Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁQÚST2004
Fréttir BV
Tilfinninga-
torg fest í
sessi
Borgarráð hefur sam-
þykkt þá tillögu Reykjavík-
urlistans að fela menning-
armálanefnd að leita leiða
til þess að festa í sessi starf-
rækslu tilfinningatorgs í
miðborg Reykjavíkur. Á ný-
liðinni menningarnótt var
eitt frumlegasta framtakið
starfræksla tilfinningatorgs
í gamla Víkurkirkjugarði, en
tilkomu þess má rekja til
verðlaunasamkeppni
Landsbanka íslands til efl-
ingar miðborginni. Einstak-
lega vel tókst til og bar
fjöldi borgarbúa og gesta
þeirra tilfinningar sínar á
torg við góðar undirtektir
viðstaddra.
ÓkPólóá
dreng
í fyrradag var ekið á
sex ára dreng er var á
leið suður yfir Víkur-
braut við Baldursgötu í
Keflavík. Drengurinn
hlaut minni háttar
áverka og var fluttur á
Heilsugæslu Suðurnesja
af móður sinni til skoð-
unar. Hann fékk að fara
heim að skoðun lokinni.
Drengurinn taldi bifreið-
ina hafa verið silfurlitað-
an Póló. Að sögn lög-
reglu mun ökumaðurinn
hafa talað við drenginn
en farið síðan á brott án
þess að láta vita um
óhappið.
Öllum bæjar-
búum boðið
íleikhús
í tilefni af 30 ára kaup-
staðarafmæli Seltjarnarnes-
bæjar er bæjarbúum boðið
á sýningu Leiklistarfélags
Seltjarnarness Á sauma-
stofunni eftir Kjartan Ragn-
arsson í leikstjórn Bjarna
Ingvarssonar. Sýningin var
frumsýnd í vor við frábærar
undirtektir. Boðssýningarn-
ar verða þrjár talsins: 26.
ágúst kl. 20, 28. ágúst kl. 15
og 29. ágúst kl. 20. Sýning-
arnar verða í félagsheimili
Seltjarnarness. Hægt er að
nálgast miða á Bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness á Aust-
urströnd og einnig við inn-
ganginn fyrir sýningar ef
ekki verður uppselt.
Lögfræðineminn Páll Heiðar Halldórsson hefur kært lögreglumann fyrir að hafa
stofnað lífi sínu og heilsu i stórhættu. Lögreglumaðurinn ók yfir á rangan vegar-
helming i veg fyrir Pál Heiðar sem ók þar um á vélhjóli og lá óvígur eftir. Lögregl-
an ber því við að hér hafi verið um slys að ræða. Ríkissaksóknari rannsakar mál-
ið. Lögreglan í Reykjavík telst vanhæf.
Páll Heiðar Halldórsson, 25 ára lögfræðinemi, hefur kært lög-
reglumann fyrir að hafa ekið yfir á öfugan vegarhelming og í veg
fyrir hann að kvöldi 31. maí. í kærunni er ökumaður lögreglubif-
reiðarinnar sagður hafa stofnað lífi og heilsu Páls í voða og þess
krafist að málið verði rannsakað. Ríkissaksóknari er með málið í
höndum en lögreglan í Reykjavík telst vanhæf til að rannsaka
það. Páll Heiðar segist heppinn að vera enn á lífi.
„Ég meiddist töluvert og er ekki
búinn að bíða þess bætur ennþá,"
segir Páll Heiðar sem stundar nám
við lagadeild Háskóla íslands og er
meðlimur í Sniglunum. Bifhjóla-
menn eru margir hverjir afar reiðir
yfir atburðinum og spyrja hvort það
sé stefna lögreglunnar að aka niður
mótorhjólamenn.
Keyrði í veg fyrir hjólið
I skýrslum lögreglunnar þann
31. maí kemur fram að nokkur bif-
hjól hafi verið mæld á of miklum
hraða fyrr um kvöldið. Lögregl-
unni tókst hins vegar ekki að
stöðva þá ökumenn. Nokkru síðar
sá ökumaður lögreglubifreiðar
númerið MN-074, Pál, koma ak-
andi við bensínstöðina á Ægisíðu.
Páll var ekki viðriðinn hraðakstur-
inn fyrr um kvöldið og hefur ekki
enn hlotið neina kæru eftir um-
rætt kvöld.
Ökumaður lögreglubifreiðarinn-
ar ákvað hins vegar að stöðva hann.
Páll segist hafa komið fyrir horn og
verið á leið inn í beygju þegar lög-
reglubíllinn keyrði snöggt í veg fyrir
hann. Páll skall á lögreglubílinn
og flaugafhjólinu.
Eins og sést á myndunum
hér til hliðar er augljóst að lög-
reglan ók yfir á rangan vegar-
helming. Páll segist ekki hafa haft
ráðrúm til að stöðva hjólið en
bremsuförin á vettvangi voru um
sex metrar.
Lögreglan ber því við að hafa
kveikt aðvörunarljósin og heldur því
fram að hér hafi verið um slys að
ræða.
