Akranes - 01.01.1950, Side 10

Akranes - 01.01.1950, Side 10
Rotary og Efni þessa erindis er, eins og nafnið bendir til, að skýra frá Rotary-félags- skapnum, hugsjón hans og markmiði, stefnu hans og starfsemi og ræða um hann í sambandi við þjóðmálastarfsemi fyrst og fremst. Frá sjónarmiði Rotary er það í alla staði réttmætt. Rotary er enginn leyni- félagsskapur. Tímarit þessa alþjóðafélags- skapar er boðið opinberlega til sölu og á marga kaupendur utan félaganna. Efni þessa erindis má skipta í þrennt. í fyrsta lagi tilgang og markmið Rotary, í öðru lagi stofnun og starfsemi Rotary, og í þriðja lagi, hvert erindi Rotary á við þá, sem einkum vinna að þjóðmálum og taka virkan þátt í stjórnmálum. Tilgangur og markmið Rotary felst í raun og veru í tveim orðum, en þau eru kynning og þjónusta. Rotary lítur svo á, að mikið af þeirri tortryggni, úlfúð og óvin- áttu og enda hatri, sem á sér stað milli manna, stétta, flokka og þjóða, eigi rót sína að rekja til vanþekkingar og skiln- ingsleysis á öðrum mönnum, skaplyndi þeirra og skoðunum, högum og háttum, og það er sannfæring Rotary, að úr þessu meigi mjög bæta með auknum kynnum, persónulegum kynnum og kynnum milli stétta og flokka, borga og bæja og þjóða á milli. Það er til gamalt heilræði, sem svo segir, að séu tveir menn ósáttir, þá skuli láta þá hittast, tala saman og éta saman. f þessu er fólginn sannleikur, en það er til dæmisaga, sem segir þennan sannleik á fagran hátt. Maður nokkur var á gangi í þoku. Hann var villtur og hugur hans var þungur. Allt í einu sér hann móta fyrir einhverju á hreyfingu. Þokan gjörir hlutina stóra og honum sýndist þessi hlutur æði stór og ferlegur og honum varð illa við. En er þetta færðist nær, sá hann, að það var maður og honum varð rórra. Maðurinn kom nær, heilsaði hon- um og tók í hönd hans. Þá gladdist hann, þvi hann sá, að þetta var þá bróðir hans. Vér göngum margir í þoku vanþekking- ar, hugsunarleysis, dómgreindarskorts og misskilnings, og meðbræður vorir, sam- borgar og samlandar koma oss þess vegna oft undarlega og annarlega fyrir sjónir, svo að ekki sé talað um menn af öðrum þjóðum. Það fer meira að segja stundum svo, að þeir koma oss fyrir sjónir eins og hálfgerðar ófreskjur, rangsnúnir og illvilj- aðir. En nánari kynni auka þekkinguna og skerpa skilninginn. Vér sjáum þá, að þeir eru bræður vorir, sem eru á sömu leið að sama marki, þótt ekki séu þeir skoðanabræður vorir, að minnsta kosti ekki að öllu leyti. En það eru ekki heldur allir bræður steyptir í sama mót. Rotary-félagsskapurinn vill stuðla og þjóðmálin starfa að slíkum kynnum meðal félaga sinna og annarra, stuðla að auknum skiln- ingi, samúð og samlyndi milli manna og stétta, skoðana og stefna, kynþátta og þjóða, til eflingar farsældar og friðar i heiminum. Eftir dr. ÁRNA ÁRNASON Hitt aðalatriðið er þjónustan. Kjörorð Rotary er á enska tungu: „Service above self“. Hefur það verið þýtt á íslenzku „Þjónusta ofar sjálfshyggju“, og „öðrum fyrst og síðan sjálfum“. En hvað sem þýð- ingum líður, þá er hugsjónin sú, að allt starf vort á að vera fyrst og fremst þjón- usta. Vér eigum ekki að hugsa fyrst og fremst um eigin hagsmuni í starfi voru, heldur um hag og heill annarra, með- bræðranna. Það sé ástundun vor og mark- mið, að starf vort og framkvæmdir verði til hagsbóta og heilla þeim, sem þeirra eiga að njóta, samborgurum vorum og þjóðfélaginu í heild. Því næst og þar á eftir kemur svo hitt, að sjá eigin hagsmun- um borgið. En þetta tvennt er þó ekki að- skilið. Það er hugsun Rotary, að sé farið eftir þessari reglu, þá muni einmitt eiginn hagur, heill og hamingja sigla í kjölfarið, því að heill og hagur bæjarfélagsins og þjóðfélagsins er heill og hagur einstakl- inganna, en almennur skortur, vansæld og böl þjóðfélagsins snertir hvern einstakl- ing þess, ef ekki í dag þá á morgun. Þjónustuhugsjónin