Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ2004 Fréttir DV Viktoria hann- arskó Viktoria Becham hefur nú ákveðið að hanna skó. Fatamerkið Gina kom að máli við kryddstúlkuna fyr- verandi og bað hana að hanna nýja f MI línu sem myndi rjjtm.'.. -r bera nafn hennar. Vinur sönfikonunn- ar segir að Viktoria hafi stokkið á tækifærið og sé þegar byrjuð að velta fyrir sér hugmyndum að nýrri skólínu. „Hún elskar skó," sagði vinurinn. Viktoria Beckham varð vitni að því þegar íslendingar töpuðu 6- 1 fyrir Englendingum og var hún víst mjög stolt af eigin- manni sínum David Beck- ham og enska landsliðinu. Klámsíður vinsælastar Nú hefur fyrirtækið Hitwise Inc. sem sérhæfir sig í rannsóknum á netnotkun komist að því að klámsíð- ur á Netinu fá langtum fleiri heimsóknir en vin- sælustu leitarvél- arnar. 18.8% bandarískra netverja heim- sækja síður sem eru skil- greindar sem fullorðinssíð- ur en 5.5% heimsókna eru á venjulegar leitarsíður eins og Google og Yahoo. Bræðslumenn vígreifir Síðastliðinn fimmtudag skrifaði samninganefnd AFLS, starfsgreinafélags, undir nýjan kjarasamning starfsmanna í fiskimjöls- verksmiðjum á Austurlandi. Áður höfðu forsvarsmenn Alþýðusambands Austur- lands skrifað undir samning fyrir þennan hóp án heim- ildar samninganefndarinnar en sá samningur var kol- felldur í atkvæðagreiðslu, 60 starfsmenn greiddu atkvæði gegn þeim samningi en að- eins 8 starfsmenn sam- þykktu hann. f kjölfarið dró AFL samningsumboð sitt til baka ffá ASA og hélt eitt að samningaborðinu. Kosið verður um samningin á næstu dögum. Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri BM-Vallár Víglundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri BM-Vallár, er drffandi og ákveðinn forsvars- maður sinnar atvinnustarf- semi. Viglundur er atorkusam- ur í þátttöku sinni I samtökum atvinnurekenda. Árni Jón Straumberg, fjölskyldufaöir í Vogunum. drap rottu úti á miðri götu og segist hafa séð til fleiri á síðustu dögum. Framkvæmdir borgaryfirvalda við hol- ræsagerð í nágrenninu hafa líklega valdið því að rotturnar eru á sveimi í hverfinu. Árni Jón Straumberg, fjölskyldufaðir í Vogunum, lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að þurfa að drepa rottu úti á miðri götu í Nökkvavogi þar sem hann býr. „Það er alvarlegt mál að fá þessi óféti inn í stórt barnahverfi eins og Vogarnir eru orðnir núna,“ segir Árni Jón. „Fyrir utan að drepa þessa rottu hef ég séð til ann- arrar hér í götunni. Ég hef verið búsettur hér í Vogunum undan- farin tvö ár og þetta er í fyrsta skipti sem ég verð var við rottur." Árni Jón Straumberg, fjölskyldu- faðir í Vogunum, lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að þurfa að drepa rottu út á miðri götu í Nökkvavogi þar sem hann býr. „Það er alvarlegt mál að fá þessi óféti inn í stórt barnahverfi eins og Vogarnir eru orðnir núna,“ segir Árni Jón. „Fyrir utan að drepa þessa rottu hef ég séð til annarrar hér í götunni. Ég hef verið búsettur hér í Vogunum undanfarin tvö ár og þetta er í fyrsta skipti sem ég verð var við rottur." Árni segir að sennilega hafi fram- kvæmdir borgaryfirvalda í nærliggj- andi götum í Vogunum orðið þess valdandi að rottur eru nú á sveimi í hverfinu. í kringum Skeiðavoginn sem er næsta gata við Nökkvavog eru m.a. umfangsmiklar holræsa- framkvæmdir í gangi