Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Qupperneq 32
32 LAUCARDAGUR 27. MARS 2004
Sport DV
■A
r
l
.?••• í SJÓNVARPINU
Birmingham-Leeds
Það er búið að bjarga Leeds
United frá gjaldþroti og Mark
Viduka segist elska félagið.
Kraftaverkin gerast greinilega
enn á Elland Road. Nú vantar
bara að Alan Smith gangi í
kirkjukórinn og segist vera
frelsaður. Lau. Sýn 2 kl. 12.30
Ég vildi vera
Charlie Cook
Lífið er ekki bara handbolti hjá
landsliðsþjálfaranum Guðmundi
LIÐIÐ MITT
Guðmundssyni. Hann er mikill
fþróttaáhugamaður yfir höfuð og
enski boltinn er þar ofarfega á lista.
„Ég held með Chelsea og hef
haldið með þeim síðan 1969," sagði
Guðmundur. „Þeir voru mjög góðir á
þeim tíma og ekki skemmdi fyrir hvað
þeir voru í flottum búningum. Svo
vom líka frábærir leikmenn í liðinu á
þessum tíma. Þar má nefna leikmenn
eins og Peter Osgood - alveg
magnaður framherji. Bonetti var svo í
rammanum og Charlie Cook lék svo á
hægri kantinum sem var einmitt mín
staða f fótboltanum. Ég vildi gjarna
hafa verið Charlie Cook á þeim tíma,"
sagði Guðmundur og hló dátt er hann
rifjaði upp tildrög þess að hann fór að
halda með Chelsea.
„Ég hef staðið með félaginu í
gegnum þykkt og þunnt og aldrei
gefist upp þó oft hafi gefið á bátinn
hjá félaginu. Ég held ég hafi verið einn
af mjög fáum sem hélt með liðinu á
þessum ámm," sagði Guðmundur en
hann gleðst yfir því að það séu betri
tímar í vændum hjá félaginu.
„Það er verulega ánægjulegt að sjá
hvernig félagið hefur vaxið hægt og
sígandi. Að mínu mati er þetta besta
félagslið í heimi í dag," sagði Guð-
mundur og hló dátt. Hann er hæfilega
bjartsýnn fyrir seinni viðureign
Chelsea og Arsenal í Meistara-
deildinni.
„Leikurinn leggst þokkalega í mig
en jöfnunarmarkið hjá Pires á eftir að
vega mjög þungt. 1-0
hefði verið fi'nt en 1-1
er erfitt mál. Annars
gengur liðinu bölvan-
lega að sigra Arsenal og
andlegi þátturinn spilar
eflaust þar inn í og svo er
það líka í íþróttum að
liðum hentar mis-
vel að leika gegn
hvort öðru og
það hentar
Chelsea ekki
að leika
, gegn Arse-
í nal."
Chelsea-Wolves
Raneri var eins og klipptur úr
Gaukshreiðrinu á blaðamanna-
fundi fyrir leikinn gegn Arsenal.
Kallinn er gjörsamlega búinn að
missa það. Setur „vinnuhestinn"
Crespo á miðjuna og sjálfan sig á
milli stanganna. Lau. stöð 2 w.;5.00
Bolton-Newcastle
Sunnudagsleikir em Samma Sopa
ekki að skapi - þynnkan alls-
ráðandi. Eftirleikurinn auðveldur
og Bellamy ætlar að fagna með því
að bróka Samma en kemst þá að
þeirri skelíilegu straðreynd að
hann gengur ekki í naríum. Sammi
ber fyrir sig minnisleysi í málinu.
Sun. Sýn kl. 13.00
Arsenal-Man. Utd
Leðjuslagur á milli Fergie og Wenger
myndi ekki einu sinni ná að toppa
lætin og slagsmálin sem verða í
þessum leik. Ef Gunners verða
öruggir með sigur snemma má
búast við því að Keane reyni að
redda sér snemmbúnu sumarfríi.
Vieira skyldi því passa hnéskeljarnar
á sér þegar leiklukkan nálgast 90
mínúturnar. Sun. Sýn kl. is.oo
Blackburn-Portsmouth
Souness er nóg boðið. Það er allt
farið í steypu hjá félaginu og nú er
komið að stóra trompinu. Kallinn
mætir ber að ofan í gamla
tuddanum hans Glenn Roeder. Ef
það gengur ekki upp hjá honum í
fyrri hálfleik má fastlega búast við
því að hann lími eitthvað af bringu-
hárum á efri vörina í seinni.
