Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 Fréttir DV Heiðveig Þráinsdóttir lýsir aðdraganda handtöku Grétars Sigurðarsonar, sambýlismanns hennar, eftir að iik Vaidasar Jucevicius fannst í höfninni á Neskaupstað. Hún segir frá þjáningunni á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi. Heiðveig fékk að hitta Grétar hjá ríkisiögreglustjóra daginn sem hann játaði og var úthlutað lögregluvernd vegna litháísku mafíunnar. Hún vill fyrirgefa sambýlismanni sínum: Systurnar Heidveig ólst upp hjá módur sinni og 15 árum , eldri systur, Klöru J Egilson. Þær eru I miklor vinkonur. 1 Handtaka Grétars kom sem þruma úr heiðskíru lofti. Þótt dagamir á undan hafi verið hlaðnir spennu og hann hafi verið uppstökkur og ólíkur sjálfum sér þá var ekki minnsti grunur í huga mínum um það sem átti eftir að dynja yfir,“ segir Heiðveig Þráinsdóttir, 18 ára módel og hárgreiðslunemi, um það þegar sambýlismaður hennar, Grétar Sigurðarson, var tekinn fastur og hnepptur í gæsluvarðhald fyrir rúmum fimm vikum vegna meintrar aðildar að líkmálinu í Neskaupstað. Heiðveig féllst á að segja DV söguna frá þeim tíma er Vaidas Jucevicius kom til fslands með eiturlyf innvortis. Hún segir að líf sitt hafi á einu andartaki breyst frá því að vera ósköp venjulegt þar sem hver dagur var í föstum skorðum í það að verða á köflum martröð líkast. „Ég hefði aldrei haft hugmyndaílug til að ímynda mér það sem átti eftir að gerast." Áhyggjulaus æska Heiðveig er dóttir Rósu Ingólfsdóttur, þekktustu sjónvarpsþulu landsins. Heiðveig á góðar minningar frá uppvexti sínum. Klara er eldri systir hennar, 15 árum eldri, og Heiðveig segir að það hafi verið þroskandi að alast upp með sér eldra fólki „Ég lifði áhyggjulausa æsku. Á meðan mamma starfaði sem sjónvarpsþula fór ég oft með í sjónvarpið og lék mér á meðan hún kynnti dagskrána með sínu lagi. Klara systir mín var líka alltaf til staðar til að passa mig. Stundum þegar við Klara vorum heima og mamma birtist á skjánum þá kallaði ég til hennar. Allir vissu hver Rósa Ingólfs er og stundum þótti mér nóg um athyglina vegna uppátækja hennar-í sjónvarpinu. stundum í dyrunum. Kunningsskapur okkar Grétars þróaðist í það að við urðum par fyrir tveimur árum þegar ég var 16 ára. Við fórum að búa saman 25. apríl 2002 þegar ég flutti til hans. Aldur er afstæður og í okkar tilviki hefur aldurs- munurinn aldrei skipt neinu máli. Hann er einhver blíðasti maður sem ég hef kynnst og við vorum hamingjusöm saman." Heiðveig segir að allt hafi leikið í lyndi hjá þeim Grétari og dagarnir verið í föstum skorðum. Hún stundaði vinnu sína á hárgreiðslustofunni Hárgallerí auk þess að fá verkefni sem módel þar sem hún lék meðal annars í auglýsingum í Bláa lóninu og víðar. Grétar var önnum kafinn við dyravarðarþjónustu sína og var einnig að undirbúa að flytja inn sumarhús frá Litháen í samstarfi við félaga sína Jónas Inga Ragnarsson og Tomas Malakauskas, sem Grétar kynntist haustið 2003. Heiðveig stefnir á að taka sveinspróf í hárgreiðslu árið 2006 en samhliða náminu ædar hún að byggja upp fyrirsætuferil sinn. „Draumur minn er sá að verða þekkt fyrir- sæta. Ég skammast mín ekkert fyrir að lýsa því að ég hef mikla athyglisþörf og það kitlar mig þegar ég skynja aðdáun vegna útlits míns. Ég hef alltaf gætt þess að vera sem fullkomnust í útliti. Þar hef ég teldð móður mína til fyrirmyndar en hún kann svo sannarlega að halda sér til og bera sig eins og sönn hefðarkona. Mér er sagt að hún hafi þetta frá BOöru ömmu. En það er gjaman vitnað til þess í fjölskyldunni að fyrsta hefðarkonan hafi verið Guðmunda Guðmundsdóttir, iangamma mín í móðurætt, sem lagði mikla rækt við útlit sitt. Hún mun meðal annars hafa gætt þess að spreyja ilmvatni á ökklana og í hnésbæturnar. Stundum er sagt að hún marki upphaf kynþokkans í okkar ætt. En ég geng ekki svo langt og set ekki á mig Rósa og Heiðveig Stundum lenti Heiðveig islagsmálum vegna brandara mömmu sinnar ísjónvarpinu. Þessi mynd var tekin afmæðgunum árið 1991. dauðastríð sitt og Grétar reyndi í örvæntingu