Akranes - 01.05.1950, Side 18

Akranes - 01.05.1950, Side 18
Móðir Halldóru og kona Ólafs, var Mar- grét Þorsteinsdóttir frá Hofsstöðum í Hálsasveit. Systkyni Halldóru: a. Sigriður Ólafsdóttir, er giftist Sigur- þór Ólafssyni trésmið, bróður sr. Ólafs frikirkjuprests. b. Ólafur Ólafsson á Sólmundarhöfða, drukknaði af kútter Emilíu. Kona hans var Sigríður Sigurðardóttir frá Mið- vogi. Þeirra dóttir Guðlaug, Blöndu- hlíð 2 7 í Reykjavík, gift Ingólfi Helga- syni frá Höfðavík. c. Jón Ólafsson, hans dóttir er Marta, kona Guðmundar Einarssonar í Ný- borg hér og Ólafur, búsettur í Reykja- vík. Hálfbróðir Halldóru (samfeðra) var og Hannes Ólafsson, er drukknaði af kútter Emilíu. Hans kona Helga Jónsdóttir, ætt- uð vestan úr Mið-Dölmn, — síðar í Sjó- búð og víðar, nú í Reykjavik. Þeirra dæt- ur voru tvær. Ragnheiður gift kona í Reykjavik, og Kristín, er býr með móður sinni. Halldóra Ólafsdóttir fyrrnefnd, hefur ætíð átt hér heima. Fyrri maður hennar var Jón Einarsson, frá Miðfelli á Hval- fjarðarströnd. En áðm- en hún giftist Jóni, átti Halldóra barn með manni þeim er Tómás hét, og var ættaður úr Hafnarfirði. Hún heitir Margrét. Var fyrr gift Guð- geiri Jónssyni, er getið var lítilega í sið- asta blaði. Síðan giftist hún Páli Guð- mundi Jónssyni og fluttist með honum til Ameríku. Búa þau nú vestur á Kyrrahafs- strönd, þar sem Páll er bakari og brauð- gerðarhúseigandi, en jafnframt prestur. Þau eiga eina dóttur, Dóru, sem gift er enskum manni, sem líka er bakari. Síðari maður Halldóru Ólafsdóttur, var Halldór Gíslason Haifnfirðingur. Halldór var um mörg ár vinnumaður hjá Árna Árnasyni og Guðrúnu Ingjaldsdóttur í Gerðrnn. Þau Halldór og Halldóra voru saman í 19 ár, en hann andaðist 28. ágúst 1930. Halldór Gíslason var dáðríkur maður og dyggur. Vinátta hans var engin hálf- velgja, umtalsfrómur og saklaus maður, sem engum ætlaði illt. Hann beinlínis trúði á konu sína og var henni góður í samræmi við það. Halldór var óvenjulega viljugur maður, og langaði til að gera öll um gott. Halldóra Ólafsdóttir, er greind kona, dugleg og vel verki farin. Ó5. Réttarkot — Réttarhús. Bærinn er gekk undir báðum þessum nöfnum, er byggður af Isak Jónssyni, (bróður Lofts í Götu), er fyrst getið í manntalinu í des. 1877 og því vafalaust fyrst byggður það ár. Isak er þá talinn 30 ára og bústýra hans, Ingveldur Dani- elsdóttir 27 ára. Þau giftust árið 1879. Árið 1876 eru þau Isak og Ingveldur á Sýruparti. Ingveldur var dóttir Daníels í Nýlendu og systir Þorsteins Daníelsson- ar á Sýruparti. Ingveldur deyr 19. júli 1882. Þau Isak áttu eina dóttur, Margréti. Hún fluttist síðar til Reykjavikur og gift- ist þar Pétri Pálssyni skrautritara og mál- ara. Pétur Pálsson var fæddur á Eiði i Hestfirði í Norður-lsafjarðarsýslu 17. jan. 1877. Faðir hans var Páll formaður An- drésson, en móðir Péturs var Steinunn Magnúsdóttir. Forfeður Péturs munu margir hafa verið listfengir smiðir og ágætir skrifarar og skáld. Um tvitugt fór Pétur til Reykjavíkur og lærði eitthvað dráttlist hjá Benedikt Gröndal skáldi og listamanni. Þá lagði Pétur og stund á málaraiðn, og gerði það að atvinnu sinni, sérstaklega á sumrin. Pétur var stilltur vel, dulur og ákaflega hóvær og auðmjúk- ur maður. Hann var vel skáldmæltur, al- vörugefinn maður og hreinlundaður. Ár- ið 1929 gaf hann út ljóðabókina Burkna. Margrét Isaksdóttir var fínleg kona, þrifin og myndarleg og hin bezta hús- móðir. Börn þeirra Péturs og Margrétar voru þessi: 1. Oddur Stefán, kvæntur Fanney Ingi- mundardóttur. Þeirra börn, Edda og Viðar. 2. Svafa Guðlaug, gift Ársæli Kjartans- syni, trésmið. Þeirra sonur Pétur Óskar. 