Akranes - 01.01.1950, Qupperneq 16
Lundareykjadal, en þar bjuggu áður for-
eldrar Gunnlaugs. Eftir fjögra ára búskap
þar fluttu þau að Tungufelli i sömu sveit,
og voru þar önnur fjögur ár. Þaðan flutt-
ust þau svo að Márstöðum í Akranes-
hreppi hinum foma og voru þar i tólf ár,
en fluttust svo að Sjóbúð 1886, eins og fyrr
segir.
Kristín kona Gunnlaugs í Sjóbúð var
fædd í Skógarkoti í Þingvallasveit. Dóttir
Jóns hreppstjóra þar Kristjánssonar, hins
mesta dugnaðar- og atorkumanns. Jón í
Skógarkoti andaðist í Reykjavík 31. maí
1895. Hef ég séð eftirmæli um hann, rit-
uð af sr. Jens Pálssyni á tJtskálum og síð-
ar í Görðum á Alftanesi. í>ar segir séra
Jens m. a., að Jón hafi af mörgum verið
álitinn tveggja manna maki til starfs og
aflrauna. Að hann hafi verið hinn mesti
búhöldur, stækkað túnið þar um helming,
með því að flytja þangað mold (í kláfum)
og þekja með henni hraunhellurnar. Á
bæ sinum reisti hann álitlegt timburhús
áður en timburkirkja var reist á Þingvöll-
um, og áður en nokkur annar reisti timb-
urbæ þar í sveit. Enn segir sr. Jens um
Jón í Skógarkoti: „Hann var vel greindur
og fróður í betra lagi, fjörugur og skemmt-
Bræðraparti, enn á lífi 1950 — var elzta
barn þeirra hjóna, fæddur að Þverfelli
16/7 1868, varð því að taka að sér forsjón
heimilisins þegar hann var 20 ára gamall.
Kristín móðir þeirra var afburða dugleg
kona og myndarleg. Hún fluttist til Reykja
vikur 1902, og hélt þar hús með yngstu
börnunum um mörg ár eftir það. Fór hún
í kaupavinnu á hverju sumri fram á efri
ár, eða venn hér í fiskvinnu. Öll voru
börnin dugleg og myndarleg og fóru fljótt
að vinna fyrir sér eins og þá var títt. I’essi
voru börn þeirra Sjóbviðarhjóna:
1. Jón eldri, fyrrnefndur, bóndi og for-
maður á Bræðraparti, og getið hefur
verið í sambandi.við það býli, (sjá 11.
tbl. 1945)-
2. Jón yngri, kvæntist ekki. Fluttist til
ísafjarðar, og stundaði þar smíðar og
útgerð. Dó þar 1920.
3. Ólafur, a fburðaduglegur sjómaður og
formaður á skipi hér. Hann andaðist
hinn 10. ágúst 1901, ókvæntur.
4. Guðrún, ógift, á heima í Reykjavík.
5. Ingvar, vélstjóri kvæntur Sigriði Ólafs-
dóttur frá ísafirði. Þeirra börn: 1. Krist-
in, giftist Steindóri Þorsteinssyni. Hann
dáinn. 2. Ólöf, giftist Valdimar Þor-
Kristín í Sjóbú'5
og börn hennar.
Aftari röS frá vinstri: Jón
á BrœSraparti, Jón yngri,
Jngveldur, Ásgeir og Árni.
Fremri röS: GuSrún, Krist-
laug, Kristín móSir þeirra
og Kristín. —
inn í viðræðum. Hann var maður örlynd-
ur, skapstóv og harður af sér í skorpunni,
en jafnframt viðkvæmur, sáttfús og veg-
lyndur. I ágreiningsmálum lét hann ekki
hlut sinn meðan halda mátti, en hættu-
laust var að selja honum sjálfdæmi. Hann
var einkar gestrisinn, og fátækum og bág-
stöddum mönnum reyndist hann eigi
sjaldan höfðinglyndur bjargvættur.“
Meðal barna Jóns, — auk Kristinar —
voru: Kristján á Hliðsnesi á Álftanesi og
Pétur blikksmiður í Reykjavík.