og þvf mikið grafið upp af jarðvegi. Kallar á viðbrögð „Ég held að þessar framkvæmdir í nágrenninu liljóti að vera ástæða þess að við sjáum rottur hér útivið," segirÁrni Jón. „Ef þetta sem ég sá og drap er ekki eitt einangrað tilfelli hljótum við sem búum í hverfinu að kalla eftir viðbrögðum frá borgaryf- irvöldum. Vogarnir eru orðnir mikið barnahverfi að nýju. Bara í götunni sem ég bý eru nokkrir tugir barna búsett og flest í yngri kantinum. Þetta eru allt frá kornabörnum og upp í níu til tiu ára krakka. Það er al- veg ótækt ef mikið er um rottur í slíku hverfi því það er vitað að þær geta verið árásargjarnar. Og ef þær ná að bíta smábörn getur það valdið mikilli smithættu." Áhyggjur Árni Jón segir ennfremur að það sé fyllsta ástæða til að vara aðra íbúa í Vogunum, og þá einkum svæðinu í kringum Skeiðavoginn, að hafa aug- un hjá sér ef böm þeirra em útvið að leika sér. „Ég held að það sé ástæða fyrir foreldra að hafa áhyggjur af ef rottur em á sveimi í ná- grenninu.", segir hann. „Maðurinn sem býr hér á móti mér í götunni segir einnig að hann hafi séð rottur í göt- unni og hann bendir á að fyrir nokkrum ámm þegar svipaðar ffamkvæmdir vom í Gnoðavogi hafi allt fyllst af rottum hér tímabundið. Þannig að vandamálið virðist vera að koma upp aftur." Helga Finnsdóttir, dýralæknir, segir rottufaraldurinn vandamál sem snýr að heilbrigðiseftirlitinu. Kristófer Arnar Kristófer Arnar, tveggja ára sonur Árna Jóns, ásamt rottu- hræinu. DV-mynd Stefán. v.-. „Svona rottur geta borið með sér smitsjúkdóma og bitið mann ef maður tekur þær upp,“ segir Helga. „Sérstaklega er varasamt fyrir börn að koma nálægt þeim." Helga ráð- leggur fólki að láta rotturnar eiga sig og hringja í heilbrigðiseftirlitið sér til hjálpar. Bandarískir hermenn misþyrmdu og niðurlægöu danskan fanga i Afganistan Skopuðust að kyn- færum fangans Guantanamo Enn er föngum haldiö án dóms og lagaáKúbu. Danskur maður að nafni Slimane Hadj Abderrahmane segir í viðtali við Politiken að hann hafi verið pyntaður af bandarískum hermönn- um þegar hann var í haldi í Afganist- an. Maðurinn segir í viðtahnu að sér hafi verið misþyrmt með svipuðum hætti og íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu. Áður en maðurinn var sendur í fangelsið við Guantanamo-flóa skopuð- ust bandarísku hermennirnir að kynfærum hans á meðan hann sat nakinn og bundinn en einnig segir hann frá því að hann hafi verið rakaður og svo barinn í höfuðið með rakvélinni. Málið hefur vakið usla í danska þinginu og stjórnarandstaðan furðar sig á því að fanginn hafi ekki komið fyrr ffam með ásakanirnar. Forsetakosningar í Bandaríkjunum: Kerry aflýsir kosningafundum John Kerry forsetaframbjóðandi hefur ákveðið að aflýsa kosninga- fundum næstu dagana vegna frá- falls Ronalds Reagan fyrrum for- seta Bandaríkjanna. „Við vorum yf- irleitt ósammála um ýmsa hluti en komum alltaf fram við hvorn ann- an af virðingu. Ég tel að forsetinn hafi verið hugsjónamaður og bjart- sýnn á möguleika bandarísku þjóð- arinnar sem er nauðsynlegt hverj- um forseta. Við munum sakna hans, sama hvaða pólitísku skoð- anir hann hafði, hann var leiðtogi og við munum sakna hans," sagði Kerry við blaðamenn eftir að hafa sótt messu. John Kerry Heiðrarminningu Ronalds Reagan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.