Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Qupperneq 15
DV Fréttir LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 75 komið innan klukkustundar. Hann sagði að ég mætti hitta Grétar gegn því að tala ekkert um málið. Ég játti því og var mætt á tilsettum tíma til ríkislögreglustjóra." Heiðveig segir að í huga hennar hafi tekist á kvíði og léttir þegar henni var vísað inn í yfirheyrsluherbergið. „Grétar stóð með krosslagðar hendur þegar ég kom í dyrnar. Það var drungi í andliti hans og það var eins og allar heimsins byrðar hvfldu á öxlum hans. Þá vissi ég ekki að hann var nýbúinn að játa. Hann horfði á mig og ég gekk hikandi til hans. Við féllumst í faðma og hann sagði við mig: „Engillinn minn, þetta verður allt í lagi. Þú verður að vera sterk. Við fengum ekki að vera ein og Arnar og annar lögreglumaður sátu yfir okkur. Ég spurði Grétar hvað hann hefði eiginlega verið að hugsa. Hann, svona heilsteyptur maður, væri að eyðileggja sitt líf og gera mitt líf að hreinu helvíti. Hann skalf allur og sagði dapur að hann vissi það og bað mig fyrirgefningar. Þama sá ég Grétar gráta í fyrsta sinn". Eftir nokkra stund sagði Arnar að Grétar hefði beðið um að ég fengi lögregluvernd. Ég var undrandi og sagðist ekki skilja að neinn vildi mér illt. Arnar sagði þá að þarna úti væm hættulegir menn sem vildu okkur Grétari illt. Þar var hann að vísa til rússnesk/litháískrar mafi'u sem Grétar hafði í játningu sinni lýst. Amar sagði að málið væri alvarlegt og annað hvort yrði ég að fara austur á Neskaupstað með leynd eða fá lögrégluvernd í Reykjavflc allan sólarhringinn. „Eg vildi ekki brjóta upp mitt daglega líf og valdi Reykjavík. Arnar sagði mér þá að þeir yrðu þar eftir innan seilingar en vildu þó ekki láta mig finna of mikið fyrir sér." Þegar samverustundinni í yfirheyrsluherberg- inu lauk fóm lögreglumennirnir með Grétar og Heiöveigu í bflageymsluna þar sem þeim var leyft að reykja. Heiðveig segir að alvara málsins hafi tekið á sig mynd þegar handjámin vom sett á Grétar. „Smellurinn, þegar handjámin læstust um úlnliði Grétars, opnaði augu mín endanlega fyrir því hvað var að gerast í h'fi okkar. Grétar skammaðist sín þegar búið var að setja á hann handjámin og hann togaði ermarnar yfir járnin til að leyna þeim. Hann er fangi, var fýrsta hugsun mín." Áður en Heiðveig kvaddi Grétar fékk hún farsímanúmer lögreglumanna sem hún átti að hringja í ef eitthvað bæri út af. Til vara átti hún að hringja í 112 ef veist yrði að henni. „Þrátt fyrir að því hefði verið lýst að ég væri í hættu var ég ekki hrædd. En þó varð eitt atvik þegar ég varð dálítið óttaslegin. Ég var ein heima þegar dyrasíminn hringdi óvænt. Mér brá og ég hugsaði með mér hver þetta gæti verið. Þegar ég tók upp dyrasímann svaraði enginn en ég heyrði hurðaskell. Ég hljóp út að glugga og sá að maður skaust inn í bflaleigubfl merktan ALP og ók í burtu. Ég tók niður númerið og hringdi síðan í lögreglu- mann sem annaðist vernd mína. Hann sagði seinna að þeir gætu fullvissað mig um að þetta yrði ekki vandamál." Endurfundir Fimm vikum eftir að Grétar var handtekinn heyrði hún í fréttunum að hæstiréttur hefði numið gæsluvarðhaldsúrskurðinn úr gildi og hann væri laus úr haldi. „Ég var að keyra og mér brá svo að ég stöðvaði bflinn í miðri umferðinni. Grétar var að koma heim og ég kveið því hvað endurfundir okkar myndu hafa í för með sér. Á þeirri stundu ákvað ég að reyna að fyrirgefa honum það sem gerst hafði á undanförnum vikum og gefa sambandi okkar tækifæri. Mér var ekki hlátur í huga þegar hugsaði til þess að líf mitt væri orðið eins og í lélegri glæpamynd. En óneitanlega hafði atburðarásin verið frumleg. Ég var algjör auka- persóna í þessum harmleik en samt lenti þetta á lífi mínu með þeim ofurþunga að tilveran snerist gjörsamlega á hvolf. Um tíma var ég stopp en svo ók ég af stað heimleiðis þar sem við Grétar myndum hittast eftir stutta stund. Ég sá út um gluggann þegar lögreglubfllinn stöðvaði fyrir utan til að skila manninum mínum aftur. Hugur minn var í uppnámi þegar ég opnaði og Grétar stóð á stigapallinum. Hann var beygður maður. Ég breiddi út faðminn pg tók utan um hann ákveðin í að leggja mitt af mörkum til að byggja upp samband okkar að Það var eins og Grétar væri feiminn við mig og greinilegt var að samviskubitið nagaði hann. Ég hafði kveikt á kertum í tilefni heimkomu hans og við sátum saman tvö og töluðum fram á nótt. Við fætur okkar skoppaði ketdingurinn sem hafði heillað ffkniefnahundinn. Framtíðin Heiðyeig segist engu spá um framtíð þeirra Grétars saman. Tím- inn einn geti leitt það í ljós hvort sárin vegna líkfundarmálsins og þess trúnaðar- brests sem varð mifli þeirra eigi eftir að gróa. „Ég fyrirgef Grétari en nú tek ég bara einn dag í senn og við sjáum hvað gerist." rt@dv.is fSmellurinn, þegar var að gerast í lífí okkar.' nyju Heiðveig Þráinsdóttir Sambýlismaður hennar lenti i fangelsi vegna lifundarmálsins. Hún dróst inn i atburðarásina og líður eins og aukapersónu í lélegri glæpamynd. DV-MYNDTEITUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.