Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Page 38
hann hefði litla trú á því, að sœttir gæti tekizt. Það varð
og sú raunin á, og síðari tilraunin bakaði hon-
um óvikl méiri hluta flokksins og hann var hvorki
endurkosinn í flokksstjórnina nje til varaforseta. Makk
milliflokksmanna við hægrimenn var Horup mjög á móti
skapi, því að hann sá, sem raun varð á, að það mundi
liepta mjög framsókn vinstri flokksins. Arið 1894 hóf
hann baráttu mót milliflokksmönnum og studdi drjúgum
að ósigri þeirra 1895. Þá tóku vinstrimenn í aoaldrátt-
unum aptur upp stefnu Horups, er leiddi þá til sigurs 1901.
Þá var og annað mál, sem Horup var engu minna áhuga-
mál en þingræðið, en það var baráttan móti herskapar-
stefnu hægrimanna. Hann sá glöggt, hvílíkt tjón hún
bakaði Dönum 1864, og ljet ekki sitt eptir liggja að útrýma
henni og gera hana hlægilega. Það er alkunnugt, hvílika
bræði og gremju það vakti meðal hægrimanna, þegar
hann í fólksþinginu kastaði fram þeirri fyrirspurn um her-
skap Og viðbúnað Dana: „að hverju gagni má það verða“.
Hægri blöðin rjeðu sjer ekki fyrir reiði; liðsforingjar höfðu
í hótunum við Horup i málgögnom þeirra og hann var tal-
inn óalandi og óferjandi. Enhann ljet það ekki á sig fá, hon-
um var hitt fyrir mestu, að fá þjóðina ofan af herskapar-
tildrinu og láta hana snúa sjer að verulegum gagnsemd-
armálum. Hinu er sízt að neita, að hann gætti ekki ein-
lægt hófs eða rjettsýni í baráttunni fyrir þessum málum
og var opt helzti nærgöngull og beiskyrtur við andstæð-
inga sína.
Óvinir Horups báru honum á brýn, að hann væri and-
vígur öllum umbótum og berðist að eins fyrir völdunum.
En áburður þessi er hin mesta fjarstæða. Hann vildi
fyrst og fremst ala upp sjálfstæða kynslóð og gera Dan-
mörk að lýðfrjálsu landi með svo ríku almenningsáliti, að
engin síjórn treys’cist til þess að ganga í berhögg við þjóð-
arviljann, þegar um mikilsvarðandi mál væri að tefla. En
hins vegar fann hann, smælingjasonurinn, manna bezt.
hvar skórinn kreppti að alþýðu, og var það ríkt í huga að
bæta kjör hennar og styðja að uppgangi hennar í þegn-