Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST2004 Fyrst og fremst JXV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar: ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. þú um §■8 'WKP $ # 1 Hvað merkir F fyrir fram- an tölustafina efst á lykla- borðinu? 2 Hvað þýðir www.? 3 Hvað þýðir „spam"? 4 Hvenær fór fyrsti tölvu- vírusinn af stað? 5 Hvað hét fýrsti tölvuleik- urinn? Svör neðst á síðunni Hvað veist tolvun íslands- almanakið Almanak Háskóla ís- lands hefur komið samfellt út frá 1837 og er því eldra en Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags. Almanak Háskólans er líka nefnt ís- landsalmanakið og er nú gefið út í 4700 eintökum. Vefsíða íslandsalmanaksins hefur verið í notkun síðan í október 1999 og þar má skyggn- ast í sögu alm- anaksins, glugga í daga- töl frá 1901 og firam á næsta ár, kynna sér fingrarím og orðaskrá úr stjörnufræði. Að auki er á síðunni ýmis konar fróð- leikum um grundvöll páskareiknings, sólmyrkva á íslandi til 2200, tungl reikistjarna og lengd hænu- fetsins, svo nokkuð sé nefnt. Ýmsir útreikningar liggja svo fyrir, eins og t.d. að hvítasunnudagur verður 11. maí árið 2008 en 25. ágúst 1912barupp á sunnudag. Skólinn Að sjálfsögðu merkir orðið náms- og kennsiustofnun en líka stefnu eða kenn- ingu, oftastí hugvísindum. Frændur okkar Færeyingar segja skúli, Norðmenn skule, Svíar skola og Danir skole. Forðum létu Grikkir skhole merkja frí frá starfi eða tóm- stundaiðju en meöal Rómverja þýddi scola hins vegarskóli eins og hjá okkur. Þaðan ferðað- ist orðið inn I fornensku og varð að scol en á miðlág- þýsku varð það að schoele og þaðan þáðu norrænir menn sína skóla. Málið 1. F stendur fyrir function og afmarkar að- gerðarhnappana. 2. World Wide Web eða veraldarvefur. 3. Sp(iced) (h)am eða krydd- uð skinka i niðursuðudós. Notað yfir rusl- póst á netinu. 4. 1987 frá Pakistan. 5. Spacewar! 1962. Frægt fólk í Reykjavík ISpurningu dagsins hér í blaðinu í gær var spurt „Hver er frægasta manneskja sem þú hefur hitt?“ Þetta er klassísk spurning sem hefúr verið brúkuð áður í ís- lenskum blöðum - og skilar oftast einhverju skemmtiiegu því hversu við viljum trúa því heitt að „fræga fúlkið“ sé bara eins og við hin og ekki hútinu merkilegra, þá blundar nú samt í okkur öllum að hafa svolítið gam- an af fræga fúlkinu - og ekkert nema gott um það að segja, þrúist það ekki út í einbert snobberí. í blaðinu í gær kom í ljús að Karl Ingi Karls- son túnlistarmaður taldi sig hafa komist næst í snertingu við heimsfrægðina þegar hann hitti Iggy Pop næstum því; Birgir Niel- sen trommuleikari hafði hitt Fats Domino; Bjarni Benediktsson þingmaður hafði séð Michael Jordan í körfuboltaleik suður á Flúrída; Telma Ágústsdúttir söngkona hafði séð Damon Albarn en ekki hitt hann en aft- ur á múti spjallað við Olsen-bræður og Fanney Frímannsdúttir fegurðardrottning hafði engan frægan hitt en langaði mest að hitta Guð. Og gefi Guð sjálfur að bið verði á því, stúlkunnar vegna. Sjálfum hefði mér farið eins og Karli Inga og neyðst til að svara spurningunni á þann veg að ég hefði einu sinni næstum því hitt Samuel Beckett en þá sögu hef ég sagt svo oft að ég endurtek hana ekki hér. Hér uppi á blaðinu hitti ég mann sem hafði farið í bæinn í gær og