Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Blaðsíða 14
74 MIÐVIKUDACUR 25. ÁQÚST2004
Fréttir DV
Efast um frá-
rennsli
Sumir hrepps-
nefndarmenn í
Hólmavík eru
sagðir hafa efa-
semdir um að nýj-
ar fráveitulagnirnar veiti
framtíðarlausnir við losun
úrgangs frá rækjuverk-
smiðju Hólmadrangs. Um
er að ræða nýja ffáveitu-
lögn út í Norðurfjöru.
Meirihluti bæjarráðs taldi
nauðsynlegt að ganga strax
frá lögnununum þar sem
nú sé verið að leggja bund-
ið slitlag á svæðinu.
Eltu mótor-
hjólamann á
ofshraða
Lögreglan í Kópavogi
lenti í miklum eltingar-
leik við mótorhjólamann
sem ók á ofsahraða eftir
Hafnarfjarðarvegi og í átt
til Reykjavíkur í fyrrinótt.
Hann var upphaflega
mældur á tæplega 140
km hraða við Kópavogs-
læk en eltingarleikurinn
barst til Reykjavíkur og
missti lögreglan af
manninum er hann ók
yfir göngubrúna við
Miklubraut. Hann var
síðar handtekinn er
hann hafði lagt hjóli sínu
í Hátúni en kannaðist þá
ekki við aksturinn eða að
hafa ekki sinnt stöðvun-
armerkjum lögreglu.
Honum var svo sleppt
eftir yfirheyrslur.
Morávek í
upptökum
Karlakórinn Jökull á
Homaflrði ætlar að taka
upp og gefa út
nýjan geisla-
disk. Lagið
Hornafjörður í
útsetningu Jó-
hanns Morá-
veks kórstjóra
hefúr þegar
verið tekið upp. Annars fara
upptökur fram yfir eina
helgi í haust undir stjóm
Sigurðar Rúnars Jónssonar,
eða Didda fiðlu eins og
hann er nefndur. Þetta kem-
ur fram á hornaijordur.is.
Þar segir einnig að Jökull,
ásamt kammersveitinni ísa-
fold, hafi á föstudag frum-
flutt útsetningu Jóhanns á
laginu Hornafjörður. Flutn-
ingurinn hafi verið frábær
og útsetningin hrífandi.
Stefanía Jónína Aðalsteinsdóttir hefur eignast þrjár dætur sem allar hafa verið
teknar frá henni. Hún fær ekki að hitta þær nema einu sinni á ári og vill fá þær
til sín aftur. Hún var misnotuð þegar hún var í sveit frá niu ára aldri og lenti inni
á Kleppi 14 ára.
Móðirin haldin geðrnskunum
eflir áralanga misnotknn
í DV í gær birtist viðtal við Jóhannes Vilhjálmsson 46 ára upp-
vaskara á Keflavíkurflugvelli sem missti dóttur sína frá sér fyrir
tólf árum. Barnsmóðir hans Stefanía Jónína Aðalsteinsdóttir
hefur heldur ekkert fengið að sjá barnið né tvær aðrar dætur sem
hún á. Stefanía er 75% öryrki og býr ásamt manni sínum í Vest-
urbænum. Þetta eru dæmi um hin erfiðu mál sem barna-
verndaryfirvöld þurfa að kljást við.
Hún segist hafa verið tekin úr
sambandi árið 1992 án þess að fá
nokkru um það ráðið og verið mis-
notuð frá níu ára aldri. Fjórtán ára
fór hún á Klepp og skipti nýlega um
nafn. Hún lýsir lífi sínu sem einni
sorgarsögu.
Stefanía hét áður Guðlaug Ás-
mundsdóttir en breytti nafiúnu í
fyrravetur vegna þess að henni lfk-
aði ekki við það. Hún hefur eignast
þrjár dætur sem eru átján, fimmtán
og tólf ára en þær hafa allar verið
teknir af henni og settar í fóstur. „Ég
er gift í dag og við eigum þessar
stelpur með réttu. Mér finnst hart
að fá ekki að sjá börnin mín nema
einu sinni á ári og það er búið að
snúa þeim gjörsamlega gegn mér.
Ég hef barist fyrir því að fá þær í
gegnum árin en það hefur ekkert
gengið," segir Stefama sem segir oft
búið að lofa sér öllu fögru. „Það hef-
ur oft verið sagt við mig að ég fengi
bömin þegar aðstæður breyttust en
það hefur alltaf verið
svikið. Síðast átti ég
að hitta þær í hús-
dýragarðinum en ég
sagði bara nei takk
enda læt ég ekki
bjóða mér svoleið-
is.“ Stefanía segist
vera í litlu sam-
bandi við Jóhannes Vilhjálmsson
sem hún á yngsm dóttur sína með
og þeirra samband hafi endað eftir
að stelpan var tekin af þeim.
Misnotuð í barnæsku
Stefanía var ættleidd og bjó á
Kelduskógum þegar hún var krakki
og fer ekki fögmm sögum af þeim
ámm. „Ég var misnotuð frá níu ára
til fjórtán ára aldurs. Ég fór í fóstur-
eyðingu á þessum árum eftir drykk-
felldan mann sem rændi mig barn-
æskunni," segir Stefanía.
Hún segir það mál aldre'i hafa far-
ið lengra en fyrir sýslumann þegar
hún var fjðrtán ára gömui. „Þá var
mér bara hent á Klepp og búið. Ég
var eyðilögð sem barn og það er
búið að taka úr mér sálina," segir
Stefanía sem er 75% öryrki í dag.
Hún segist vera þunglyndissjúkling-
ur og taugarnar séu farnar með
hana. Hún hefur margsinnis fengið
morðhótanir frá þeim sem misnot-
aði hana sem hún segir mikinn
drykkjusjúkling.
