Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Side 37

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Side 37
sóknharðari vinstrimanna. Þeir gerðust 1881 úigefendur að „Morgenbladet“ ásamt Edvard Brandes. Herup hafði á hendi ritstjórn blaðsins og fórst það mjilg vel. En ár» ið 1883 hófst missœtti með Berg og honum. Berg þótti þeir Horup og Edv. Brandes ekki nógu þjóðlegir og draga um of fram stefnu Georgs Brandesar í bókmennt- um og trúarskoðunum. Lauk ágreiningi þeirra svo, að Horup og Brandes fóru frá blaðinu. Berg og þeir, sem honum fylgdu. bundu fjelagsskap við milliflokksmenn og flokkur vinstrimanna skiptist í „danska vinstrimenn“ und- ir forustu Bergs og „Europea", sem Horup stýrði. Þetta gerðist haustið 1884. Þá stofnuðu þeir Horup og Edv. Brandes með tilstyrk ýmissa flokksmanna blaðið „Politiken“. Horup var ritstjóri þess, þar til er hann varð ráðgjafi samgöngu- málanna sumarið 1901, er vinstrimenn koriiust að stjórn- inni. Hann gerði á fáum árum „Politiken“ eitthvert hið úthreiddasta og víðlesnasta blað í Danmörku og hefur það unnið vinstri flokknum ómetanlegt gagn með því að draga Kaupmannahöfn og hina smœri kaupstaði úr höndum: hægrimanna. Á þingi gaf Horup sig mest við stjórnmálabaráttunni.. Honum var Jiingi'æðið fyrir öllu. Hann leit svo á, sem allar sáttaumleitanir með flokkunum og allar umbætur væri tómt kák, þar til er þingræðið væri fengið. Á málfundi einum í Kaupmannahöfn 1878 komst hann þannig að orði: „Fólksþingið er æðsta valdið, enginn stendur yfir því eða jafnhliða því.“ Þetta þótti furðu djarflega mælt í þá daga og hneykslaði mikillega hægi-imenn, og sumir sögðu jafn- vel, að Horup hefði spillt stórum fyrir flokknum með þess- um „digurmælum11. En hitt er víst, að með þessum orð- um bi'ýndi hann þingræðiskröfuna svo vel fyrir þjóðinni, að hún gleymdi henni ekki og í krapti hennar er frjálslyndi flokkurinn nú seztur að völdum í Danmörku. Horup var mjög fylgjandi „visnunarpólitikinni11 1881 — 1886, af því að hann ialdi það beinasta veginn iil að hrinda ráðaneytinu og koma á þingræði. En er það brást, tók hann 1887 og 1888 þáttí samkomulags-umleitunum við mótflokkinn, þótt

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.