Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Side 19
DV Sport
MIÐVKUDAGUR 25. ÁGÚST2004 19
Landsbankadeildin Maður 15. umferðar
Grindvíkingar unnu gríðarlega mikilvægan sigur á KR-ingum í Landsbankadeild karla í knattspyrnu á
mánudagskvöld og fóru langt með að bjarga sér endanlega frá falli í 1. deild. Bakvörðurinn sókndjarfi,
Ray Anthony Jónsson. lék sérlega vel og hann er maður 15. umferðar að mati DV-Sport.
Það er alveg óhætt eð kelle mig
Ray Anthony er fæddur árið 1979 og er uppalinn í Grindavík og
hefur leikið nánast allan sinn feril með Grindvíkingum en spil-
aði reyndar sex leiki með Völsungum frá Húsavík, sumarið 1999.
Hann er að læra netagerð en segir reyndar fótboltann taka mik-
inn tíma á sumrin.
„Það snýst allt saman um fót-
bolta á sumrin,“ segir Ray og bætir
því við að Grindvíkingar hafi stefnt
hátt fyrir mót en það hafi ekki alveg
gengið nógu vel framan af og að þeir
hafi meðal annars skipt um þjálfara
liðsins fyrir stuttu síðan:
Vorum bjartsýnir
„Við vorum bjartsýnir fyrir sum-
arið en byrjuðum mjög illa - vorum
alls ekki að spila nógu vel og ekki
þann bolta sem fer okkur best. Við
„Það býr ýmislegt í
liðinu og ég fer ekki
afþví að efvið erum
þolinmóðir og spilum
sem ein heild þá séum
við eitt afbetri liðum
deildarinnar
erum gott sóknarlið og eigum að
láta boltann ganga og forðast allar
kýlingar og þess lags. Það býr ýmis-
legt í liðinu og ég fer ekki af því að ef
við erum þolinmóðir og spilum sem
ein heild þá séum við eitt af betri
liðum deildarinnar. Við erum með
algjöran klassaframherja sem Grét-
ar (Hjartarson) er og þá er Keli (Sin-
isa Kekic) algjör kóngur hvar sem
hann spilar á vellinum. Undanfarið
hefur leikur liðsins verið á uppleið
og sigurleikurinn á móti KR var
gríðarlega mikilvægur en það verð-
ur að segjast ’eins og er að við erum
orðnir leiðir á því að vera í botnbar-
áttu - viljum meira og við getum
meira."
Aðspurðuí segir Ray að það sé
góður andi fkringum Grindavíkur-
liðið og það séu góðir menn sem
standi á bak við það: „Stjórnar-
mennirnir eru bara alveg frábærir,
fá ekkert borgað fyrir þetta en leggja
sig samt alveg hundrað og tíu pró-
sent fram fyrir félagið og það er al-
„Stjórnarmennirnir eru bara alveg
frábærir, fá ekkert borgað fyrir þetta
en leggja sig samt alveg hundrað og
tíu prósent fram fyrir félagið og það
er alveg ómetanlegt. "
Ray sókndjarfur Ray
Anthony Jónsson er
örugglega einn sókndjarf-
asti bakvörður Lands-
bankadeildar karla. Hann
skoraði eitt marka
Grindavikurl mikilvægum
2-3 sigri á Islandsmeist-
urum KR-inga á KR-
vellinum. Stigin voru
dýrmæt fyrir hans lið í
erfiðri botnbaráttu
deildarinnar en sigurinn
þýðir jafnframt að KR-
ingar verða endanlega að
horfa á eftir titlinum.
veg ómetanlegt. Það er
nauðsynlegt að það sé
góð stemning í kringum
félögin og að menn hafi
gaman af því sem þeir eru að gera
og sú er svo sannarlega raunin hér í
Grindavík. Umgjörðin hérna er góð
og í raun ekkert því til fýrirstöðu að
liðið nái lengra."
Sækir upp kantana
Þótt Ray sé bakvörður er það öll-
um ljóst sem séð hafa hann spila að
honum leiðist ekki að sækja upp
kantana og er án efa einn allra sókn-
djarfasti bakvörður Landsbanka-
deildarinnar. „Jú, jú, ég fæ oft að
heyra þetta og menn eru að hvetja
mig til að gera meira af þessu. Mér
finnst mjög gaman að koma með í
sóknina og er alveg óhætt að kalla
mig framliggjandi bakvörð," segir
hann og hlær.
Á töluvert inni
Ray hefur tekið framförum jafnt
og þétt á sínum ferli og er án efa að
spila sinn besta leik um þessar
mundir. Telur hann sig eiga ennþá
meira inni? „Já, ég á töluvert mikið
inni,“ segir Ray og bætir við: „Mað-
ur er alltaf að öðlast meiri og meiri
reynslu og þetta er allt að koma
smam
saman.
Ef mað
ur
sleppur
við
meiðsli
og er
dugleg-
ur og
metn-
aðar-
fullur
getur
maður
alltaf
bætt sig
og að
sjálf-
sögðu stefni
ég að því. Það
tekur alltaf sinn
tíma að festa sig í sessi
en það er hiklaust á dag-
skránni að koma enn sterkari til
leiks næsta sumar og þá alveg frá
byrjun.“
Aðspurður um vonir og
væntingar í framtíðinni
segir Ray drauminn auðvit-
að þann að komast í at-
vinnumennsku: „Maður
vonast að sjálfsögðu til
þess en það er erfiðara en
margur heldur en auðvit-
að þýðir ekkert annað en
að halda í vonina. Aðal-
málið núna er þó fyrst og
fremst að tryggja sætið í
deildinni og það kemst fátt
annað að eins og stendur,"
sagði bakvörðurinn spræki úr
Grindavík, Ray Anthony
Jónsson, leikmaður 15. um-
ferðar. sms@dv.is
Lið 15. umferðar í Landsbankadeild karla
Úrvalslið DV fyrir 15. umferð
Landsbankadeild karla er sókndjarft
með eindæmum enda skoruðu
leikmenn Uðanna 20 mörk í um-
ferðinni í fyrsta sinn í sumar. Eftir
markaleysi í síðustu umferðum og í
fyrsta leik þessarar umferðar
skoruðu liðin 20 mörk í fjórum
síðustu leikjum hennar og við
fögnum því.
Liðið teflir fram þremur
sóknarmönnum í viðbót við
sókndjarfa miðjumenn og ógn-
andi bakverði sem báðir styðja
vel við sóknir sinna liða. Þá eru
aðeins þrír varnarmenn í liðinu
að þessu sinni enda var
sóknarleikurinn í sviðsljósinu í
fyrsta sinn í sumar.
Eyjamenn eiga flesta
menn í Uðinu eða aUs fjóra en
bæði Grindavík og ÍA eiga tvo
menn. Fram, KR, KA og
Keflavík eiga ekki menn í
liðinu að þessu sinni.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (6)
ÍBV
Stefán Þór Þórðarson (3) Grétar Hjartarson (2)
ÍA Grindavík
- • •
lan Jeffs (2)
ÍBV
•
Finnur Kolbeinsson (2) Andri Ólafsson
| Fylki ÍBV
Baldur Bett (3)
FH
Steinþór Gíslason (3)
Víkingi
Gunnlaugur Jónsson (2)
ÍA
•
Birkir Kristinsson (3)
ÍBV
Ray Anthony Jónsson
Grindavík
qrænt salat
Ljuffengt meðlæti með gulrotum,
kirsuberjatómötum og balsamic-salatsósu.
bragð * fjölbreytni * orka