Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 28. ÁCÚST2004
Helgarblað 0V
Váldís Samúelsdóttir frelsaðist
þegar hún var 14 ára. VUltist svo
út af hinni kristilegu braut og var
í rugli í nokkur ár. Hún starfaði sem
strippari í skömm, notaði eiturlyf en sá
ljósið og reis upp að nýju eins og frels-
arinn sjálfur. Efúr að hafa þurft að þola
kúgun frá amerískum eiginmanni sín-
um í Las Vegas og múslimum í Noregi,
ákvað hún fylgja handleiðslu Guðs.
Valdís hefur vakið athygli þeirra sem
horfa á sjónvarpsstöðina Omega fyrir
mikla mælsku og trú hennar á mikil-
vægi þess að frelsa konur í arabalönd-
um undan kúgun Kóransins sem þær
hafa ekki einu sinni lesið.
„Ég fór í uppreisn gagnvart sjálfri
mér í nokkur ár,‘‘ segir Valdís Samúels-
dóttir 22 ára þjónn. „Ég var í kristilegu
starfi, fyrst hjá Klettinum og svo í
Krossinum. Svo varð ég fyrir áhrifum
frá félögum mínum sem sögðu mér að
hætta í þessu „Jesúmgli". í kjölfarið fór
ég alveg út fyrir ramma trúarinnar,"
segir Valdís sem tapaði í kjölfarið sam-
bandinu við Guð.
Strippaði í skömm
Fjölskylda Valdísar var öll andlega
þenkjandi, móðir hennar var spákona
og faðir hennar heilari auk þess sem
bróðir hennar var meðlimur í söfnuði
Klettsins. Þrátt fyrir það ákvað Valdís
að yfirgefa Guð og gera uppreisn í lífi
sínu. Valdís hætti í skóla og byrjaði að
nota fikniefni sem varð til þess að hún
fór að vinna sem nektardansmær í
Þórskaffi.
„Það var allt í mgli í kringum mig,
ég notaði amfetamín og áfengi. Það
vom allir að taka kókaín á þessum tíma
en ég lét amfetamínið alveg duga,‘‘
segir Valdís sem skilur ekki enn hvers
vegna hún laðaðist að súlunni í Þórs-
kaffi þar sem hún dansaði nakin fyrir
karlmenn.
„Ég held að þetta hafi bara verið
einhver athyglisfíkn sem ég þjáðist af.
Maður réði ekkert við þetta," segir Val-
dís. En svo fann hún ljósið og reis upp
að nýju með hjálp Guðs.
„Ég var algerlega á botninum og ég
veit hvað það er erfitt að horfast í augu
við það sem maður hefur gert, rísa upp
og sætta sig við fortíðina og lifa með
henni. Mér fannst erfiðast að horfast í
augu við að hafa tapað mannorðinu á
þessu lífemi. Þetta fylgir manni og
kemur alltaf upp öðm hveiju. Fólk spyr
mig hvort ég hafi ekki verið að strippa
og ég verð að játa því. Það yndislega við
það er að flestir í kringum mig vita
samt hvemig ég er, ég er ekki bara hætt
að strippa, ég er líka búin að breyta
mínulffi."
Milljón á mánuði
„Ég lifi góðu lífi í dag og reyni að lifa
í eins miklum kærleik og mögulegt er.
Ég hef fengið allt annan innblástur í líf
mitt sem skiptir miklu máli og vil nú
frekar gefa frá mér heldur en taka."
Þráðir þú áðurpeninga og völd?
„Já, hver gerir það ekki, þegar mað-
ur lifir svona eins og ég gerði?"
Var það vel launað starf að vera
stríppari?
„Nei, ekki myndi ég segja það,
kannski milljón á mánuði. Þetta var
náttúrulega mikil vinna - maður vann
svona átta tíma á dag. Ég var ekki í
vændi en það var allt í kringum mig,
samt ekki hjá okkur íslensku stelpun-
um. Það sem á sér stað hjá þessum
konum er endalaus niðurlæging og
andlegt ofbeldi. Þótt þær líti út fyrir að
vera einhveijar drottningar þegar þær
eru á sviðinu þá hverfur brosið fljótt
þegar þær stíga niður. Ástæðan fyrir
því að ég fór út í þetta var sú að mig
vantaði pening og ég heyrði að þetta
væri vel launað. Lífemið þama er hins
vegar þannig að maður eyðir bara öll-
um peningum sem maður eignast."
Nauðgað í Þórskaffi
„Ég man ekki þá nótt sem ég grét
mig ekki í svefn af skömm," segir Val-
dís sem trúði þó á Guð sem hún reyndi
að halda eins langt frá sér og hún gat
þótt hún væri fyllilega meðvituð um að
hún elskaði hann. Samviskubitið var
nóg fyrir. Valdís þurfti að þola þá
myrku martröð sem hún vill nú nýta
sem reynslu til þess að hjálpa konum í
Miðausturlöndum sem hafa verið
beittar kynferðislegu ofbeldi.
„Mér var nauðgað af samstarfs-
manni mínum. Ég ákvað að kæra hann
ekki en leitaði samt aðstoðar hjá Stíga-
mótum. Það var mjög mikilvægt fyrir
mig að fyrirgefa honum þetta til þess að
fá frið í eigin hjarta. Mér líður mun bet-
ur eftir að hafa fyrirgefið þetta skelfilega
ofbeldi. Atvikið situr þó alltaf í manni.
