Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2004, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004
Fréttir DV
Spá um aukinn
þorskkvóta
Greining íslandsbanka
spáir að þorskkvóti á ís-
landsmiðum verði aukinn
um 7% á næsta fiskveiðiári.
Kvóti yfirstandandi tíma-
bils nemur 209 þús. tonn-
um en gangi spá Greining-
ar ÍSB eftir mun kvótinn
aukast í 223 þús. tonn. Það
felur í sér um 1,8 ma.kr.
aukningu aflaverðmætis.
Nýyfirstaðinn vorleiðangur
Hafrannsóknarstofnunar
styrkir þá skoðun Greining-
ar ÍSB að svigrúm sé fyrir
hendi til að auka þorsk-
kvótann en mælingar Hafró
sýndu að stofnvísitala
þorsks hækkaði um 25% frá
mælingunni árið 2003.
Bannað
að afhenda
flak
Samgöngunefnd Al-
þingis er samstíga í því
að breyta frumvarpi
Sturlu Böðvarssonar
samgönguráðherra um
rannsóknarnefnd flug-
slysa. Breytingin er á
þann hátt að rannsókn-
amefndinni verði ekki
heimilt að láta flugfar,
eða hluta þess, af hendi
nema málið sé fullrann-
sakaö hjá henni og hugs-
anlega lögreglu. Nefndin
vill leggja áherslu á að
gögnum verði ekki eytt
eða þau látin af hendi
nema að vel athuguðu
máli. Ástæða þessarar
breytingar eru deilurnar
sem spunnust vegna
þess að eftir flugslysið í
Skerjafirði haustið 2000,
lét rannsóknarnefndin
hreyfil flugvélarinnar
TF-GTI af hendi áður en
lögregla eða aðrir höfðu
tækifæri til að rannsaka
hann.
Byggingavísi-
talan hækkar
Hagstofan hefur reiknað
vísitölu byggingarkostnað-
ar fýrir maí og er hún 293,3
stig og hækkar um 0,38%
frá fýrra mánuði. Af ein-
stökum liðum var vísitala
raflagna eini liðurinn sem
hækkaði verulega á miili
mánaða eða um 1,9%. Síð-
astliðna 12 mánuði hefur
byggarvísitalan hækkað um
2,7% en ef aðeins er miðað
við þrjá mánuði hefur vísi-
talan hins vegar hækkað
um 6,7%.
Stefán Guðmundsson ætlar að flytja inn skriðdreka til Njarðvíkur í sumar. Hann
hefur dreka í sigtinu og er í samstarfi við fjársterka aðila og hyggst selja ferðir
með skriðdrekanum yfir torfærur.
„Ég viðurkenni að þetta hljómar svolítið klikkað, en þessi skrið-
dreki kemur til landsins," segir Stefán Guðmundsson, eigandi
Go-Kart við Njarðvík, sem vinnur að því að flytja inn skriðdreka
til landsins. Ætlunin með innflutningnum er að leyfa fólki að
fara í skriðdrekaferðir við Njarðvík.
„En síðan er þetta ekki svo skrítið.
Þetta er ekki svo galin hugmynd,
þetta er bara skriðdreki. Á Englandi
em svona garðar, „activity-garðar“,
þar sem fólk getur fengið far með
skriðdreka. Þú færð bara sæti í dreka
og svo brunar hann yfir alls konar tor-
færur. Það er þriggja mánaða biðlisti í
skriðdrekaferðir og þetta er geysivin-
sælt,“ segir Stefán.
Stefán segir að skriðdrekinn muni
ekki verða vopnum búinn. „Ég ætla
ekki að fara að skjóta bankastjórana
eða neitt í þá vem. Það verður steypt
fyrir byssuna, þannig að drekinn
verður meira eins og beltavél. Við
þurfum að byrja á því að vita hvort ég
hafi rétúndi á drekann. En það er ekki
ennþá það tæki á íslandi sem hefur
vafist fyrir mér að keyra á jörðu
niðri," segir hann.
Stefán telur ólíklegt að nokkuð
sérstakt leyfi þurfi til að flytja skrið-
drekann inn, enda sé hann ekki
stríðstól þegar hann er óvirkur. „Þetta
gæti þess vegna verið flutt hingað inn
sem dráttartæki. Þetta kemst í gegn
með einum eða öðmm hætti. Fyrst
þarf að fá staðfestingu á að við getum
fengið drekann úti. Síðan byrja ég á
því að tala við tollinn og það gæti tek-
ið einn til tvo mánuði en gæti líka
gengið strax í gegn. Þá kemur hann
með næsta skipi,“ segir hann.
Kaupverðið á skriðdrekanum er
trúnaðarmál en Stefán segir að pen-
ingar séu ekkert vandamál. Að baki
honum séu fjársterkir íslendingar í
útlöndum.