er göfug og felur í sér fyrirheit um hamingju. Hún'byggist á lífsskoðun og Rotary vill þá jafnframt vinna að því, að göfga lífsskoðanir með- lima sinna. Þjónustuhugsjónin byggist á viðurkenningu á gildi mannsins, viður- kenningu á mannhelgi, manngöfgi, mann- gildi og mannréttindum. Rotary vill við- urkenna og verja allt þetta, og því er mið- ur, að víða er svo ástatt, að þeirrar varnar er full þörf. Þjónustuhugsjónin er í fullu samræmi við mannlífshugsjón kristinsdómsins og vér, sem kristnir erum, eigum ekki erfitt með að fella hana að lífsskoðun vorri. Hún er í samræmi við boð og líf meistara vors, sem kom ekki til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna öðrum. Rotary-félagsskapurinn var stofnaður 23. febr. 1905. Stofnandinn var ungur maður, Paul Harris, í Chicago. Hann og nokkrir ungir vinir hans bundust sam- tökum um að hittast hver hjá öðrum eftir röð og ræða áhugamál sín. Félagsskapur- inn fékk af þessu nafnið Rotary, sem er dregið af hringferð. Hann óx skjótt og fékk ákveðið form og fastar reglur, sem hafa haldizt með tiltölulega litlum breyt- ingum nú um 44 ára skeið. Rotary-félagar eru eingöngu karlmenn. Hinir ungu stofn- endur voru hver úr sinni starfsgrein og þannig hefur það verið síðan, að í hverj- um klúbb er oftast aðeins einn úr hverri stétt eða starfsgrein og er ætlazt til, að þeir einir séu valdir, sem eru sómi sinnar stéttar á Rotary-mælikvarða. Verkefnið er, eins og frá var skýrt, að auka kynni og efla þjónustuanda. Kynningin er bæði per- sónuleg og kynning starfsgreinar. Hver félagi kynnir sína starfsgrein, meðal ann- ars með því að flytja starfsgreinarerindi við og við. Á þennn hátt þróast skilningur hvers félaga og rétt mat á öðrum stéttum og starfsgreinum, og þennan rétta skiln- ing og rétta mat á hver félagi að bera og breiða út meðal starfsbræðra sinna. Jafn- framt á að vinna að því, að bæta siðgæðið innan hverrar starfsgreinar, þ. a. efla þjónustuhugsjónina, efla þann ásetning, að starfið verði fyrst og fremst öðrum til gagns og til góðs, þeirri byggð og bæ, sem klúbb- urinn starfar í, og þjóðfélaginu í heild. Hver klúbbur liefur, að segja má, ferns konar starfssvið. 1 fyrsta lagi er starfið fyrir klúbbinn sjálfan, honum til eflingar. 1 öðru lagi er starfsþjónusta, þ. e. starfið að þeirri kynningu og göfgun starfsgrein- anna, sem nú var getið. I þriðja lagi er þjóðmálaþjónusta, þ. e. starfið að því, að láta Rotary-áhrif og Rotary-anda ná til alls starfsins fyrir þjóðfélagið, að í öllu því starfi verði þjónustan og siðgæðis- þroskinn, reglan og mælisnúran. 1 því sambandi á að vinna að því, að þroska al- menningsálitið. Almenningsálitið er dóm- ur þjóðarinnar um menn og málefni, fram- kvæmdir og framkomu. Sá dómur er mik- ils megnugur og hann þarf að vera ekki eingöngu sterkur og ákveðinn, heldur einnig heilbrigður og réttlátur. Heilbrigt og óhvikult almenningsálit ber vott um þjóðarþroska. 1 annan stað má nefna það meðal annars, að Rotary vill vinna fyrir æskulýðinn. Ungmennastarfsemi er einn liður í þjóðmálaþjónustunni. Vinna skal að heill og hag barna og unglinga í sam- bandi og samráði við heimilin, kirkjuna, skólana og stjórnarvöldin. Auk þessa taka klúbbamir sér ákveðin verkefni til þjóð- þrifa, hver á sínu svæði og eftir getu. f fjórða lagi er alþjóðamálaþjónustan. Hún er í því falin, að hver klúbbur um sig og allir saman vinni eftir megni að kynningu, skilningi og velvild þjóða á milli og stuðli þannig að allsherjar sátt og friði. Rotary nær til manna af öllum þjóðum og kynflokkum, trúarbrögðimi og stjórnmálaskoðunum, siðum og háttum. — Rotary veit það, sem reynslan hefur og sýnt, að meðal þeirra allra eru góðir og göfugur menn, sem gjöra Rotary-hugsjón- ina að sinni hugsjón. Rotary er ekki trú- mála- né stjórnmálafélagsskapur og um- 10 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.