Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Side 4
4 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004
Fréttir DV
FRETTASKYRING
Árni Magnússon félagsmálaráðherra reyndi eftir krókaleiðum að komast hjá því að ráða
Helgu Jónsdóttur sem ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu. Ráðgjöf sem hann keypti fólst í því að hann
ætti að ráða þann sem honum litist best á. Helga fær rökstuðning ráðherra innan tveggja vikna. Ragnar H.
Hall hæstaréttarlögmaður segir dagljóst að ráðherra hafi gengið framhjá hæfasta umsækjandanum og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir spyr hvernig ráðherra geti gengið framhjá konu með svo mikla reynslu.
Arni lengdi frest til að
fleiri en Helga sæktu um
Árni Magnússon félagsmálaráðherra framlengdi umsóknarfrest um starf ráðuneytisstjóra til að
þurfa ekki að ráða Helgu Jónsdóttur í starfið. Hann auglýsti starfið einungis í Lögbirtingablaðinu
á þeim tíma þegar flestir landsmenn voru í sumarleyfi. Starfið var ekki auglýst á starfatorgi ríkis-
ins né í dagblöðum. Skemmsti mögulegi umsóknarfrestur var gefinn, tvær vikur. Jafnréttismála-
ráðherrann sleppti því líka að hvetja konur til að sækja um starfið og fylgdi þar með ekki þeim regl-
um sem ráðuneyti hans hefur gefið út. Hann tilkynnti síðan umsækjendum ákvörðun sína um
ráðningu áður en ráðgjafi hans við ráðninguna hafði rætt við alla meðmælendur og áður en ráð-
gjafinn hafði skilað skýrslu.
Allt þetta er talið benda til þess að
Ámi hafi haft í hyggju að skipa Her-
mann Sæmundsson settan ráðuneyt-
isstjóra í starfið, samkvæmt því sem
fuilyrt er við DV innan úr stjómsýsl-
unni. Það sem hindraði hann í þeim
fyrirætlunum, var að Helga Jónsdóttir
sótti um. Viðbrögð Áma vom að fiam-
lengja umsóknarfrestinn. Hann sá að
hann gæti ekki tekið karl fram yfir
Helgu, sem hefur óumdeilt mestu
reynsluna sem æskilegt er að fólk hafi
til að bera í starf ráðuneytisstjóra fé-
lagsmáiaráðuneytísins. Á endanum
réð hann svo Ragnhildi Amljótsdóttur
sem hefur unnið fyrir félags- og heii-
brigðisráðuneyti í Bmssel í ráöuneyt-
isstjórastarfið.
Helga vill öll gögn
Helga hefur áréttað beiðni sína um
rökstuðning frá Áma fyrir ákvörðun
sinni. „Ég fer þess enn fremur á leit að
fá aðgang að ölium gögnum sem
varða á einhvern hátt mat þitt eða
ráðgjafa þinna á umsókn minni í
þessu ráðningarferli sbr. 15. gr. stjórn-
sýslulaga," segir Helga í bréfi sem hún
sendi ráðherranum í gær. Samkvæmt
upplýsingum frá félagsmálaráðuneyt-
inu mun Ámi senda Helgu Jónsdóttur
rökstuöning fyrir ákvörðun sinni.
„Mun henni væntanlega verða sent
það bréf í næstu viku og eigi síðar en
9. september sem er lokaffestur skv. 3.
mgr. 21. gr. stjómsýslulaga," segir í
svari Sesselju Árnadóttur skrifstofu-
stjóra.
Skýrsla ráðgjafa ekki til
Eftir að Ámi tiikynnti umsækjend-
um hver fengi starfið, var ráðningar-
ráðgjafi Mannafls enn að spyrja með-
mælendur um kosti og galla umsækj-
enda. Samkvæmt upplýsingum sem
DV fékk frá félagsmálaráðuneytinu í
gær er skýrsla ráðgjafans ekld tílbúin.
„Niðurstaða ráðgjafans hggur
fyrir í drögum og er
ekki til afhendingar að svo stöddu,"
segir í skriflegu svari Sesselju.
Hún lét DV í té ummæli úr niður-
stöðu ráðgjafans, Hilmars Garðars
Hjaltasonar hjá Mannafli. Þar segir
hann að eftir að hafa leitað meðmæla
og tekið tvö viðtöl við þá sem mælt var
með komi þeir þrír umsækjendur sem
lengst komust sterkir út úr ferlinu. Það
vom Helga Jónsdóttir, Hermann Sæ-
mundsson og Ragnhildur Amljóts-
dóttir. „Er það mat Mannafls að fé-
lagsmálaráðherra eigi að ráða þann
aðila sem hann og samstarfsmenn
hans hafa mesta trú á að leiði starfs-
menn og ráðuneyti til áframhaldandi
góðra verka," segir í niðurstöðu ráð-
gjafans. Ráðuneytíð segir endanlegan
kosmað við vinnu Mannafls ekki
liggja fyrir og því
sé hann ekki
gefinn upp.