3. Pétur, dó ungur. Pétur skrautritari Pálsson andaðist 15. maí 1938, en Margrét kona hans 25. apríl 1948. Eins og sjá má hér að framan í sam- bandi við Mýri, átti ísak barn með Odd- nýju Jóhannesdóttur, Eileif, formann á Lögbergi. Síðustu ár ævinnar bjó Isak lengi á Háteig hjá Ingibjörgu Guðmunds- dóttur, sem að nokkru leyti ól Eileif upp, og þar andaðist Isak 11. desember 1910, þá talinn 66 ára gamall. I Réttarhúsum bjuggu eftir þetta m. a. Björn Ólafsson, síðar í Staðarhöfða. Sig- urður Sigurðsson, síðar á Sigurðsstöðum og Gísli Daníelsson. Kotið mun hafa farið í eyði 1895. Þykir mér sennilegt að upp úr því hafi Isak byggt pakkhús það er hann átti lengi á Háteig. 66. Litlibakki. Þessa býlis er fyrst getið í manntali í desembei 1877, og hefur þvi vafalítið ver- ið reist þetta ár. Þar byggir fyrst Helgi Sveinsson, frá Innsta-Vogi, bróðir Árna í Garðbæ, Narfa á Mel og þeirra systkina. Helgi var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Margrét Sigurðardóttir, ekkja eftii Guðmund Oddsson bónda í Innsta-Vogi. Réðist Helgi til hennar fyrir ráðsmann, og giftust þau síðar. Margrét þessi mun hafa veiið systir Ingibjargar, konu Erlend- ar í Teigakoti. Við manntalið í des. 1877, er þetta fólk á Litlabakka: Helgi Sveinsson 28 ára, Margrét Sig- urðardóttir kona hans 50 ára og eftirtalin börn Margrétar og fyrri manris hennar Oddur Guðmundsson 24 ára. barna- kennari hér, og sá sem fyrstur byggði Oddsbæ. Halldóra Guðmundsdóttir 18 ára, síða.' kona Odds í Presthúsum. Þórður Guðmundsson 14 ára. Sigþrúður Guðmundsdóttir 11 ára. Guðmundur Guðmundsson 9 ára. Guðmundur þessi Oddsson fyrri maður Margrétar, mun hafa verið ættaður frá Söndunum á Hvalfjarðarströnd. Einn sona þeirra var Vilhjálmur Guðmundsson org- anleikari hér, sem fyrstur byggði Neðri- Teig, faðir Lúðvíks skipstjóra og þeirra systkina. Þau Helgi á Litlabakka voru ekki lengi saman, því Margrét andaðist 9. mai 1878. Hinn 25. október 1879 kvæntist Helgi siðari konu sinni Guðnýju lónsdóttur. Hún var systir Þuríðar í Króki, Halldórs, föður sr. Jónmundar Ilalldórssonar og Guðrúnar, konu Sigurðar Jónssonar járn- smiðs hér i Hoffmannshúsi, og fyrr og síðar i Reykjavik. Þessi voru börn Helga á Litlabakka og Guðnýjar: 1. Margrét, kona Guðjóns Tómássonar frá Bjargi. Þeirra verður síðar getið í þess- um þáttum, og hefur verið getið hér áður í blaðinu. 2. Sigurmundi, er átti Sigríði Sigurðar dóttur frá Sigurðsstöðum. Þeirra sonur Óskar, ókvæntur, (en á einn son Sigur- munda að nafni). Sigurmundi Helgason drukknaði af fiskiskipinu „Svanur“ 1912. 3. Jón Bjarni Helgason, nú kaupmaður, á Vesturgötu 27 í Reykjavík. Jón Bjarni er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Carlotta Albertsdóttir bónda frá Páfa- stöðum í Skagafirði. Hún er dáin fyrir nokkrum árum. Þeirra börn: Alrún Guðný, Sveinn, Leifur og Jón Ragnar. Seinni kona Jóns er Ólöf Guðjónsdóttir frá Eskifirði. Eiga þau eina dóttur, er heitir Guðný Kristín. Helgi Sveinsson mun hafa verið ráðs- maður hjá sr. Einari Friðgeirssyni á Borg þegar hann drukknaði, á leið úr Borgar- nesi 8. febrúar 1897. Var hann formaður á skipinu og hafa verið á leið til Reykja- víkur með rjúpu. Uum þetta ferðalag Helga, hef ég heyrt þessa sögu: Kvöldið áður en þeir lögðu af stað í þennan síð- asta túr, er sagt að piltarnir hafi verið með gleðskap nokkurn, þar sem þeir voru samankomnir á einum stað, spiluðu og voru kátir. Hafi Helgi þá komið þar að og sagt við þá: „Skemmtið þið ykkur pilt- ar minir, því þið gerið það ekki annað kvöld“. Þeir drukknuðu allir daginn eftir. Þegar Helgi féll frá, var hann í undir- búningi með að byggja timburhús á Litla- bakka. Af því varð þó ekki fyrr en 1903. 66 A K R A N E S

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.