Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Blaðsíða 62
að hann getur vel þrifist þrátt fyrir þetta og það þótt
stœrri banki kæmist á stofn við hliðina á honum og hann
getur gert landsmönnum árlega miklu meira gagn, en
nokkur önnur verzlun á landinu. Hann getur nefnilega
ávalt komið í veg fyrir það, að rentan verði há á Islandi
og séð þannig um, að landsmenn geti jafnan fengið pen-
inga að láni fyrir 4'/2 til 5% eða með mjög góðum kost-
um. Ef landsbankinn væri afnuminn og hlutatjelagsbank-
inn yrði einn um peningaverzlun laudsins, mundi rentan
verða 7 til 8% á ári og hún gæti stigið tniklu meira og
orðið versta okurrenta. Þess eru næg dæmi frá öðrum
löndum. En til ]>ess að Islendingar komist hjá allri ok-
urrentu, þarf landsbankinn jafnan að standa og á þenna
hátt getur hann enn, þrátt fyrir hið óeðlilegd haft, sem á
hann er Iagt, unnið bœndum og almenningi hið mesta
gagn. Auk þess getur veðdeild hans vaxið og einnig
sparisjóðurinn, sem er sameinaður við baanknn.
Peningaverzlun er eins auðlærð og auðskilin eins og
t. a. m.: kolaverzlun eða viðarverzlun, en fyrir oss íslend-
inga er hún miklu þýðingarmeiri, því að peningarnir eru
svo þýðingarmiklir og svo er hjer nú um útlenda einokun
að ræða, en engum hefur dottið í hug að ná einokun yfir
kolaverzlun eða viðarverzlun á Islandi. Hið eðfilega og
rjetta er, að landsmenn sjálfir eigi peningaverzlun sína;
þeir hefðu átt að gera seðla bankans innleysanlega og
stækka þann banka eptir þörfum. Þetta væri mjög hægt
að gera, ef útlendir menn hefðu ekki fengið einkarjett til
seðlaútgáfu á íslandi. Nægir peningar eru í boði með
góðum kostum. Seðlaútgáfurjett hefði enginn banki átt
að fá á íslandi, nema landsbankinn, en hinsvegar má leyfa
öðrum að setja þar peningaverzlanir á stofn eptir þörfum
og ef einhverjir vilja það, en það má eigi leyfa þeim að
gefa út gjaldmiðil (seðla).
Hið versta af öllu fyrir Islendinga sjálfa, sem hægt
er að gera í þessu máli, er að afnema landsbankann og
skyldu menn eigi ætla, að nokkur Islendingur skuli vilja
gera það, síðan vissa er fengin fyrir því, að landsbankinn
(58)