Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Qupperneq 27
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 27
spyrja mig um Gorbatsjov. Annars var
ég bara í M að skoða landið, ég skoð-
aði Gullfoss og Geysi og allt það sem
maður á víst að sjá. Og fór í Bláa lón-
ið. Mjög notalegt. Falleg náttúra á ís-
landi, mjög falleg náttúra."
Á skrifborðinu hans er öskubakki
úr hraunsteini og þegar ég handleik
hann segir Múratov: „Þessi er reyndar
ekki frá íslandi, heldur Etnu... og
þetta er frá Tsjetsjeníu."
Alvarlegur í bragði tekur hann
sprengjubrot upp af skrifborðinu og
sýnir mér.
Upp við vegg stendur hokidkylfa.
Múratov var hokkíkempa í heima-
borg sinni, Samara við ána Volgu. Sú
borg bar á Sovéttímanum nafriið
Kujbísjev til heiðurs einhverjum
bolsévíka úr byltingunni en hefur nú
fengið aftur sitt gamla nafn. Mörgum
borgamöfnum hefur verið breytt til
gamals horfs eftir fall Sovétríkjanna.
Tveir ritstjórar myrtir
Ekki langt frá Samara er bærinn
Toglíatí. Tveir ritstjórar blaðs þar í
bænum, þeir Valerí ívanov og Alexei
Sidorov, voru báðir myrtir. Hinn 32
ára gamli ívanov var skotinn í höfuð-
ið fyrir utan heimili sitt í april árið
2002. Hann var að fara inn í bílinn
sinn og fjölmörg vitni sáu mann
ganga til hans og skjóta hann með
byssu með hljóðdeyfi.
Lögreglan hefur enn ekki sýnt
áhuga á að yfirheyra þessi vitni.
I október árið 2003 var Sidorov svo
stunginn nokkrum sinnum í brjóstið,
líka fyrir framan heimili sitt. Vitni sáu
árásarmanninn hlaupa á brott en
Sidorov lést í örmum konu sinnar
sem kom hlaupandi þegar hún heyrði
neyðaróp eiginmannsins.
Grísinn er tákn hins nýríka
Rússa
Samtök sem kalla sig GDF,
Glasnost Defense Foundation, vinna
að þvl að hjálpa blaðamönnum sem
sæta ofsóknum vegna starfs sfns. Þau
og flestir aðrir, nema þá lögreglan,
telja sig vita að ástæða morðanna hafi
verið rannsókn ritstjóranna á tengsl-
um mafíunnar við spillta stjórnmála-
menn.
Daginn sem ég hitti Dímtrí Múr-
atov var mynd af grís á forsíðu
Novæja Gaseta. Grísinn er mynd-
skreyting við grein sem fjallar um
milljarðana sem streyma úr landi um
þessar mundir; hann er tákn hins ný-
ríka Rússa sem græðir á tá og fingri en
eyðir gróðanum í útlöndum, skilur
ekkert eftir sig í heimalandinu og
borgar enga skatta.
Svo mikið er víst að það aka marg-
ir á svíndýrum limúsínum um götur
Moskvu. Svartir jeppar með lituðum
rúðum eru vinsælir, flestir af gerðinni
Mercedes Benz. Og um þessa menn
getur verið hættulegt að skrifa of mik-
ið.
Blaðamaður Novæja Gaseta
myrtur með hamri
Ég spyr Múratov hvort hann sé
aidrei hræddur þegar blaðið hans
flallar um það sem heitir „viðkvæm
mál Rússlands".
Hann ypptir öxlum.
„Við erum bara að skrifa um það
sem verður að segja frá. Hver myndi
gera það annars? En við höfum vissu-
lega orðið fyrir áföllum sem voru svo
þungbær að mig langar ekki til að tala
umþaunúna."
Múratov á við morðið á blaða-
manninum ígor Domnekov sem lést
16. júlí árið 2000 af sárum sem hann
KGB hefur í raun end-
urfæðst, öflugri en
nokkru sinni fyrr.
Stofnunin fær nú
þrisvar sinnum hærri
fjárframlög en á tím-
um Gorbatsjovs. Á
sama tíma erlögregl-
an gjörspillt, allir
þiggja mútur og flest-
ir lögreglumenn eru í
öðrum störfum með-
fram löggæslunni. En
enginn rannsakar
lögregluna.
hlaut við hrottalega árás. Það var 12.
maí sem maður réðist að Domnekov
fýrir utan heimili hans og barði hann
til óbóta með hamri. Blaðamaðurinn
hlaut alvarlega höfuðáverka og komst
aldrei til meðvitundar. Múratov lét
hafa eftir sér skömmu seinna að árás-
armaðurinn hefði sennilega talið
Domnekov vera annan blaðamann
Novæja Gaseta sem bjó í sama húsi.
Sá heitir Oleg Sultanov og var þá að
rannsaka spillingu innan málmiðn-
aðarfyrirtækja í Rússlandi.
Hættulegt að mótmæla á göt-
um úti
Sama ár fékk Novæja Gaseta að-
vörun frá Upplýsingaráðuneytinu fyr-
ir að birta viðtal við Aslan Maskhadov
forseta Tsjetsjeníu.
Eruð þið beittir ritskoðun?
„Já,“ svarar Múratov. „Það má
nefiia dæmi eins og þegar tölvuþrjót-
arnir brutust inn í tölvukerfið okkar.
