Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Blaðsíða 15
UV Fréttir MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ2004 15 Nafni Valerie Plame, leynilegs starfsmanns CIA, var lekið úr Hvíta húsinu í fyrra. Töldu margir að lekinn væri hefnd vegna þess að eiginmaður Plame, Joseph Wilson, gagnrýndi stjórnvöld fyrir að ljúga til um vopnakaup Saddams Hussein Rannsókn á lekanum stendur sem hæst en það er refsivert að gefa upp nafn CIA-starfsmanns. Ódýrfórn Tony Blair, forsætisráð- herra Breta, sagði afsögn George Tenets, forstjóra CIA, sem kom mörgum á óvart, vera af persónulegum ástæðum. Sama sagði Tenet en þessi skýring þykir af mörgum hæpin. Iiklegra þykir að hin harða gagnrýni sem leyniþjónustan hefur þurft að þola vegna upplýs- inga eða upplýsingaleysis skömmu fýrir árásirnar 11. september og svo öll vit- leysan sem var á borð borin um gereyðingarvopnaeign Saddams Husseins sé ástæða afsagnarinnar. Von er á ítarlegri skýrslu um árásirnar 11. september eft- ir fáeinar vikur og þykir víst að CIA fái þar harða gagn- rýni. Fréttaskýrendur í Evr- ópu segja að Tenet hafi ver- ið fórnað og um sé að ræða „ódýra fóm“ af hálfu Bush. Níu féllu í sprengju- árás Níu manns létu lífið 1 sprengjuárás sem gerð var á útimarkað 1 borg- inni Samara í Suður- Rússlandi. Að minnsta kosti þrjátíu manns slös- uðust í árásinni. Ekki er vitað hverjir stóðu að árásinni en grunur leikur á að tsjetsjenskir skæra- liðar kunni að hafa verið að verki. Annars munu sprengingar af þessu tagi ekki óalgengar á úti- mörkuðum á þessum slóðum og er ástæðan þá gjarna viðskiptalegur ágreiningur meðal kaup- mannanna. Blóðbaðsins minnst Fimmtán ár era liðin frá því þúsundir námsmanna og óbreyttra borgara vora drepnir á Torgi hins himneska friðar í Peking í Kína. Milljónir Kínverjar höfðu þyrpst út á götur og stræti til að boða frelsi og mannréttindi í heimalandi sínu. Uppreisnin var snögglega brotin á bak aftur og skriðdrekar sendir inn á torgið. Búist er við að mikill fjöldi fólks muni koma sam- an á torginu í dag - þrátt fyrir gríðarlegan viðbúnað lögreglu og hers. Heimildir herma að fjöldi lýðræðis- sinna hafi verið tekinn höndum undanfama daga til að forða því að þeir geti minnst atburðarins. Bush ræður einkalög- Ming vegna leka George Bush hefur ráðið einkalögfræðing vegna rannsóknar dómsmálaráðuneytisins á leka úr Hvíta húsinu í fyrra. Lekinn snýr að því að nafn Valerie Plame birtist skyndilega í fjölmiðlum en hún var innsti koppur í búri hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA, og vann að ýmsum leynilegum verkefnum - meðal annars er varða gereyðing- arvopn. Það að forsetinn skuli hafa ráð- ið James Sharp sem einkalögfræð- ing þykir benda til þess að hann sé áhyggjnfuUur vegna málsins. Það er lögbrot að gefa upp nafn starfs- manns CIA og vitað er að lekinn kom úr Hvíta húsinu en ákvörðun Bush nú þykir merki um að bönd- fölsuð. Þrátt fyrir þessar upplýs- ingar notaði Bush þetta í stefriu- ræðu sinni í fyrra sem eina af rök- semdum þess að irmrás í írak væri réttlætanleg. Nafni Valerie var lek- ið eftir að Wilson lét í ljós gagnrýni og töldu margir fréttaskýrendur að málið „lyktaði af hefnd". Wilson talaði við fjölmiðla í gær og kvaðst ekki hafa skýringu á ákvörðun forsetans. Hann er nú á ferð um Bandaríkin til að kynna nýja bók sína en hún fjallar um lygar Bandaríkjastjórnar til að rétt- læta Íraksstríðið og hvernig eigin- kona hans var svikin. Það að forsetinn skuli hafa ráðið James Sharp sem einkalögfræðing þykir benda tilþess að hann sé áhyggjufullur vegna málsins. in séu farin að beinast að æðstu mönnum. „Ég vil heyra sannleik- ann og mun leggja mitt af mörkum til að það takist," segir Bush en hann kvaðst ekkert vita um upp- runa lekans. Lekinn kom í kjölfar þess að Joseph Wilson, fyrrverandi sendi- herra, sagði George Bush hafa far- ið rangt með staðreyndir um vopnakaup Saddams Hussein í Níger. Wilson, sem er eiginmaður Valerie Plame, hafði sjálfur verið sendur til Níger árið 2002 til að kanna hvað væri hæft í því að frak- ar væra að kaupa úran þar í landi. Niðurstaða hans var sú að skjöl sem sýndu ffam á að þetta væra Ákvörðun Bush um að hafa lög- fræðing til taks hefur vakið upp spurningar um hugsanlega aðild hans að málinu. „Ég varð mjög hissa þegar ég heyrði þetta," segir Paul Roth- stein, lagaprófessor við George- town-háskóla. „Við hljótum að túlka þetta þannig að það séu ein- hverjar líkur að forsetinn eigi ein- hvern hlut að máli.“ Embættismenn í Hvíta húsinu hafa ekki gefið skýringar á hvers vegna Bush þarfhast hugsanlega lögmans. Þá gaf talsmaður vara- forsetans f skyn að Cheney hefði haft samband við lögmann vegna málsins. George Bush Seg- istætlaaðleggia i sitt af mörkum til að upp komist hver lak 1 upplý5'n9um ur I Hvíta húsinu. Reykingabann á almenningsstöðum talið verða eitt af baráttumálum Verkamannaflokksins England með reykbann í kjölfar Noregs Tony Blair tilkynnti í viðtali á BBC sjónvarpsstöðinni að ákvörðunar um bann við reykingum á enskum kaffihúsum, veitingastöðum og skemmtistöðum væri að vænta á næstu mánuðum. „Það deilir enginn um skaðsemi reykinga," sagði Blair sem sjálfur hætti að reykja daginn sem hann gifti sig. „Ég tel að þeir sem reykja ekki myndu frekar vilja vera í reyklausu umhverfi." Þessi ákvörðun Blairs er vatn á myllur Rey kingabann Bretar hyggjast nú fylgja Norðmönnum eftir og banna reykingar. tóbaksvamarfólks um ailan heim og kemur í kjölfar banns á reykingum á almenningsstöðum í Noregi, New York og Dublin. Ráðherrar í Bret- landi hafa til þessa verið tregir til að setja slík lög um reykingar og flestir hafa talið að það ætti að grípa til annarra leiða en lögbanns. „Þetta er mjög viðkvæmt mál,“ sagði Blair sem hyggst leita stuðnings hjá bæj- arstjómum og hverfasam- tökum. Samtök reykinga- --------- manna segjast ætla að berj- ast gegn lögbanninu. Tony Blair fhugarað gera reykbann að kosningamáli. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ýV Rafmagnsgítar _/y magnari poki, ól- snúra -stillir i og auka Söngkerfi Trommusett frá frá 59.900,- 49.900,- stgr. Gítarðnn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is Klassískir gítarar frá 9.900,- stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.