að finna handa honum læknishjálp skýrist ýmislegt. Meðal annars sagði Grétar henni að hann lægi á sjúkrahúsi en sagði óþarft að hún kæmi í heimsókn til sín. „Grétar hafði hengt upp veggljós í stofunni hjá okkur eina nóttina. Þegar hann kom ekki heim útskýrði hann það þannig að hann hefði jHann skalfallur og sagði dapur að hann vissi það og bað mig fyrirgefningar. Þarna sá ég Grétar gráta í fyrsta sinn. Stundum þegar ég horfði á hana kynna og hún byrjaði að fíflast þá fór um mig því ég vissi að mér yrði strítt í skólanum. „Hættu þessu mamma,“ sagði ég stundum við sjónvarpstækið. En ég svaraði þó alltaf fullum hálsi þegar einhver krakkinn gerði athugasemd við það sem mamma hafði sagt eða gert í miðri kynningu á næsta dagskrárlið. Stundum lenti ég í slagsmálum út af því sem mamma sagði í sjónvarpinu." Skodinn valt Hún segist muna mömmu sína sem úrræða- góða og ákveðna konu sem ekkert hafi getað slegið út af laginu. „Eitt sinn vorum við á Skodanum hennar á leiðinni út á land þar sem hún var að skemmta. Ég lá sofandi í aftursætinu þegar mamma missti stjórn á bflnurn og við lentum út af veginum og bfllinn valt. Ég hrökk upp skelfingu lostin en mamma var á augabragði búin að losa mig úr beltinu og dró mig út úr bflnum og fór með mig upp á veg þar sem hún húkkaði far fyrir okkur svo hún næði í tíma á skemmtunina. Við fengum far og hún lauk því sem hún ætlaði sér.“ Hún segist hafa farið að sækja skemmtistaði 14 ára. Vegna þess hve bráðþroska hún var hafi reynst auðvelt að komast inn á staðina. Svo var ekki verra að hún þekkti gjarnan dyraverðina en þeirra á meðal var Grétar Sigurðarson, sem rak öryggisþjónustuna Herra, og annaðist dyravarð- arþjónustu fyrir nokkra skemmtistaði og tón- leikahald. „Ég var óstýrilátur unglingur og mamma og Klara höfðu eðlilega áhyggjur af mér. Ég fór oft á veitingahúsið Thomsen þar sem Grétar var ilmvatn neðan mittis," segir Heiðveig og hlær. Fyrir rúmum fimm vikum voru verkefnin í traustri tilveru Heilveigar næg og ekkert benti til þess sem beið handan við hornið. En klukkan tifaði og lfldúndarmálið í Neskaupstað nálgaðist. Litháinn Vaidas Jucevicius var um það bil að verða miðpunktur í einu frægasta sakamáli á íslandi. Grétar uppstökkur „Ég hafði einhverja ónotatilfinningu í magan- um dagana í kringum 6. febrúar sem seinna kom á daginn að var þegar Vaidas dó. Grétar var uppstökkur og stressaður, svaf mjög lítið, og var stöðugt á varðbergi. Þetta var ólflct honum því hann er að öllu jöfnu rólyndismaður. Ég hugsaði með mér hvað gæti verið að en reyndi síðan að trúa því að þetta væri bara ímyndun mín." Þegar fréttir bárust af því að lík Vaidasar hefði fundist í höfninni í Neskaupstað krossbrá Heiðveigu. Staðurinn stóð þeim nærri hjarta enda Grétar alinn upp þar og þau höfðu nokkrum sinnum farið saman í heimsókn þangað. „Grétar sagði mér að það væri hræðilegt að lík hefði fundist í höfninni. En hann vildi sem minnst um málið tala. Mér fannst það skrýtið af því að atvikið gerðist í bænum hans. Hann virtist vera taugaveiklaður en ég vissi þá ekki af hverju enda var þá ekki komið á daginn að hann ætti í þessu neinn þátt.“ Raflost Grétars Heiðveig segir að þegar hún hugsi til baka til þeirra tíma þegar Vaidas var á Islandi og háði fengið raflost og verið lagður inn á spítala. Þetta var um það bil sem Vaidas dó og hann, Tomas og Jónas Ingi voru í örvæntingu að leita leiða til að koma lfldnu fyrir. Ég spurði hvort ég mætti ekki heimsækja hann á spítalann en hann eyddi því. Þessa daga kom hann stundum heim og sagðist þá vera í bæjarleyfi. Mér fannst þetta skrýtið og spurði af hverju hann þyrfti að sofa á spítalanum. Hann sagði að læknarnir vildu fylgjast með ástandi hans eftir raflostið á meðan hann svæfi. Enda kom seinna á daginn að hann fór aldrei á spítala en hafði þess í stað verið meira og minna á heimili Tomasar við Furugrund að stumra yfir Vaidasi deyjandi og þess í milli dvalið á hóteli og brugðist trausti mínu.