Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 3
T3V Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ2004 3 „Maður man nú ekki svo glöggt eftir þessu," segir Sverrir Hermannsson, fyrrum alþingis- maður. Á myndinni hér til hliðar stendur hann við hliðina á Ellerti B. Schram og hlustar á Stefán Jónsson, þingmann Alþýðubandalags- ins og faðir Kára Stefánssonar, halda ræðu. Umræðuefnið var zetan en hún var Sverri Her- mannssyni afar hugleikin. „Jú, ég stend þama og hlusta á Stefán halda ræðu,' segir Sverrir. „Við Jiliðina á mér er Eliert Schram en við þrfr vorum allir miklir áhugamenn um zetuna. Þetta voru ekki svo langar umræður. Vorum nokkrir sem töluðum fyrir þessu - aðallega ég, Stefán og Ellert." Sverrir segist hafa lagt tillögu fyrir Alþingi um að taka zetuna aftur inn í hið ritaða mál. Sú tillaga hafi verið samþykkt af meirihluta þingmanna og send ríkisstjóminni. „Vilhjálmur Hjálmarsson var menntamálaráðherra á þess- um árum og fékk tillöguna í hendumar," segir Sverrir. „Hann foráttaði hana hins vegar og mér fannst afskaplega ósvífið að hann skyldi ekki fara að vilja Alþingis. Málið datt dautt niður og ekkert meira var að gert.“ Á myndinni sést greinilega að þingmenn í salnum hlusta á Stefán Jónsson af athygli. Sverr- ir segir þá tvo hafa verið góða kunningja og gerir því skóna að Stefán hafi verið að segja skemmtisögu í púltinu. ,Ég og Stefán vomm miklir kunningjar. Fómm oft í laxveið- ar - allt þar til hann missti heilsuna," segir Sverrir sem er þessa dagana staddur vestur í Isafjarðardjúpi að gera bátinn sinn kláran í veiðar. „Það hefur verið nóg að gera. Búinn að skrapa og mála bátinn minn og stefni á að sjósetja hann næstu daga. Þá fer ég og veiði á handfæri og verð lögum samkvæmt neydd- ur til að éta allt sem ég fiska." Spurning dagsins ____________________Frammistaða ís- lenska landsliðsins gegn Englendingum? Iforum hrikalega daprir „Vorum alveg hrikalega daprir, þetta heföi alveg eins getað farið í tveggja stafa tölu. Það er kannski ekki við öðru að búast þegar við erum aö spila gegn svona liði en við þurfum sterkan leikmannakjarna, menn sem eru í úrvaldsdeild í Evrópu. Við erum ekki lengur með svona kvalitet spilara eins og Ásgeir og Arnór og sumir í íslenska liðinu voru bara ekkiileikæfingu." Hermann Gunnarson, fyrrverandi knattspyrnuhetja „Þeirhefðu get- að gert betur. Þeirhefðu get- að gert miklu betur. Þetta var óþarflega vina- legur leikur og tapið alltofstórt." Guðjón Þórðason, knatt- spyrnuþjálfari „Mér fannst hún slök. Ég er ekki ánægður með varnarleikinn hjá liðinu. Annars tek ég ekki mark á svona æf- ingaleikjum. Þjálfararnir voru að reyna ákveðna hluti sem gengu ekki upp og það verður bara að læra afþví. Það er ekki hægt að kenna nein- um um en leikurinn var slakur hjá okkur." Bjarni Felixsson, íþrótta- fréttamaður „Veistu það, ég horfði ekki einu sinni á leikinn. Leiðin- legasta sem ég gerierað horfa á ein- hverja karlpunga hlaupa á eftir tuðru. Töpuðum við 6-1? Þetta eru nú meiru aumingjarnir." Ragnheiður Guðnadóttir, fegurðadrottning. „Ég sánú bara hluta afleikn- um. Voru þeir ekki bara hel- víti góðir? Þeir skoruðu eitt mark sem mér fannst helvíti gott. Svolítið stórt taþ að vísu en gegn Englendingum er það bara ágætt." Laddi, leikari