Framlengt eftir að Helga sendi
inn umsókn
Helga sendi umsókn sína inn til
ráðuneytísins áður en fyrstí umsókn-
arfrestur rarm út, 26. júlí. Eftir að um-
sóknin kom fram ákvað Ámi að fr am-
lengja umsóknarffestinn og útslcýrði
hann þá ákvörðun með því að um há-
sumarleyfistíma væri að ræða. Ragn-
hildur sótti hins vegar ekki um fyrr en
á seinni umsólcnarfrestí. Hún segist
hafa hugleitt í marga mánuði að sælcja
um starf ráðuneytisstjóra. Hún segir
að sér sem starfsmanni félagsmála-
ráðuneytisins til tveggja ára hafi verið
lengi kunnugt um að auglýsa þyrfti
starfið. Hún hafi rætt við marga en
það hafi síðan verið þegar hún kom til
baka til Bmssel eftir sumarfn á ís-
landi í byrjun ágúst að hún
byrjaði að vinna umsókn.
„Ég sótti um um leið og
ég kom frá íslandi,
ég var í sumarffíi,
flaug frá íslandi
eftir verslun-
armanna-
helgina og
byrjaði þá að
undirbúa
' umsókn,"
segir Ragn-
hildur.
Mjög sátt
við vinnu-
brögð Árna
Ragnhildur
er óflokks-
bundin
og segist
ekkert
hafa talað
við Áma
Magnússon í að-
draganda umsókn-
arinnar. „Ég
hringdi
aldrei í ráðherra, eða hann í mig í
aðdraganda umsóknar, það er kristal-
tært," segir hún. Hún hlakkar til að
takast á við starfið í ráðuneyti sem
hún telur vera einstaldega spennandi.
„Ég var mjög ánægð þegar ég frétti að
ég hefði fengið starfið. Ég sendi inn
umsókn eins og hver annar og fékk að
vita eins og hver annar, hverjir væm
umsækjendur. Ég var mjög sátt við
það þegar ég heyrði að það ættu að
fara ffam fleiri en eitt viðtal. Mér
fannst það ferli mjög áhugavert og
gott að taka þátt í því," segir hinn ný-
skipaði ráðuneytisstjóri. „Ég er mjög
sátt við vinnubrögð Áma Magnússon-
ar í öllu þessu máli," segir hún.
Eitthvert afbrigði af geðþótta-
ákvörðun
Ragnar H. Hall hæstaréttarlög-
maður er ekki eins ánægður með
vinnubrögð ráðherrans. „Það er dag-
ljóst að það er gengið framhjá hæfasta
umsækjandanum. Þetta er eitthvert
afbrigði af geðþóttaákvörðun sem
enginn getur útskýrt nema ráðherr-
ann sjálfur," segir Ragnar. Ragnar gef-
ur h'tið fyrir rökstuðning Áma um að
hann hafi skipað hæfasta umsækj-
andann. „Það er líka hægt að segja að
það sé sunnudagur í dag,“ segir hann.
„Það er bara ekki rétt." Hann segir
vinnubrögð af þessu tagi of áberandi á
íslandi.
Vilja ekki sterkar konur
„Mér finnst þetta furðuleg ráðstöf-
un," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
sem starfaði náið með Helgu í Reykja-
víkurborg í átta ár. Hún segist þekkja
þá konu af góðu einu sem fékk starfið
„en það varpar ekki rýrð á hana að í
hópi umsækjenda var kona sem hafði
samanlagt einhverja mestu reynslu af
þeim störfum sem nýtast í þessu
starfi," segir hún.
„Helga er framúrskarandi mann-
eskja og ég skil ekki hvemig hægt er að
hafha henni og hvem-
ig ráðherra hefur
efni á að ganga
ffamhjá þeirri
reynslu sem hún
hefur.“ Ingibjörg
Sólrún segist
ekki hafa
heyrt
nein
rök
frá
Það er dagljóst að
það er gengið fram-
hjá hæfasta umsækj-
andanum. Þetta er
eitthvert afbrigði af
geðþóttaákvörðun
sem enginn getur út-
skýrt nema ráðherr-
ann sjálfur.
Áma Magnússyni sem geti útskýrt
ákvörðunina. „Það er eins og þessir
menn kæri sig ekki um sterkar konur
sér við hlið,“ segir hún.
Halldór var á móti Helgu
Ingibjörg Sólrún gerði tillögu um
það þegar hún hætti sem borgarstjóri
að Helga Jónsdóttir tæki við sem
borgarstjóri tímabundið, þar sem hún
væri staðgengill borgarstjóra. Hún
staðfestir að þau áform hafi mætt
andstöðu, meðal annars frá Halldóri
Ásgrímssyni. Fullyrt er við DV að Hall-
dór hafi sagt þvert nei við því að Helga
settist í borgarstjórastólinn. Það er til
marks um að Helga sé ekki í náðinni
hjá þeim Halldóri og Áma.
kgb@dv.is
Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra
Framlengdi umsóknar-
frest um starf ráöuneytis-
stjóra til aö fá fleiri um-
sóknir en frá Hetgu Jóns-
dóttur.
Ragnhildur Arnljótsdóttir
Sótti um eftir aö frestur hafði ver- \
iðframiengdur.BerÁrnaMagn-
ússyni vel söguna en segist ekk-
ert hafa talað við hann f aðdrag-
anda umsóknar.
Helga Jónsdóttir
Langhæfasti umsækj-
andinn að mati Ragnars
Hall og IngibjargarSól-
rúnar G/sladóttur.