Akranes - 01.05.1950, Side 16

Akranes - 01.05.1950, Side 16
fallna Norðmanna í síðasta stríði. Slíka minnisvarða má sjá í flestum sveitum Nor- egs. „Fall for landet sitt“, stendur á þeim mörgum. Á leiðinni heim að skólahúsinu, sagði Vist mér, að hér hefði komið íslenzk- ur maður fyrir allmörgum árum, hátt sett- ur við islenzka útvarpið, nafnið mundi hann ekki. Hefði sá verið mjög kviklegur, viðræðugóður í bezta lagi og fróður i forn- um sögum. „Var hann lágvaxinn og sköll- óttur?“ spurði ég. „Stendur heima“, svar- aði Vist. Þetta var auðvitað enginn annar en Helgi Hjörvar, og kannaðist Vist strax við Nafnið. En hér hefði lika komið, fyrir fáum missirum annar Islendingur, lýð- skólastjóri ásamt dóttur sinni, ekki mundi Vist heldur nafn hans, en bætti við til skýringar: „Hann var í eigin bíl, griðar finum og góðum bíl“. „Var það hár mað- ur og kraftalegur, hvass á brún og ein- beittur á svip?“ spurði ég. Jú, það stóð heima. „Hét hann ekki Bjarni Bjarnason frá Laugarvatni?“ „Jú, einmitt,“ sagði Vist og kannaðist þá við nafnið. Svo bætti hann við og brosti: „Þið þekkist vist allir, lslendingar“. — Vist bauðst til að sýna mér skóla sinn, og þáði ég það, en varð að hafa hraðan á, því að tíminn fór að verða naumur, en mig langaði til, að lita i kringinn mig á leiðinni ofan í kaupstaðinn. Eftir lauslega skoðun á skólanum kvaddi ég leiðsögumann minn með þakklæti fyrir vinsemd hans og fræðslu. Hann er maður hlýr og hógvær i viðmóti og vekur traust og góðan þokka strax við fyrstu kynni. Lagði ég nú af stað gangandi áleiðis til kaupstaðarins. Það er falleg leið, trjáraðir með fram veginum alla leið, en í gegnum þær sér yfir tún, akra, skóga og bænda- býli, en fjöll og hæðir blasa við þegar lengra dregur. — Á þessum slóðum gerðist fátíður og hræðilegur atburður fyrir rúmri hálfri öld (1893). Ægilega mikið jarðfall hljóp fram hér í dalnum með slíkum feikn- um, að 112 manns létu lífið i þeim ham- förum. Auk þess fórust mörg hundruð kvikfénaður. Jarðfallið hljóp um 8 km. leið niður dalinn og tók með sér marga bæi og komust þar fáir lífs af, tún og gróð- urlendi kaffærðist í leðjunni og margar jarðir gereyddust. Þetta var ekki venjulegt skriðufall, eins og við þekkjum hér á landi. Eftir slysið var farið að grafast fyrir orsakimar. Var borað ofan í jörðina umhverfis hlaupið. Kom þá í ljós, að á ýmsum stöðum niðri, lágu óhemju mikil lög af útþynntum leir, eins og fljótandi grautur. Sums staðar sökk borinn skyndilega af eigin þunga allt að 40—50 m. ofan í eðjuna. Af þessu og ýmsu fleiru réðu menn það, að útþynnt leireðja hafi legið undir spildunni, sem sprakk framm. Enn eru hér i dalnum lág- lend mýrarsvæði, sem álitið er, að hvíli á svipaðan hátt ofan á þessurn fljótandi leir- lögum. En þar hagar svo til, að þau geta ekki fengið framrás í neina átt, og því ekki hætta á öðmm eins ósköpum og 1893. Gamalt fólk í Veradal man eftir þessum atburði og ýmsar ritaðar heimildir eru til um hann. Kona nokkur á bænum Skjör- dal var úti stödd nóttina sem ósköpin dundu yfir og sá hlaupið. Henni segist svo frá, að það hafi komið í þremur flóð- bylgjum, með stuttu millibili. Sú fyrsta var minnst, en sú næsta tók með sér allt, sem fyrir varð og kastaðist með feiknar afli þvert yfir dalinn, svo að leirgrautur- inn spýttist langt upp í brekkur. Bétt á eftir kom þriðja og mesta flóðbylgjan, og veltist með ægihraða niður dalinn. Tók hlaupið með sér heil bæjarhverfi, dunur og dynkir kváðu við, en vatnsstrókar og leirgusur stóðu hátt i loft upp. Á flóðsvæð- inu fómst, eins og áður er sagt, 112 manns; þeir, sem af komust björguðust á ýmsan hátt, og næsta furðulegan, sum- ir. Margir sigldu á húsunum eða braki úr þeim, sem barst út dalinn. ýmsir sjón- arvottar hafa lýst þessari ógnarnótt. Flek- ar úr húsum, rúm, stólar, borð og önnur húsgögn veltust og byltust í leirflóðinu og innan um allt þetta menn og dýr. Neyðar- óp fólksins og öskur og kvein í skepnum kváðu við hvaðanæfa. Frost var um nóttina og stinningsgola. Fólk þusti að til að reyna að bjarga. En það var ekki hægt um vig. Menn lögðu flotbrýr út á leðj- una, stóra planka og tré, sumir reyndu að nota skíði. Nokkrum var bjargað á þennan hátt. Sums staðar sást kannske ekki nema höfuð eða hönd upp úr leðj- unni. Ung stúlka, sem