Everton-Middlesbrough
„Böðullinn" Duncan Ferguson
kyrkti þýska stálið Steffen Freund í
síðasta leik. Hvað gerir hann gegn
Danny „Slátrara" Mills? Missið ekki
af bardaga aldarinnar. Dunc vs
BOLTINN EFTIRVINNU
Púllarinn Danny Murphy skorar grimmt á „heimavelli“
Með svipuför á bakinu
Líflegt par
Það eru engin
vandamál í
svefnherberginu
hjá Danny
Murphy og
hinni iðilfögru
Joanna Taylor.
Hún greinir
ítarlega frá
einkalifinu i
viðtali við
timatitið
Maxim.
Ástæða þess að Danny Murphy
hefur verið hálfgetulaus í leikjum
Liverpool í vetur er fundin. Kærasta
Murphys er með hann í svo ströngu
prógrammi heima fýrir að engan
skal undra þó Murphy greyið sé
áttavilltur á vellinum.
Unnusta Murphys er leikkonan
Joanna Taylor en hún sló gegn í
bresku sápunni Hollyoaks. Hún
gerði sér lítið fyrir í vikunni og sagði
ítarlega frá því hversu fjörugu kynlífi
hún og Murphy lifa.
Að sögn Taylors er stundað
vaðandi S&M-kynlíf á þeirra heimili
þar sem handjárn og svipur koma
ítrekað við sögu. Ekki nægir það til
að svala lostanum hjá parinu íjöruga'
því þau eru alls óhrædd við að
stunda kynlíf utanhúss.
Erótískar myndir
Táylor hefur einnig lýst því
hvernig hún reynir að kveikja
blossann hjá Murphy með því að
senda honum myndir af henni í
vafasömum stellingum sem hann
síðan skoðar í rútunni er hann
ferðast með félögum sínum í
Liverpool-liðinu.
Þetta ítarlega viðtal birtist í blaði
er heitir Maxim en samkvæmt
heimildum
DV kemur
Geiri á
Maxim hvergi nálægt þeirri útgáfu.
Viðtalið byijaði með látum er Taylor
var spurð að því hvort þau notuðu
handjárn í rúminu. „Ég fór í leið-
angur um daginn í kynlífstækjabúð
þar sem ég keypti handjárn og svipu
með demöntum þannig að svarið við
því er stórt já," sagði Taylor, sem
hefur augljóslega „lítinn" áhuga á að
deila einkalífinu með öðrum. Henni
leiðist heldur ekki að gera sér dælt
við Murphy í Bimmanum hans, sem
er af dýrari gerðinni.
Fjör í Bimmanum
„Ég var einu sinni búin að fá
mér nokkur kampavínsglös og
þá fannst mér spennandi að
fara út í bíl með Danny. Hæðin
á Bimmanum hentar vel fyrir
slíkar „æfingar". Svo munaði
einu sinni litlu að við hefðum
verið gripin glóðvolg í
bakgarðinum hjá okkur en
sem betur fer heyrðum
við hliðið opnast í
tíma enda var þetta
mamma mín að
koma í heimsókn.
Svo eigum við
líka flottar
upptökugræjur
og við eigum
Háð undirfötum
Taylor leggur sig augljóslega í
líma við að halda sínum manni
góðum og það er ekki komið að
tómum nærfatakofanum hjá henni.
„Ég er háð því að klæðast æsandi
undirfötum og dressa mig oft upp
fyrir Danny. Honum leiðist það
heldur ekkert mikið."
Engum sögum fer af viðbrögðum
Murphys við þessum yfirlýsingum
unnustu hans en ætla
má að margir félaga
hans séu grænir
af öfund enda
Joanna rétt yfir
meðallagi
hugguleg eins
og sjá má á
myndinni hér
á síðunni.
Beckham ekki boðið í brúðkaupið hjá Nistelrooy
Ruud van Nistelrooy hefur
ákveðið að bjóða David og Victoriu
Beckham ekki í brúðkaup sitt í sumar
þar sem hann vill ekki etja Beckham
saman við Sir Alex Ferguson.
Ferguson er eðli málsins
samkvæmt boðið í brúðkaupið enda
yfirmaður Nistelrooy og svo sýndi
hann honum mikla biðlund áður en
hann keypti hann frá PSV Eindhoven.