Tekin úr sambandi
Stefanía segist hafa verið tek-
in úr sambandi árið 1992. „Ég
fékk engu um það ráðið. Sú saga
gekk fjöllunum hærra á fsafirði
að búið væri að taka
mig úr sambandi.
Fósturmamma
mín var
búin að
stagl-
ast
á
Vill fá börnin sín Stefanía vill fá dætur sínar aftur en þær hafa allar þrjár verið teknar af
henni og settar í fóstur.
því lengi að ég ætti að gera það. Ég
var búin að reyna að eignast barn í
nokkurn tíma og ekkert gekk. Mig
grunaði það lengi og er eiginlega al-
veg viss um að svo sé,“ segir Stefan-
ía sem gengur við hækju í dag eftir
að hafa lent í bflslysi.
Stefama og núverandi maðurinn
hennar em með lögfræðing sem þau
em ekki sátt við. „Hann rekur mann
út annað slagið og er mjög skapstór
og hefur því ekki reynst okkur vel.
Stígamót hafa heldur aldrei hlustað á
mig í gegnum árin," segir Stefanía
afar ósátt með stöðu mála.
„Mér finnst hart að fá
ekki að sjá börnin mín
nema einu sinni áárj
og það er búið að *
snúa þeim gjörsam-
lega gegn mér."
Getur ekki horft á glæpa-
myndir
Stefanía segist sjálf vera hætt að
drekka að mesm leyti en gangi fyrir
þunglyndissprautum og sé sprautuð
vikulega. Hún segist vera mikill þung-
lyndissjúklingur en geti hlegið að
sumu. „Ég get ekki horft á glæpamynd-
ir eða ofbeldi í sjónvarpinu. Ég horfi á
eina og eina gamanmynd. Ég er búin
að vinna víða en varð öryrki árið 1993
og við hjónin emm það bæði í dag."
Lítið samband Stefanla segist vera ílitlu sam-
bandi við Jóhannes Vilhjálmsson sem húná yngstu
■ dótturslna með og þeirra samband hafí endað eftir
að stelpan var tekin afþeim.
Stefanía er með bflpróf en á ekki
bíl og ferðast því oftast með strætó.
„Ég fer lflca stundum með leigubfl og
skulda einn núna upp á 2.400 krón-
ur og það er óþægilegt. Ég vil helst
borga mínar skuldir en ég skulda
lflca 8.000 krónur í fótsnyrtingu sem
mér finnst alltof mikið," segir Stef-
anía og undrar sig á verðinu því ör-
yrkjar eigi að fá afslátt.
Stefanía segir að rekja megi
þunglyndið og taugaveikina til þess
að hún hafi verið misnotuð í æsku
og það hafi skemmt hana. Það sem
Stefama vill í dag er að fá dætur sín-
ar helst aftur eða í versta falli fá að
hitta þær oftar. „Ég er betur stödd í
dag en áður og þá aðallega peninga-
lega séð. Saga mín er ein sorgar-
saga," segir Stefanía að lokum.
breki@dv.is
íbúar Álftaneshrepps í jarðastríði við bæjarráð Borgarbyggðar
Kurteisin fullreynd vegna Grenja
„Hvað þarf til svo að tillit sé tekið
til okkar sem hér búum? Þarf háttu
fornmanna „að höggva mann og
annan" tfl þess að hlustað sé á okk-
ur, eða fara um hémð með hávaða
og látum?"
Afréttarnefnd Borgarbyggðar
gekk á fund bæjarráðsins í síðustu
viku til að bera fram harðorð mót-
mæli við þeirri fyrirætlan að selja
hlut sveitarfélagsins í jörðinni
Grenjum á Mýmm. Ofangreind til-
vitnun er úr bókun sem afréttar-
nefndin lagði fram á bæjarráðsfund-
inum.
Að sögn meðlima afréttarnefnd-
arinnar er viðkomandi land, sem sé
innan afréttargirðingar, mjög mikil-
vægt fyrir sauöfjáreigendur. Tekjur
af stangveiðinni í Langá fyrir hluta
Grenja hafi í mörg ár staðið undir af-
réttarmálefnum í hinum gamla
Álftaneshreppi.
„Einkennilegt er til þess að vita,
að stjórnendur sveitarfélagsins
reyna ítrekað áð leggja stein í götu
sauðfjárbænda á þessu svæði með
áætlun um sölu jarða. Á sama tíma
og verið er að reyna að fá ný atvinnu-
fyrirtæki í sveitarfélagið er þessari at-
vinnugrein gert erfitt fyrir með áður-
nefndum ráðagerðum. Land Grenja
er það landsvæði sem við megum
allrasíst við að missa, auk þess er þar
aðalaðgengi okkar að afréttinum,"
segja afréttarnefndarmenn og saka
bæjarráðið um að hunsa vilja íbú-
anna á svæðinu. Sala Grenja yrði
mjög íþyngjandi fyrir sauðfjárbænd-
ur í Álftaneshreppi hinum forna:
Bæjastjóri Borgarbyggðar
Háldan Helgason, Ásgerður Pálsdóttir og
Guðrún Sigurðardóttir i afréttarnefnd Borg-
arbyggðar segja Páll Brynjarsson bæjarstjóra
og bæjarráðið vinna gegn hagsmunum ibúa
Álftaneshrepps
„Afréttarnefndin hefur áður
reynt að koma í veg fyrir sölu jarðar-
hluta sveitarfélagsins af kurteisi og
einlægni, en meiri-
hluti stjórnar
sveitarfélagsins
vinnur þvert á
vilja okkar og
nánast allra
íbúanna á
svæðinu."