borizt hafði 3 km. leið í flóðinu, stóð í leirmaukinu upp í geirvörtur í 15 klukkustundir með lítið bam í fanginu. Barnið var dáið. þegar til þeirra náðist, en stúlkan hélt lífi. Svipaðar sögur eru til um ýms atvik frá björgun- inni, bæði manna og dýra eftir að leir- grauturinn tók að setjast til og þéttast. — Þessa nótt var héraðslæknirinn i Veradal i sjúkravitjun þar i dalnum. Hann segir frá því, að þegar hann á heimleiðinni nálgaðist staðinn, þar sem hlaupið varð klukkustund síðar, hafi hesturinn fyrir vagni hans skyndilega orðið ram-staður og hafi slíkt ekki komið fyrir i annan tíma. Læknirinn beitti svipunni, en klár- inn skalf á beinunum og spyrnti við fót- um. Loks hafðist hann þó af stað, tók sprettinn alveg óviðráðanlegur og linnti ekki fyrr en heima á hlaði á Stiklastöðum. Allt þetta var ég að hugsa um og rifja upp, meðan ég labbaði milli trjágarðanna, sem köstuðu notalegum skuggum á sól- bakaðan veginn. Hér í dalnum má enn sjá merki þessara miklu náttúruhamfara. En náttúran keppist við, með hjálp manns- handarinnar, að græða sárin. Á hlaup- svæðinu eru nú stór svæði þakin birki- skógi eða akurlöndum. Ég lét augun hvarfla út yfir dalinn. Það var vor í lofti, spóar sungu og ég hélt mig heyra i stelkinum. Ungt fólk kom hjólandi í hóp- um á móti mér, léttklætt og masandi. Piltarnir voru á skyrtunni, ungu stúlkum- ar höfðu blóm í hárinu og sólgleraugu. Það var sunnudagur í dag og leiðin lá upp í sveit, út um hliðar og skóga. Mér varð hugsað heim, skyldi nú hafísinn vera farinn og farið að hlýna? Skyldi vera farið að grænka og birkihríslurnar í garðinum heima farnar að springa út? Það var ekki gott að segja, „Það sumrar svo seint á stundum“. — En vorið kemur nú samt, og ekkert veit ég nú fegra en vorið heima. -— Klukkan rúmlega hálf fimm þramm- aði ég þreyttur og sveittur inn á járn- brautarstöðina í Veradal. Frímann Jónasson. 1 ÞjóSleikhúsinu Hið nýja Þjóðleikhús hefur verið vel sótt siðan það var opnað til sýninga. Sjálfsagt fyrst og fremst til þess að sjá hið nýja musteri leiklistar- innar. Einnig til þess að fá samanburð ýmsra ágætra leikara i sömu hlutverkum nú, og i hin- um gömlu húsakynnum. En siðast, og ekki sizt til þess að vera vottar að miklum list-viðburði, er hér á landi var i fyrsta sinni sýnd og sungin ópera. Um húsið sjálft skal ekki rætt að þessu sinni, þar sem það hefur verið rækilega gert hér í blaðinu á öðrum stað. Það var eðlilegt í alla staði að Nýársnóttin yrði sýnd við opnun hússins. Ef til vill lika eðlilegt að hið næsta verkefni yrði Fjalla-Eyvindur. En aldrei hef ég verið neitt hrifinn af þessu verki Jóhanns Sigurjónssonar. Finnst að i veigamiklum atriðum sé þar rangtúlkuð sagan sem stuðst er við, því fremur sem ýmislegt í fari persónanna virðist stangast illa við sögu vora og þjóðareðli. Sem þriðja leikrit hefði átt hetur við, að sýna eitthvert af leikritum Kambans. tmsum þykir mikið koma til Islandsklukkunn- ar. Sjálfsagt má eitthvað gott segja um þetta hrafl-sýnishorn þriggja bóka Kiljans. Vel sagðar setningar á stangli, sem er eins og slöngvað inn á mögulegum og ómögulegum stöðum. Og liklega væri ljóminn ekki mikill yfir þessu leikriti — sem slíku -— ef ekki Jón Hreggviðsson og Jón Grindvíkingur væru svo frábærilega vel leiknir af Brynjólfi Jóhannessyni og Lárusi Pálssyni, og þó alveg sérstaklega Lárus, sem leikur alveg meistaralega og bregzt aldrei bogalistin í þessu hlutverki. Leiksviðin — hér á landi — eru frámunalega leiðinleg, — næstum ömurleg. — Persónan Snæ- friður Islandssól kemur manni spánskt fyrir sem islenzk kona, svo og túlkun skáldsins að ýmsu leyti á Arne Ameus. Þama er rétt lýst eymd þjóðarinnar og umkomu- leysi, en það virðist þá líka heldur litið gert til þess að finna mótvægið, með þvi að draga fram af jafnmikilli ást og umhyggju það bezta i fari þjóðarinnar. Það sem mátti fullsanna, — að jafn- vel þegar kúgunin og niðurlægingin var mest, — mennt og menning, sem fyllilega þoldi saman- burð nálægra þjóða. Það er leitt með eins mikið skáld og Kiljan er, að hann skuli sí og æ, helzt vilja vellta sér upp úr skit og búa til skit og ata auri hin fegurstu djásn og dóma þjóðarinnar. Heimsókn hinna sænsku gesta frá konunglegu AKRANES 64

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.