Böm þeirra Gunnlaugs og Kristínar i
Sjóbúð komust 10 til aldurs. Var þá margt
um að hugsa á hinum barnmarga bæ. —
Byrjað með lítil efni og búið á litlum
jörðum. t>egar hingað kom þurfti ekki
síður að viðhafa alla aðgæzlu. Því frem-
ur, sem húsbóndinn féll nú fljótlega frá,
þvi að hann andaðist í Sjóbúð 13. maí 1888,
og var þá jmgsta dóttir þeirra hjóna fárra
vikna gömul. Jón eldri, — síðar bóndi á
steinssyni trésmiðameistara. Þau eiga
tvær dætur. 3. Gunnlaugur, sjómaður,
dó af slysfömm í New York. 4. Ingvar,
garðyrkjumaður, austur í Biskupstung-
um. 5. Arni, stýrimaður.
Ingvar Gunnlaugsson sigldi öll striðs-
árin, og kann vart við sig annars staðar
en á sjónum.
6. Kristín, fór til Ameríku, og dó þar óg.
7. Kristlaug, giftist Pétri Þörvarðarsyni,
(bróður Þorvarðar prentara). Þeirra
synir, Helgi og Ólafur. Kristlaug missti
Pétur mann sinn og giftist í annað sinn
manni þeim, er Ketill Þorsteinsson hét
og var trésmiður. Þeirra böm: Pétur,
Kristin, Samúel Mitchel, og Gunnlaug-
ur vélstjóri, er fórst með togaranum
Reykjaborg.
8. Ámi, skipstjóri, ókvæntur.
9. Ásgeir, cand. phil., glæsilegur maður,
fór til Ameríku og dó þar.
10. Ingveldur, gift Hafhða Hjartarsyni
trésmíðameistara í Reykjavík. Þeirra
synir: Hjörtur og Kristinn.
Árið 1902 kaupa bræður tveir Sjóbúð-
areignina, Bjarni og Jón Péturssynir, frá
Ytri-Skeljabrekku. Árinu áður fluttu þeir
í Skagann, og þá að Sýruparti, en fluttu
Ingvar Gunnlaugsson, vélstjóri.
svo að Sjóbúð 1902. Foreldrar þeirra
bræðra voru þau Pétur Jónsson bóndi á
Skeljabrekku og kona hans Sólveig Jóns-
dóttir, en þar bjuggu þau allan sinn bú-
skap. (Guðrún, systir Péturs bjó á Báru-
stöðum, gift manni þeim er Ólafur hét.
Þeirra börn: 1. Ingibjörg, móðir Björns
Ólafssonar ráðherra. 2. Guðjón, kvæntist
Valgerði Hansdóttur í Baldurshaga. 3. Sig-
ríður, er þeirra var yngst, og giftist Gísla
Eyjólfssyni búfræðingi.
Kona Bjarna í Sjóbúð var Jóhanna
Maria Þórðardóttir frá Innri-Skeljabrekku.
(Tveir bræður Jóhönnu eru enn á lífi.
Einar Þórðarson, innheimtumaður, Njarð-
argötu 7 í Reykjavík og Jóhann Þórðarson,
bóndi á Bakka í Melasveit). Foreldrar
þeirra systkina voru þau Þórður Bergþórs-
son Gunnlaugssonar frá Vogatungu, og
Guðrún Guðmundsdóttir, fædd á Hvítárv.
Þessi börn Bjarna Péturssonar og Jó-
hönnu eru nú á lífi: 1. Þórður, kaupmaður
hér, búandi við Kirkjubraut 12, og verð-
ur þar nánar getið. 2. Petrea Sólveig,
ógift, býr í Keflavík, og á eina dóttur, er
Guðmunda heitir. .
Konu sina missti Bjami 19. nóv. 1916,
en sjálfur andaðist hann 13. ágúst 1919,
aðeins 4'.7 ára að aldri.
Eins og áður er sagt, keyptu þeir bræð-
ur Sjóbúð, og bjuggu þar báðir um nokk-
ur ár. Stunduðu báðir sjóinn, aðallega með
Jóhanni heitnum hreppstjóra. Kona Jóns
var Eyvör Margrét Guðmundsdóttir, ætt-
uð úr Njarðvíkum. Þau fluttu héðan að
Efri-Hrepp 1912, og bjuggu þar til 1914,
er þau fluttu suður í Njarðvíkur. Þaðan
lil Hafnarfjarðar og síðast til Reykjavík
ur. Þau Jón og Eyvör áttu eina dóttur
16
AKRANES