“ OV sagði frá lífverði Daginn eftir að Vaidas lést, laugardaginn 7. febrúar, sagði Grétar Heiðveigu að hann væri laus af sjúkrahúsinu, ætlaði að fara austur á Neskaupstað og dvelja þar hjá móður sinni sér til heilsubótar eftir raflostið. „Hann kom heim frá Neskaupstað á valentín- usardaginn og færði mér blómvönd. Hann bókstaflega geislaði af ánægju og leit mjög vel út. Mér létti enda vonaði ég að nú væri allt komið í lag. En svo reið áfallið yfir þegar ég skrapp í sjoppu daginn eftir og sá í DV að lífvörður væri grunaður um aðild að málinu. Ég brotnaði niður og fór að gráta. Þá fór púsluspilið að raðast saman í huga mér og mér fannst málið liggja ljóst fyrir. Ég hringdi í Grétar sem var fjúkandi reiður og sagði að einhver væri að reyna að klína á sig morði. En þarna vissi ég að eitthvað mikið væri að þótt ég vildi ekki trúa því í fyrstu. Ég var í vinnunni og eftir að ég las blaðið kom maður og bað um klippingu. Ég klippti hann grátandi og hugsaði með mér: „Aumingja maðurinn að lenda undir skærunum hjá mér,“ e klippingin tókst vel. Þrátt fyrir efa- semdirnar reyndi ég að trúa því að Grétar væri saklaus en þetta leit hörmulega út. Það læddist smám saman að mér sá grunur að mað- urinn minn gæti hugsanlega átt aðild að máli Vaidasar heitins." Grétar handtekinn Þann 20. febrúar var Grétar handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald. Guðmundur St. Ragnarsson, þáverandi lög- maður hans, hringdi í Heiðveigu og færði henni tíðindin varfærnislega. Hún var að setja djúpnæringu í hár konu og gat ekki lokið verkinu en fékk starfsfélaga sinn til að taka við. „Mér sortnaði fyrir augum við þessi tíðindi. Ég var á barmi taugaáfalls þótt ég næði að halda andlitinu. Vinnuveitandi minn hefur sýnt mér skilning í öllu þessu máli og hún sagði mér að fara heim. Móðir Grétars og fósturfaðir voru þá komin til Reykjavíkur og ég fór til þeirra. Við sátum þögul saman í nokkrar klukkustundir og enginn vissi sitt rjúkandi ráð. Seinna þennan dag fékk ég símtal frá lögreglunni og var beðin að mæta í yfirheyrslu. Lögreglan sýndi mér þá tillitssemi að sækja mig á ómerktum bfl. Ég var spurð í þaula og menn höfðu mestan áhuga á 2. febrúar en ég vissi ekkert um það hvað hefði gerst. Lögreglan spurði út í raflostið og vildi vita allt um ferðir hans.“ Dagana á eftir gisti Heiðveig hjá Klöru systur sinni sem reyndi árangurslaust að fá handa henni áfallahjálp vegna þess hve andleg heilsa hennar var slæm. Meðal annars hafði Klara samband við prest í Grafarvogi sem neitaði kurteislega að hjálpa henni og bar við önnum. Á endanum voru það starfskonur Kvennaathvarfs- ins sem gáfu ráð til að mæta áfallinu. Næstu daga fékk Heiðveig engar fréttir af Grétari aðrar en stuttar kveðjur í gegnum lögfræðing hans, Ólaf Ragnarsson. Hún segir að það hafi verið grátbroslegt þegar hann hringdi og sagði virðu- lega að hann ætti að bera henni kveðju. „Ég elska þig Heiðveig," hafði lögfræðingurinn vandræða- legur eftir Grétari. . Einn daginn greip lögreglan til húsleitar á heimili Grétars og Heiðveigar. Hún segist hafa tekið á móti þeim kurteislega þegar þeir birtust nokkrir með dómsúrskurð. „Ég sagði þeim bara að fara úr skónum." I'búðin var þaulskoðuð en með lögreglunni í för var ffkniefnahundur. Heiðveig segir að það hafi næstum því verið fyndið þegar hundurinn kom inn og hafði meiri áhuga á að leika við kettlinginn hennar en að sinna því sem honum var ætlað. „Ég varð að taka kettlinginn úr umferð til að hundurinn væri ekki óvirkur. En lögreglan fann auðvitað engin fflcniefni. Grétar er AA-maður og hefur hvorki notað áfengi né vímuefni í sex ár.“ ing og heimsókn Heiðveig vissi ekkert um stöðu máls Grétars fyrr en laugardaginn 28. febrúar þegar hún las hluta af játningu hans í Morgunblaðinu. Daginn áður hafði Amar Jensson yfir- lögregluþjónn, sem stjórnaði rannsókninni, hringt í hana óvænt og boðið henni að hitta Grétar. „Þetta var skömmu eftir hádegi á föstudeginum og Amar spurði hvort ég gæti Grétar Sigurðarson Sagðisthafa fengið raflost og vera á spitaia þegar hann var að slumra yfir Vaidasi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.