„Ef enginn vandamál verða í veg-
inum gæti skriðdrekinn verið kominn
heim eftir 30 daga, ef þetta flýgur í
gegnum öll ráðuneyti. Og það tekur
vikutíma að búa til góða braut. Ég
stefni á að hann verði kominn í sum-
ar, enda sagði ég við tengiliði mína
úti að ég vildi fá hann í gær. Svo er
meira í gangi sem ég vil alls ekki segja
núna, fyrst vil ég koma þessum skrið-
dreka heim. Peningar em ekkert
vandamái hérna," segir Stefán, sem
hyggst fara úr go-kartbílum í skrið-
dreka.
Líkur em á því að í sumar gefist ís-
lendingum kostur á að ferðast á fullri
ferð með skriðdreka. Hugmyndin er
að skriðdrekinn vinni sig yfir dekk,
tunnur og jafnvel bílhræ, Lflct og hinir
geysivinsælu bigfoot-bflar í Banda-
ríkjunum. jontrausti@dv.is
„Þetta gæti þess vegna
veríð flutt hingað inn
sem dráttartæki."
Úr go-kart í skriðdreka Go-kart-maðurmn ite an
Guðmundsson í Njarðvík vonast til að flytja mn skrið-
selja Islendingum torfæruferðir.
dreka á 30 dögum og
Kona á sextugsaldri gat bara ekki meir
Viagra veldur hjónaskilnaði
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson dæmdur
Dómari segir glæpinn svívirðilegan
Fyrsti Viagraskilnaðurinn er geng-
inn í gegn á Bretíandi. Kona á sextugs-
aldri fékk skilnað á gmndvelli þess að
maður hennar notaði rislyfið Viagra
sýknt og heilagt - og hún bara gat ekki
meir. Hún sagði manninn hafa verið
hamslausan þegar kynlífið var annars
vegar og hún hafi þurft að stunda kyn-
líf með hættí sem hún hafi ekki tíðkað
svo árum skiptir.
Talsmaður lyfjafyrirtækisins Pfizer,
sem framleiðir Viagra, segir ósann-
gjamt að kenna lyfinu um skilnaðinn
enda hafi lyfið oftar en ekki fært fólk
saman.
Viagraskilnaðir em þekktir í Banda-
Hvað liggur á?
ríkjunum. Þarfékk61 árs
kona til dæmis skilnað V
eftir að sjötugur eigin-1
maður hennar hóf að
halda framhjá henni. Að
sögn konunnar hófst
framhjáhaldið tveimur'
dögum eftir að karlinn byrj-
aði að taka inn Viagra. Kyn-
lífsfræðingar hafa varað við
því að Viagra leysi ekki allan
vanda og í mörgum tilfellum
eigi konur erfitt með að aðlaga sig
auknum kraftí karla. Viagra nýtur mik-
illa vinsælda og er talið að 20 milljón
karlar í 110 löndum hafi prófað lyfið.
„Það liggur á að leggja á," segir Gaui litli líkamsræktarfrömuður með meiru.„Ég er
búirtn að vera í símanum frá klukkan átta f morgun. Þetta var erfitt þegar maður var
bara með símboða. Maður er hvergi óhultur með þennan síma. Nú er ég farinn að
hugsa um að ég þurfí að fara að legga á. Önnur merking þess er líka að fara í ferða-
lag. Það er kominn tími á þetta hvort tveggja."
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson
hefur verið dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi í hérðasdómi
Reykjavíkur fyrir að falsa skuldabréf
á Litla-Hrauni og gera þannig kröfu í
dánarbú Agnars Agnarssonar,
mannsins sem hann myrtí. Dómari í
málinu, Guðjón St. Marteinsson,
segir í niðurstöðu sinni að glæpur
þessi sé svívirðilegur og gefi til
kynna óvenjulega styrkan og ein-
beittan brotavilja Þórhalls og einnig
það að hann framdi brot sín í refsi-
vist á Litla-Hrauni. Er þetta virt hon-
um til refsiþyngingar.
Eins og kunnugt er af umfjöllun
DV um þetta dómsmál var um að
ræða þrjú skuldabréf að upphæð
samtals 2,5 milljónir kr. Sannað þyk-
ir að Þórhallur hafi falsað bréfin á
Litla-Hrauni þar sem hann afplánar
nú 16 ára fangelsisdóm fyrir morðið
á Agnari Agnarssyni. í dóminum
segir að af þessu megi ráða að refsi-
Þórhallur Gunnlaugsson Gaftil kynna
óvenjulega styrkan og einbeittan brotavilja.
vist hafi takmörkuð áhrif á hegðun
Þórhalls.
Þórhallm á að baki langan saka-
feril. Hann hefur frá árinu 1979 hlot-
ið átta refsidóma, þar af em þrír
dómar Hæstaréttar. Hann hefur
fimm sinnum hlotíð dóma fyrir
skjalafals og í þremur tilvikanna var
hann jafnframt sakfelldur fyrir
auðgunarbrot.