Það má með sanni segja að það andi
köldu á milli Beckham og Ferguson og
hefur í raun löngu gert. Það endaði
með því að Fergie seldi Beckham til
Real Madrid. Þeir hafa ekki ræðst við
síðar.
Nistelrooy og Beckham eru
perluvinir en Hollendingurinn óttast
læti verði þeir báðir í brúðkaupinu.
Hann hefur þegar hringt í Beckham og
útskýrt fyrir honum af hverju honum
og konu hans sé ekki boðið í
brúðkaupið sem verður haldið í
Hollandi. Ruud vill ekki að neitt skyggi
á brúðkaupsdaginn sinn.
Neyðarleg staða
„Þetta er erfið og neyðarleg staða
fyrir Ruud," sagði vinur hans. „Hann
og unnusta hans eru góðir vinir
Beckham-hjónanna en þau vilja engin
læti í brúðkaupinu og hætta ekki á að
eitthvað skyggi á daginn þeirra. Báðir
eru þeir miklir fjölskyldumenn og
urðu góðir vinir er Becks var hjá
United. En Fergie er stjórinn og hefur
staðið með honum lengi."
Danny. Þetta verður algjör bomba.
B-O-B-A, bomba.
Man. City-Fulham
City rúllaði upp United en tapaði
gegn Leeds. Það verður að fara að
setja skýrar línur í áfengisbönnin hjá
félaginu.
Leicester-Liverpool
Leikmenn Leicester eyða púðrinu í
að spyrja Danny Murphy að því hvar
unnusta hans hafi fengið demanta-
svipu. Stan Collymore hefur ekki
gleymt gömlu félögum sínum í
Liverpool og passar vel upp á
unnustu Murphys á bílastæðinu.
REMBINGURINN
Eitt af því sem
menn geta
endalaust rifist um í -
sambandi við enska
boltann er hvort Sir
Alex Ferguson eða
Arsene Wenger sé
betri knattspyrnu-
stjóri. DV setti sig í samband við tvo
valinkunna einstaklinga sem
tengjast FH og Haukum og þar að
auki heldur annar
þeirra með Arsenal en
hinn með Man. Utd.
ssir tveir menn verða
væntanlega seint
sammála um
nokkurn skap-
aðan hlut.
Wenger hefur
vinninginn
„Ég tel að það sé nú ekki mikill
munur á þeim en eins og staðan er í
dag hefur Wenger vinninginn,"
sagði FH-ingurinn og Arsenal-
maðurinn Lúðvík Arnarson. „Það er
eitthvað talað um að Fergiesé búinn
að missa það en ég efast um það.
Það sem er athyglisvert við Wenger
er að hann hefur verið með mark-
vissa uppbyggingu síðan 1999 og
liðið hefur verið í stöðugri framför
síðan. Það er gaman að sjá hvernig
hann tekur á góðum leikmönnum
og gerir þá betri. Hann virðist eiga
mjög auðvelt með að vinna með
mönnum og menn virðast ekki hafa
neinn áhuga á að fara frá honum
eftir að þeir eru komnir til hans.
Þannig að hann er
greinilega mjög fær því
varamenn kvarta ekki
einu sinni. Undir hans
stjóm hefur félagið
algjörlega breyst því
áfengisvandamál em
horfin en önnur
og betri tekin
við. Þetta er
algjör
maður."
Wenger er bóla sem á
eftir að springa
Viggó Sigurðsson er á allt
annarri línu en Lúðvík. „Ferguson
er óviðjafnanlegur stjóri og það er
enginn í sögunni sem líkist honum.
Arsene Wenger er ekki með tærnar
þar sem hann er ineð hælana.
Hann nær aldrei sama árangri og
Ferguson. Hann er á toppnum í dag
en þetta er bara bóla sem á eftir að
springa," sagði Viggó, sem hefur trú
á því að kallinn komi til baka.
„Það er glórulaust að tala um að
Fergie sé útbrunninn því hann
kemur alltaf til baka. Það er hans
stíll að koma til baka. Svo er deildin
alls ekki búin og hlutirnir breytast
fljótt. Arsenal hefur ekki klikkað í
vetur og það er spurning
hvað gerist eftir að þeir
hafa tapað um
helgina? Þá byrjar
hrunadans sem gæti
endað með miklum
látum. Þessu móti er
alls ekki lokið," sagði
Viggó léttur í
bragði.