og grínisti íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 6-1 fyrir Englendingum í vináttulandsleik síðastliðinn laugardag. Moussaieff og dýrin H ■ Jeffrey Moussaieff Gaf I Freud upp á bátinn en sneri ^ sér að sálarlífi svina - og ann- arra dýra. Af hverju gráta þau? Einn frægasti höf- undurbóka um dýr og sálarllfþeirra heitir Jeffrey Moussaieff Masson, þótt ekki vit- um við hvort hann erskyldur forsetafrú vorri. HannerBandarlkjamaður.fæddurárið 1941 og á sér nokkuð litríka sögu. Fyrst lærði hann hið fornindverska tungumál sanskrit en fór svo út i sálfræði eða öllu heldur sálgreiningu að hætti Sigmunds Freud. Náði hann töluverðum frama meðal Freudista, kynntist t.d. Önnu Freud, dótt- ur Sigmunds, og var falið að ritstýra hluta af bréfasafni meistarans. Þar kom hins vegar að Moussaiefftók að efast umýmsar afkenning- um Freuds. A6 ásteytingarsteini milli hans og sanntrúaðra Freudista urðu kenningar Freuds um dulda kynhvöt ungra barna sem hann sagði birtast i dulbúnum kynlifsfantasium. Til- greindi hannmörg dæmi um slikt í ýmsum verkum. Moussaieff hélt því hins vegar fram að I raun væri um að ræða minningar barnanna um kynferðislega misnotkun fullorðinna en þá (fyrir 1980) lá slíkt enn að mestu i þagnargildi. Freudistar reidd- ust Moussaieff mjög fyrir að bera brigðurá kenningar meist- arans, hann var rekinn frá rit- stjórnarstörfum sínum og stóð I háværum blaðadeilum misserum saman. Um sama leyti var hann tekinn að efast stór- lega um gildt sálgreiningar yfírleitt - \ þess ferlis þegar „sjúklingar" sækja reglulega fundi til sálgreinanda síns og rekja þar erfiðleika slna I bernsku, dul- búna kynllfsóra o.s.frv. Moussaieffsneri þvl gersamlega við blaðinu, missti áhugann á sálarlífi manneskjunnar og fór að skrifa bækur um sálarllfdýra I staðinn. Hefur hann skrifað ótal bækur um þau efni, sem heita alltfrá Hundar Ijúga aldrei um ástina, Þegar fílar gráta: tilfinn- ingalífdýranna, Svlnið sem söng til tunglsins: tilfmningallf húsdýra, Nlu tilfínningallf katta til Fegurð skepnanna: sögur afdýrum sem völdu að gera góðverk. Bækurnar eru mjög vinsælar en nokkuð er umdeilt hversu djúp sú sálarfræði er sem þar birtist. Þá vakti lika mikla athygli bóksem Moussaieff skrifaði um mann sem hafði mikil áhrifá fjölskyldu hans I æsku með indverskættuöu dulspekikjaftæði. Hún hét Gúru föðurmíns. ÁSTRÍÐAN KNYR VERÖLDINA ÁFRAM. ÁSTIN \ GF.RIR I IANA BARA SOl.DID ÖRUGGARI. Vertu svalur... ...notaðu vatn! Þeir eru bræður Ginsengsalinn alþingismaðurínn Siguröur Þórðarson og Sigurjón Þórðarson eru bræð- ur. Sigurður selur þjóðinni hið meinholla efni Rautt Kóreu ginseng en Sigurjón bróðir hans selur þjóðinni stefnu Frjálslynda flokksins á Alþingi. Þeir eru fæddir og uppaldir IAusturbænum, nánar tiltekið á Leifs- götunni og stefndu víst ekki á þau störfsem þeir stunda nú. Blaðið hefur„áreiðanlegar“ heimildir fyrir því að báðir ætluðu þeir sér að verða slökkviliðsmenn þegarþeir voru strákar. Þeir eiga það sameiginlegt I dag að vera báðirframarlega í starfi Ásatrúarsafnaðarins. vö waterchiU Task bíður uppá ótrúlegt úrval af vatnskælibúnaði! »b: ...blautasta tölvusjoppan TASK Tölvuverslun - Armúla 42 - s: 588 1000 - www.task.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.