hitt Bill Clinton á gönguferð um Austurstræti. Og virtist Bill hinn kátasti. Sami maður hafði rekist á Lou Reed fáeinum dægrum fyrr. Og var himinlifandi: „Reykjavík er að verða eins og heimsborg." Æ, já, líklega er það svo. Víst mun okkur þú enn um sinn þykja fréttnæmt að George Clooney sé staddur í Bláa lúninu eða Harrison Ford fari hér reglulega út á lífið. Og munu ábyggiiega einhverjir verða til þess að fár- ast yfir því að þetta skuli vekja athygli og fúlki skuli þykja þetta merkilegt og fjölmiðlar eltist við slíkar fr éttir. En fyrir minn smekk gat ég samt ekki annað en haft gaman afþví gar dúttir mín kom neðan úr bæ í gær og hafði þá lflca hitt Bill Clinton - að þessu sinni í Eymundsson. Og fannst merkilegast að Clinton, sem alltaf virkar afar hávaxinn maður í sjúnvarpinu innan um aðra ráðamenn, hefði virst varla nema rétt rúmlega meðalmaður á hæð. Illugi Jökulsson K0NAN A BÆJARINS BESTU var glöð. Aldrei þessu vant var engin röð hjá henni en þá bar þar að vaskan karl sem ákvað að smakka hvað hún hafði upp á að bjóða. Hann vatt sér að sölulúgunni og fékk sér eina. Hann treysti sér ekki til að panta annað en sinnep á hana. Hann þurfti ekkert að borga. Fyrrverandi Bandaríkjaforseti sleppur við svo- leiðis smáræði. Gunnar ljósmyndari slapp líka og fékk sér eina með öllu. Við hin þurftum að borga. Þarna stóðum við við Bæjarins bestu og Bill Clinton fékk sér pulsu. VIÐ FRÉTTUM EFTIR A að honum hefði fundist hún góð. Það sögðu bæði bflstjórinn hans og blaðafull- trúi bandaríska sendiráðsins. Það voru fleiri glaðir. Eiginlega voru bara allir meira og minna glað- ir í bænum í gær,.Bill CUnton ákvað að tölta um bæinn í góða veðrinu, heilsaði öUum og leyfði fólki að smella af sér myndum. Vinur hans sagði hann bara hafa svona gaman af fólki. Hann væri ekkert þreyttur á ónæðinu. ÓLÖF í KIRSUBERJATRÉINU kiknaði í hnjánum. Clinton hafði komið inn og keypt fyrir 26.600 krónur. Skálar Valdísar Harrýsdóttur sem eru bún- ar til úr grænmeti heilluðu forsetann þannig að hann keypti bara allt klabbið. Hjálparkokkur hans borg- aði fyrir hann og bar pokana. Svo fór Clinton á Listasafn Reykjavfloir. Fyrst og fremst DAVÍÐ 0DDSS0N VAR SV0 GLAÐUR að hitta BUl og Hfllary að hann talaði um að hann yrði fljótari að ná bata. Ólafur Ragnar var glaður eftir fund- inn þar sem þau fjögur, Ólafur, Dor- rit, Bfll og HUlary ræddu um orku- mál og baráttuna gegn alnæmi. Dorrit var líka brosandi. GLAÐASTUR AF ÖLLUM var lfldega Sjafnar Gunnarsson. Hann átti af- mæli og aðaláhugamál hans eru bandarískir forsetar. AðaUega BiU Clinton. Hann gaf Clinton mynd af honum. Þessi einhverfi drengur sagði að hann hefði aUs ekki átt von á því að hitta goðið sitt nokkurn tím- ann. AfmæUsgjöfin hans var draum- ur sem rættist. EIGINLEGA V0RU BARA ALLIR GLAÐIR. Einhver umdeUdasti stjórnmála- maður heims kom í bæinn og gerði pulsusölukonur jafnt sem forsætis- ráðherra glaða. Hverjum hefði dott- ið í hug að harm væri svona mikUl gleðigjafi? Hann spurði Sjafnar hvort hann myndi vUja hitta hann þegar hann kæmi að ári. Við bíðum bara og hlökkum tU næst. Bn Clinton - bana með simeni I Flugufótur fyrir uppreisn í Framsóknarflokknum? Í FLUGUFÓTUR DEIGLUNNAR.COM eraft- ur vaknaður til llfs eftir að hafa sofið um ™ hrlð. Nú