Þetta brýtur niður alla tilfinningu fyrir
því að vera kona. Maður upplifir sjálfa
sig sem leikfang einhvers manns, eins
og maður skipti engu máli og hafi enga
stjóm yfir eigin líkama."
Sigurvegari en ekki fórnarlamb
„Ég æda samt ekki að vera fómar-
lamb og fara í sjálfsvorkun, þess vegna
er mikilvægt að fyrirgefa og upplifa
sjálfan sig sem sigurvegara og þannig
líður mér í dag. Eg trúi því að ég geti
nýtt þessa reynslu til að hjálpa öðrum,"
segir Valdís sem telur súludans nú
jafngilda hórdómi og dauðsér eftir öllu
saman.
í Þórskaffi kynntist hún amerískum
hermanni sem hún féll fyrir og giftist.
Valdís hætti að strippa og fluttist til Las
Vegas þar sem hann þjónaði hemum
enhúnvanníblómabúð. „ÉgbjóíAm-
eríku í m'u mánuði. Hann var ekki
maður fyrir mig, eins og stendur í orði
Guðs - „Maðurinn á að vera höfuð
heimilisins" - það var einfaldlega bara
um kúgun að ræða. Eiginmaður minn
var mjög veikur. Hann kallaði mig hóm
og kúgaði mig með ýmsum aðferð-
um,“ segir Valdís. Þrátt fyrir að þau
væm bæði frelsuð og tryðu á gildi
hjónabandsins fyrir augliti Drottins
ákváðu þau að skilja þar sem sambúð-
in gekk illa.
„Hjónabandið var eiginlega skyndi-
ákvörðun sem við hefðum betur beðið
með. Við hefðum ömgglega getað lag-
að hjónabandið með aðstoð Guðs en
við ákváðum að gera það ekki. Við gát-
um hreinlega ekki búið saman," segir
Valdís.
Frá Las Vegas til Noregs
Valdís flutti frá Las Vegas til Noregs
þar sem hún starfaði á veitingastöð-
um. „Kærastinn minn þar var múslimi
og þar kynntist ég mjög vel kvennakúg-
un. Ég varð vitni að því þegar konur
vom barðar mjög illa. Þeir létu mig
reyndar í friði, ég held að þeir hafi bor-
ið ákveðna virðingu fyrir mér þar sem
ég var evrópsk," segir Valdís.
„Þau sem áttu veitingastaðinn sem
ég vann á í Noregi vom líka múslimar.
Konan hélt því einhvem tímann fram
að maðurinn hennar héldi við mig sem
var náttúrulega algjört kjaftæði. Til að
refsa konunni fyrir þennan rógburð lét
eiginmaðurinn bróður sinn berja hana
til að þagga niður í henni," segir Valdís
sem segist þó ekki vera á móti múslim-
um. „Ég er alls ekki á móti múslimum
sem slíkum og ég virði þeirra trúar-
brögð. Ég er hins vegar alfarið á móti
því að menn beiti konur ofbeldi í skjóli
trúarbragða sinna, hver sem þau em."
Auga fyrir auga
„I Kóraninum gengur þetta meira
út á „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn‘‘,“
segir Valdís sem var skuldum hlaðin
eftir dvölina í útlöndum. Valdís leitaði
á náðir Jesús, skrifaði honum bréf, þar
sem hún bað hann að hjálpa sér með
skuldimar og í staðinn myndi hún
sýna kærleik sinn í verki. Svarið kom og
hún fékk bankalán án þess að vera
með ábyrgðarmenn. Nálægðin við
Drottin hefur gefið henni nýtt lrf, kær-
leik og hamingju sem geislar af þessari
ungu konu. Hún hefur nú náð sáttum
við sjálfið og almættið.
„Ég er búin að lesa Biblíuna fram og
til baka. Ég er líka búin að lesa hluta af
Kóraninum," segir Valdís.
„Biblían er full af kærleik og boð-
skapur hennar er fyllilega í gildi í dag
eins og fyrir 2000 árum síðan. Ég veit
ekki nákvæmlega hvemig þetta verður
í framtíðinni en Guð hefur virkilega
gefið mér það Jilutverk að hjálpa þess-
um konum."
Draumur um von
„Draumurinn minn er að komast
þama út til Austurlanda og hjálpa
þessum konum. Jafnvel að opna ein-
hverja stofnun til þess að hjálpa þeim
sem hafa lent í einhvers konar ofbeldi.
Ofbeldi, og aðallega nauðganir, em
mjög algengar á meðal múslima. Kon-
ur em svo stundum hreinlega grýttar
efdr að hafa verið nauðgað," segir
Valdís sem vill láta gott af sér leiða, t.d.
í gegnum sjónvarpsstöðina Ómega.
Valdís vill helst að Guð grípi hana og
geri hana að sínu verkfæri og hver veit
nema sú verði raunin í nánustu fram-
tíð.
freyr@dv.is
Reis upp eftir
Valdís var strippari
Húnhefur sigrast áskömminni
og þráir að hjálpa konum sem
eiga sambærilega lífsreynslu
að baki með Guðs orði. Reynst-
an er þroski sem hún kann að
meta. Predikar á Omega, vill
Guðs orö f eyru kúgaðra
múslimakvenna.