Alvarlegt atvik
„Ég tel það augljóst að þú stöðvar
ekki bifhjól á fullri ferð með því að
aka í veg fyrir hjólið með þeim hætti
sem lögreglumaðurinn gerði,“ segir
Hilmar Ingimundarson, lögmaður
Páls. Hilmar sendi lögreglunni
skömmu eftir slysfð beiðni um að
kannað yrði í tetra-fjarskiptakerfi
lögreglunnar hvort aðvörunarlj ósin
hafi verið kveikt. Niðurstaða úr
þeirri beiðni er ekki enn komin í ljós.
HOmar bætir við: „Þetta er mjög
alvarlegt. Lögreglumaðurinn vissi
ekki hvort að hann var þarna með
Hiimar Ingimund-
arson hæstaréttar-
lögmaður Vill að
málið verði kannað i
tetrakerfi lögreglunn-
ar.
rétt bifhjól í
sigtinu þegar
hann ók yfir á
rangan vegar-
helming tO að
stöðva hjólið L
fyrir meintan %
hraðakstur bif-
hjólamanna
öðrum stað
bænum.“
Lífi stofnað í
voða
í kærunni
Páli Heiðar Hall-
dórsson laganemi
Hefur kært lögreglu-
mann fyrir að hafa
stofnað lifi sínu i voða.
Myndir af slysstað Afmyndunum að
ý' . I dæma er augljóst að lögreglubillinn
sveigðiyfira rangan vegarhelmmg
hendur ökumanni lögreglubifreið-
arinnar segir að lrfi Páls og heOsu
hafi verið augljóslega stefht í veru-
legan háska svo að varðað geti við 4.
mgr. 220. greinar almennra hegn-
ingarlaga.
í þeirri grein segir að sá
sem, „í ábataskyni, af gáska
eða á annan ófyrirleitan
hátt stofnar lífi eða heilsu
annarra í augljósan
háska,“ skuli sæta allt að
fjórum árum í fangelsi.
Páll segir að eftir
slysið hafi hann krafið
lögreglumennina um
skýringu. Þá hafi öku-
maður lögreglubif- hm
reiðarinnar sagt:
„Ég gerði ná-
kvæmlega það sem
þarf tO að stöðva
þig-“
simon@dv.is
Guðni er bestur
Sækjast sér um líkir. Fréttir
herma að sótt sé að Guðna Ágústs-
syni út tveimur áttum í Framsóknar-
flokknum. Dugir ekkert minna. Lítið
þýðir að sækja að Guðna úr einni
átt, slíkum árásum myndi hann
veifa frá sér li'kt og flugu. Reyndar
trúir Svarthöfði því að Guðni verði
ekki felldur nema sótt verði að hon-
um aftan frá. Og þá í myrkri. Slíkt er
afl Guðna og mannkostir.
Guðni er ótvíræður foringi Fram-
sóknarflokksins næsta áratug og
jafnvel lengur. Svarthöfði spáir því
að hann eigi bæði eftir að verða for-
sætisráðherra og forseti lýðveldis-
ins. AðrO: forystumenn flokksins
standa langt í frá jafn föstum fótum í
íslenskum samtíma og skiptir þá
litlu hvort skírskotað er tO fortíðar
eða framtíðar.
Guðni sýndi snemma meiri
ábyrgðartilfinningu en jafnaldrar
hans. Vorið 1968, þegar veröldin var
að leysast upp í hassvímu og óeirð-
um skrfls ungmenna, lauk Guðni
búfræðiprófi frá Hvanneyri. Þar
tuggði hann íslenskt gras í stað þess
að reykja erlent. Guðni hefur alltaf
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað mjög gott,“segir Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri Melaskóla. „Hjá okkur hef-
ur allt gengið samkvæmt áæltun en í skólanum eru um 590 nemendur. Og það liggur vel
á þeim, þeir eru glaðir og ánægðir með að vera komnir i skólann. Yngstu nemendurnir
hafa verið i viðtölum á mánudag og í gær og það er bjartyfir þeim sem ég hefhitt og þau
segjast hlakka til að byrja i skólanum. Enda eru dagarnir bjartir núna og mikið líf. “
haldið sönsum og aldrei orðið háður
kreddum í stjórnmálum eða
fíkniefnum almennt. Hann er sá
klettur í hafinu sem Framsókn-
arflokkurinn vfll vera. Þá er
hann dýravinur að auki.
Guðni Ágústsson er á kjör-
aldri til að taka við forystu í
stjórnarflokknum sem nú sest í
forsæti ríkisstjórnar. Hann varð 55
ára í febrúar. Sú tala er ein sú al-
helgasta í grískri goðafræði. Og
ekki er nafnið verra.
Guðni er tökunafn úr
forneskju, Godwine,
sem á íslensku þýð-
ir guðaveigar. ,
Svart- •
***' höfði getur
vart beðið eftir því að
Guðni fari að flytja ára
móatávörp sín sem
forsætisráðherra og
forseti í Rflássjón-
varpinu þegar þar að
kemur. Þá þarf ekki
ngur neitt ára-
mótaskaup. Þá
sameinast
draumar, gleði og
væntingar þjóð-
arinnar í einum
manni. í Guðna.