Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Qupperneq 39
August 28. Boðun konúngs, um að hann sé heim kominn
og hafi tekið við stjórn.
Til yfirskonunarmanna á iandsreikníngunum voru kosnir
þeir Dr. Grímur Thomsen á Bessastöðum, og Magnús
Stephensen yfirdómari, með 1000 kr. þóknun hvor um sig.
Um amtmanna embættin skoraði alþíng á landshöfðíngja,
að hlutast til um, að þessi embætti yrði ekki veitt þegar
þau losna, heldur settir menn til að þjóna þeim, og svo
íyrir komið, að þau leggist niður við íyrstu hentygleika.
Um byggíng þjóðjarða var sú ályktun gjör, að úmboðs-
menn og hreppsnefndir gefi skýrslur um hverja jörð,
og sé því safnað til næsta alþíngis.
— s. d. Um póstgufuskipsferðirnar skoraði alþíng á stjórnar-
herrann og landshöfðíngjann, að láta haga ferðunum eptir-
ieiðis samkvæmt aðaláætlun þíngsins sem fylgdi frumvarpi
fjárlaganna fyrir 1878 og 1879, og gefur heimild til að verja
3000 krónum hvort árið til þess, framyfir 15.000 krónur.
— s. d. Póstgufuskipið Valdemar kom til Reykjavíkur í
fjórðu ferð; fór aptur 5. September.
— s. d. Randrup lyfsali fór með fólk sitt alfarinn frá Reykja-
vík. Kríiger frá Slesvlk tók við lyfsölubúðinm og hafði
keypt hana fyrir 50,000 krónur; settist hann að í Reykjavík.
— s. d. Landshöfðínginn veitir Birni ritstióra Jónssyni styrk
til að láta prenta kennslubækur eptir Benedikt Gröndal
í Dýrafræði og Steinafræði.
— 29. Askorun forstöðunefndar í þjóðvinafélaginu og Jóns
Sigurðssonar á Gautlöndum til að fá almenn samskot
til að bæta upp það sem vantaði til að fylla kostnaðinn
til þíngvalla-hátíðar 2. August 1874.
— 30. Alþíngi var sagt slitið; hafði það staðið síðan 2.
Juli, rétta 60 daga alls, eða 52 virka daga; fundir í neðri
deildinni urðu 60, í efri deild 52, en 3 í sameinuðu alþíngi;
þar komu fram 19 lagafrumvörp frá stjórninni, voru n lög-
tekin en 8 ónýttust; frá þíngmönnum 66 lagafrumvörp,
19 gengu fram en 47 urðu ónýt með ymsu móti; 15
uppástúngur komu fram til ályktunar, og gengu fram 8,
en 7 ónýttust; tvær fyrirspurnir höfðu framgáng.
— s. d. Aukafunduramtsráðsinsfyrir vesturamtiðíReykjavik.
Fulltrúar voru mættir: síra Guðm. Einarsson og Hjálmar
Pétursson. Var staðfest reglugjörð fyrir Dala sýslu um
grenjaleitir (22. Juni 1876). Akveðið að leita styrks úr lands-
sjóði handa bókasafni vesturamtsins og að verja styrknum
til að búa til skápa handa bókunum og til bókakaupa. —
Fjárlögin fyrir 1878 og 1879 gjöra ráð fyrir, að tekjur
landsins verði rúmar 638,000 kr., og gjöld tæplega
598,000 kr., svo afgángs yrði um 40,000 kr.
— 30. Síldargengd töluverð um mánaðamótin í Húnavatns-
sýslu, á Skagaströnd, einnlg víða fyrir norður og austur-
landi; á Seyðisfirði fengu norskir síldarveiða menn, er
þar lágu, yfir 2000 tunnur af síld yfir sumarið.
(37)