi
og hafði, fram að máli þessu að
minnsta kosti, ætlað sér til Islands á
ný. Þess utan hringdi Tomas í
nokkur símanúmer í Litháen sem
hann kannaðist ekki við hver ætti.
Talsmenn lögregluyfirvalda í
Litháen vilja engar upplýsingar
veita, en þess má geta að sjálfur
forseti Litháen, Rolandas
Paksas, er undir rannsókn
þessa dagana fyrir meint
ólögleg tengsl og samskipti
við rússnesku mafíuna og
á hann stórlega á hættu að
missa embætti sitt. Þegar
er fallinn dómur um að
hann hafi tryggt
rússneskum viðskipta-
manni litháískt ríkisfang
með ólöglegum hætti.
fridrik&dv.is
ArnarJensson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
„Það hefur verið kannað hvort
fótur sé fyrir þessu ogsú könnun
stendur enn yfir,“ segir Arnar, en
hann viidi að öðru leyti ekki
sig nánar um
málið.
Ferð fyrir 2 til London eða
Kaupmannahafnar
Á hverjum föstudegi til páska
verður dregið úr öllum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.
, Vinningshafar verða kynntir í
Askriftarsíminn er 550 5000 helgarblaði daginn eftir útdrátt.
Með DV fylgist þú betur með
þjóðmálaumræðunni hverju
sinni. Helgarblaðið fylgist með
þeim einstaklingum sem skara
fram úr. Helgarviðtalið,
krossgátan, sérstæð sakamál og
margt fleira. DV tekur á málum
af harðfylgi og áræðni. DV veitir
stjórnvöldum hverju sinni
kröftugt aðhald. Á DV duga
engin vettlingatök.