Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Page 60

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Page 60
að haida til í Jerus&lem hjá móður Krists, nöfnu sinni, og í hennar húsi; hlaut þv! guðspjailamanninum að vera kunnugt um mart, sem hann segir frá um æfi Krists. Menn vita ekki með vissu, hvort guðspjallabók Markúsar hafi verið fyrst lesin upp í Rómaborg, Alexandríu eða Antiokíu, en það vita menn, að hann stofnaði söfnuði í Aiexandríu, og þar er sagt hann hafi dáið píslarvættisdauða fyrir sakir Jesú nafns. Majus kallar Guðbrandur biskup í almanaki sínu fardaga mánuð. Það halda sumir, að nafnið hafi uppruna sinn frá Rómverjum, af því Rómulus hefði kallað öldúngana Majores í Rómaírorg, en þjóðlýðurinn hefði haldið uppi hátíðum sínum í minníng vorsins, og kallað eptir rómverskri gyðju, sem hét Maja; hún var móðir Merkúríus. f vormánuðinum voru fléttaðir grænir blómsveigar og hengdir á húsin til prýði eða bornir um kríng! hátíðagaungum, var þá skemt sér með danzi og aliskonar leikum, en þetta var allt til vegsemdar gyðjunni Maja, svo hún skyldi blómga allt og láta allan gróður vaxa. Sumir segja og, að Jupiter hafi haft það viðurnefni að heita Majus, og þaðan sé nafnið dregið. A Norðurlöndum er vorið einkum miðað við gaukinn, því þá er hans von, þessvegna er fyrsti dagur mánaðar þessa sumstaðar kallaður Gauksmessa, og tíðkast þetta einkum í Norvegi, því þar er fyrsti dagur Maímánaðar merktur með gauksmynd á prímstöfum. Það var alþýðutrú, að gaukurinn væri spáfugl handa stúlkum, og ekki gæfusamur, helzt ef þær heyrðu til hans þegar þær voru fastandi. Gaukurinn hafði þessi spánöfn eptir því ! hverri átt til hans heyrðist, og var kallað: í norðri námsgaukur (eða nágaukur), í austri auðsgaukur, í suðri sælsgaukur (eða ságaukur), í vestri vesæls gaukur (eða vilja gaukur); sumir segja: í vestri vilja gaukur, í austri gilja gaukur. Spádómarnir fóru eptir þessu: heyrði maður gaukinn í norðri fyrsta sinn, var maður feigur (nágaukur), heyrði maður hann í suðri, var maður heppinn með kornsáð sitt (sáðgaukur eða ságaukur), heyrði maður hann í vestri, gekk manni allt að óskum (viljagaukur), heyrði maður hann í austri, gekk manni heppilega með konbænir (giljagaukur). Þannig var margskonar trú á gauksmessu. — Tveggja postula messa er kallaður fyrsti dagur Mai mánaðar, af því hann var helgaður þeim tveim postul- um, í'ilippusi og Jakobi ýngra, Alpheussyni. Filippus var frá Bethaida á Gyðlngalandi, og var fiskimaður, en hann gekk I flokk Krists einusinni, þá hann mætti honum á leiðinni til Galilea, og fylgdi honum síðan. Eptir Krists dauða fór hann til Frygjalands og kenndi þar kristna trú og eyddi goða dýrkun, en seinast var hann grýttur til dauðs í Hierapolis. — Jakob Alphæusson var fyrsti biskup í Jerusalem, en eptir að hann hafði verið biskup þar { 30 ár, var honum steypt ofan af musteris bustinni og síðan var hann grýttur til dauðs. Síðan var slegið saman helgidögum postulanna tveggja og dagurinn kallaður Tveggja postula messa eða Fhilippus og Jakobs. — Valborg eða Valpurgis var konúngs dóttir á Englandi, og varð síðan abbadís í Benediktsklaustri I Heidenheim í Bæjaralandi. (58)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.