Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Side 21
DV Sport MÁNUDAGUR 7. JÚNI2004 21 íslenska landsliðið í knattspyrnu fékk háðulega útreið gegn Englendingum í Manchester á laugardag Flugferðin hjá íslensku landsliðsmönnunum í knattspyrnu frá Manchester hefur ekki verið þægileg enda voru þeir flengdir fast af enska landsliðinu á City of Manchester-leikvanginum á laugardag. Það stóð ekki steinn yfir steini í leik íslenska landsliðsins og má með sanni segja að kviknað hafi á aðvörunarbjöllum í ölium hornum. Landsliðsþjálfararnir standa uppi með fleiri spurningar en svör eftir Manchester-mótið og ljóst að margt þarf að laga í sumar ef ekki á að fara verr í ágúst er ítalir koma í heimsókn á Laugardalsvöllinn. Butt leit út eins og Franz Beckenbauer í síðari hálfleik þegar hann fékk að dæla boltum út um allan völl án þess að nokkur maður gerði tflraun til þess að trufla hann. Vængspilið gekk ágætlega vinstra megin en lítið var að gerast hægra megin. Sóknarleikurinn var síðan eftir miðjuspilinu. Þar var einn maður að vinna en annar í feluleik. Það verður að segjast eins og er að Uðið var eins og höfuðlaus her inni á vellinum. Eiður teymir liðið áfram með leik sínum en er minna fyrir að öskra menn áfram. Engin stjórnun var á vörninni og þar vantar sárlega leiðtoga. Liðið er einnig leiðtogalaust á miðjunni og menn eru hreinlega hver að gaufa í sínu homi. Svo verður að setja spurningar- merki við tæklingabann landsliðs- þjálfaranna. Vissulega getum við verið án tveggja fóta tæklinga, eins og Brynjar Björn bauð upp á gegn Japönum, en það var engin ástæða að umgangast ensku stjömurnar eins og postulínsstyttur. Eflaust unnum við okkur inn einhver stig hjá Sven-Göran og enska knatt- spyrnusambandinu með góðri hegðun en öllu má nú ofgera. Ef menn em farnir að leika eftir fyrirmælum andstæðingana þá em menn komnir á hættulega braut. Þessi góðgerðarstarfsemi í þágu enska landsliðsins var ekki holl fyrir íslenska landshðið og færir okkur enga virðingu. Verk að vinna Landsliðsþjálfaramir hafa talað um að góður undirbúningur sé grundvöllur þess að ná árangri og Mauchester-mótið átti að vera eitt af lykilatriðunum í undirbúningnum fyrir HM-slaginn Síðustu leikir hafa verið notaðir til þess að styrkja stoðir þess leikkerfis sem liðið spilar og það var opinber stefna að nota þessa leiki líka í það. Því er það úr öllum takti hjá landsliðs- þjálfurunum að fara í einhverja tilrauna- starfsemi gegn Eng- lendingum á útivelli, og í ratm óskiljanlegt. Það verður mikið verk að laga það sem illa fór í þessum leik, enda komu í ljós margar holur og djúpar, en vonandi verður þetta „slys“ mönnum víti til varnaðar. henry@dv.is ITíminn tifar Þoð er verk að vinna hjá Ásgeiri Sigurvinssyni og meðreiðarsveini hans, Loga Ólafssyni, fyrir landsleikinn gegn Itölum sem fram fer I ágúst. Alit tal um óheppni eftir þennan leik er innantómt hjal og kjaftæði. Staðreyndin er að íslenska liðið var stálheppið að tapa leiknum ekki stærra því enginn skortur var á dauðafærunum sem enska lands- liðinu vom afhent á silfurfati. Varnarleikur liðsins var í besta falli skelfilegur. Það var ekki að sjá að þar fæm menn sem hefðu það að atvinnu að verjast því þeir vom oft eins og lítil börn í höndum ensku landsliðsmannanna. Trekk í trekk gerðu varnar- mennirnir sig seka um byrjenda- mistök þegar þeir horfðu á boltann og gleymdu manninum sem þeir áttu að dekka. Ekki var hægt að sjá að þeir töluðu nokkuð saman því annað hvort vom þeir þrír að dekka mann eða enginn var að dekka mann. Dekkningin út leikinn var hreinlega til skammar og má mikið vera ef ákveðnir leikmenn spiluðu sig ekki út úr landsliðinu í þessum leik. Dáðust að Beckham Ekki var ástandið mikið betra á miðjunni. Þar skiluðu menn bolta frá sér seint og illa. Sýndu ensku leikmönnunum allt of mikla virðingu, horfðu á þá og dáðust að í stað þess að taka af þeim boltann. Miðjumenn enska liðsins fengu að vinna óáreittir aflan leikinn. Svo mikinn tíma fengu þeir að Nicky ívar Ingimarsson ívar átti alveg skelfilegan dag eftir nokkuö góða byrjun. Dekkaði hræðilega og leit oft á tíðum út eins og nýliði. Átti mjög vont mót og það er kraftaverk efhann heldur sæti sinu. Hermann Hreiðarsson Var óvenju daufur bæði í leik og fasi. Tók engar afsinum frægu rispum upp völlinn og var ímiklu basli varnarlega. Leit mjög illa út þegar Neville valsaði fram hjá honum í öðru markinu. Pétur Marteinsson Ekki að finna sig íhjarta varnarinnar. Var oft á tíðum úti á túni í dekkningum og stýrði vörninni illa. Fór af velli í hálfleik fyrir Kristján Sigurðs- son sem stóð vaktina ívið betur. Þórður Guðjónsson Þórður var engan veginn að finna sig í Manchester. Sendingar slakar, rispur engar og virkaði hálfandlaus. Landsliðið leikur sjaldan vel þegar hann fínnur sig ekki. Einkunnirleikmanna Stóðst prófíð Fall- einkunn Árni GauturArason Fékk á sig sex mörk. Hefði getað gert betur i sumum þeirra, sérstaklega þegar Bridge skoraði. Virkaði óöruggur og staðsetn- ingar voru ekki góðar. Getur mun betur. Indriði Sigurðsson Mjög góður leikur hjá Indriða. Gerði grín að Gary Neville og var með fínar sendingar i teiginn sem sköpuðu oft usla. Skilaði varnar- hlutverkinu einnig með sóma. Jóhannes Karl Guðjónsson Skilaði lélegri varnarvinnu, fáar sendingar gengu upp og var vart hálfur maður i tæklingabanni. Vann sér ekkert svæði og sá í raun aldrei til sólar. Eiður Smári Guðjohnsen Var ekki að fínna sig vel framan afí nýrri stöðu. Vann sig ágætlega inn í leikinn, sýndi lipra takta og það litla sem gerðist sóknarlega hjá liðinu var Eiði að þakka. Helgi Sigurðsson Var ósýnilegur þann tíma sem hann var inni á vellinum. Vann sér ekkert svæði, engin návígi. kom sér ekki í nein færi og tók i raun engan þátt í þessum leik. Heiðar Helguson Skilaði sínu eins og venjulega. Skoraði mark, var sífellt að áreita ensku varnarmennina og sá til þess að þeir gátu aldrei slakað á. Hafði úr litlu að moðu en vann vel úr sinu. ð Arnar Grétarsson Mjög vondur leikur hjá Arnari. Var engin fyrir- staða varnarlega og skilaði bolta mjög seint frá sér. Drap nánast alla möguieika á hröðum upp- hlaupum með þvíað klappa boltanum oflengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.