er það„ástandið i Framsóknar- £ flokknum'sem verður tilefni gamanmdla * Deigluhöfunda en það ástand er sem ■- kunnugt er með þeim eindæmum að allir ^ hafa komið auga á það nema formaðurinn í sjálfur sem ekki kannast neitt viö neitt. Fyrirsögn Flugufótarins er: Uppreisn i 0 Framsóknarflokknum! " „Þau stórtiðindi voru að berast, nú um kl. E hálftiu, að framsóknarkonur með Siv Frið- « leifsdóttur i broddi fylkingar, hafa gert — uppreisn. Fregnir herma að þær haldi for- ~ manni flokksins, Halldóri Asgrimssyni, •jj föngnum á heimili sinu. Ekki er vitað meira um málið að sinni en Flugufóturinn mun senda mann á staðinn og koma fyrstur "t með fréttirnar eins og alltaf. h- 11:00 Nýjustu fréttirherma aö framsóknarkon- urnar haldi ekki einungis Halldóri i gislingu heidur sé Dagný Jónsdóttir þingmaður líka rlgbundin á heimili Halldórs. Dagný lét, eins og flestir vita, i Ijós þá skoðun sina i siðustu viku að ákvörðun Halldórs væri eölileg og ekkert tengd kynferði. Við þessa skoðun kynsystur sinnar voru hinar fram- sóknarkonurnar ekki sáttar og ákváðu að sýna henni i tvo heimana. Henni erþvi einnig haldið í gisiingu ásamt Halldóri á heimilihans. Blaðamaður Flugufótarins sem er á staðn- um hafði þetta um málið að segja:„Það er Ijóst aö framsóknarkonur eru reiðar. Þær standa nokkrar vörðinn fyrir utan heimili Halldórs og hieypa engum aö. Vikinga- sveitin hefurslegið skjaldborg utan um garð verðandi forsætisráðherra og málið er litið grafalvarlegum augum. Enn hafa framsóknarkonurnar ekki sett fram neina kröfugerö en Siv hringdi i lögregluna rétt áðan og sagðist mundu hafa frekari skila- boð fram að færa rétt eftir hádegið. Við skulum þvi blöa og sjá hvað setur. 13:30 Rétt eftir hádegi sendi forsprakki gíslatöku- kvennanna frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Við itrekum það að við höfum ekkertper- sónulegt á móti Halldóri Ásgrimssyni, þessi aðgerð er einungis gerð til að undirstrika það óréttlæti sem okkur fínnst við hafa ver- ið beittar. Kröfur okkar eru einfaldar - Siv i Stjórnarráðið!" 15:00 Svo virðist sem Vikingasveitinni hafí tekist að brjóta sér leið inn i hús Utanrikisráð- herra, fyrir um klukkustund siðan, þar sem honum og Dagnýju Jónsdóttur hefur verið haldið föngnum iallan dag. Kröfur Fram- sóknarkvennanna voru að Siv myndi taka við forsætisráðherrastólnum nú I septem- ber. Á þetta félist Halldór ekki og þvi kom til þessað þær ákváðuað hreppa hanni gíslingu snemma i morgun. Svo óheppi- lega vildi til að Dagný var að elda morgun- verð fyrir ráðherra og þvi var hún hand- sömuð llka enda „svikari eigin kynsystra" eins og háttsettar framsóknarstöllur orð- uðu það. Aðalsáttasemjara Vikingasveitarinnar var falið aö ræða málin við Siv og frést hefur að þau hafi komist að samkomulagi sem Halldór er sáttur við. Samkvæmt heimild- um Flugufótarins úr innsta hring fram- sóknarkvenna er málinu formlega lokiö án kæru afhendi utanríkisráðherra. Að sögn heimildarkvennanna þá mun Siv taka við embætti tandbúnaðarráðherra vorið 2005 og Dagný verður gerð að sérstökum sendi- herra fslands! Fjarskanistan. Óstaðfestar fregnir herma að um leið og Halldór hafi stungið upp á þessu með Dagnýju hafí aðilar náð saman."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.