En aðallega verðum við samt fyrir fjár-
hagslegri ritskoðun, ef svo má segja.
Það er allt gert til að taka frá okkur
auglýsendur. Við erum ekki með
neina banka eða olígarka á bak við
okkur og erum algerlega háðir aug-
lýsendum. Þegar þeir kippa að sér
hendinni eftir þrýsting frá yfirvöldum,
þá lendum við auðvitað í vandræðum.
Og nú á að banna blaðasölu á bið-
stöðvum neðanjarðarlestanna. Það
má selja ilmvöm og hvaða skran sem
er á þessum stöðvum en nú á að
banna þar blaðasölu.
Við reynum að snúa vöm í sókn.
Við erum með mjög duglega stráka
sem sjá um netútgáfuna okkar. Netið
er okkur mjög mikilvægt því þannig
berast skrif okkar til margra sem ann-
ars myndu aldrei sjá þau. Á mörgum
stöðum utan Moskvu er til dæmis ekki
hægt að nálgast blaðið því að því er
ekki dreift eða einfaldlega látið hverfa.
Unga fólkið er dyggustu lesendur okk-
ar, ekki síst stúdentar. Þeir hafa mik-
inn áhuga á stjómmálum og fýlgist vel
með. Hins vegar fer fólk sjaldan út á
götur til að mótmæla einfaldlega af
því það er hættulegt."
Pútín beitir blygðunarlausri rit-
skoðun
Iivað hefur breyst frá því á tímum
Borísarjeltsín fyrrverandi forseta?
,Á tímum Jeltsíns var grasserandi
spilling, ríkisfýrirtæki vom færð í
hendur einstaklinga og mafi'an kom
undir sig fótunum," segir Múratov.
„En það var ekki ritskoðun. Margar
nýjar sjónvarpsstöðvar fóm í loftið og
það ríkti þrátt fyrir allt almenn bjart-
sýni hvað snerti upplýsingu og aukið
lýðræði. En lýðræði þrífst ekki nema
fjölmiðlamir fái að starfa. Pútiri hefur
aðra skoðun en Jeltsín og er þegar far-
inn að beita blygðunarlausri ritskoð-
un á ríkisfjölmiðlunum.
Nýjasta dæmið um ritskoðun er að
vinsæll þáttur að nafni Svobodna
slova var lagður niður. Hið ftjálsa orð.
í þeim þætti hittust blaðamenn og
aðrir og ræddu ýmis heit mál í beinni
útsendingu. Það þoldi Pútín ekki. Nýr
sjónvarpsstjóri á hans vegum sagði að
á þennan þátt horfðu aðeins örfáir
sérvitringar og lagði þáttinn niður.
Sannleikurinn var sá að þetta var einn
vinsælasti sjónvarpsþáttur Rússlands
og í raun eini staðurinn þar sem fram
fór pólitísk umræða í beinni útsend-
ingu."
Leyniþjónustan hefur aldrei
verið öflugri
Afhverju erPútín samt enn vinsæii
meðal almennings?
„Vinsældir hans hafa reyndar
minnkað mikið síðasta hálfa árið eða
svo. Ég get ósköp vel skilið af hverju
hann naut trausts á sínum tíma.
Hann er ákveðinn, framtakssamur
og kraftmikill. En hann gerir bara svo
margt þveröfugt við það sem hann
segist ætla að gera. Við megum
aldrei gleyma því að hann er gamall
KGB-maður. Við birtum grein hér í
blaðinu þar sem fram kom að 6.000
gamlir KGB-menn eru orðnir mjög
áhrifamiklir í Rússlandi í dag. Margir
af nánustu ráðgjöfum Pútíns eru
gamlir félagar úr KGB í Skt. Péturs-
borg. Og Pútín hefur stóraukið fram-
lög til leyniþjónustunnar sem nú
heitir FSB. Þrátt fyrir kosningaloforð
hans um að draga úr skriffinnsku og
ríkisbákni hefur FSB fitnað eins og
púkinn á fjósbitanum. KGB hefur í
raun endurfæðst, öflugri en nokkru
sinni fyrr. Stofnunin fær nú þrisvar
sinnum hærri fjárframlög en á tím-
um Gorbatsjovs. Á sama tíma er lög-
reglan gjörspillt, allir þiggja mútur
og flestir lögreglumenn eru í öðrum
störfum meðfram löggæslunni. En
enginn rannsakar lögregluna."
Mikilvægt að fylgst sé með
Pútín
Hvað myndir þú gera ef þú værir
forseti?
Múratov hnyklar brúnir. „Ég er
ekki stjómmálamaður. Ég er blaða-
maður og ég skrifa um það sem
stjómmálamennimir aðhafast. En
fyrst þú vilt endilega fá svar, þá finnst
mér að forsetinn ætti umsvifalaust að
stöðvásm'ðið í Tsjetsjeníu og hætta að
dæla öllum þessum peningum í her-
inn og leyniþjónustuna. Enda bráð-
vantar peninga í skóla og sjúkrahús og
almenna félagsþjónustu.
Ég held að það sé mjög mikiivægt
að Pútín fái að finna að það sé fylgst
með honum erlendis. í Þýskalandi
hefur verið skrifað mikið um hann og
stjórnarhættir hans gagnrýndir. Pútín
er sárgramur þeim skrifum. Hann vill
ekki líta út eins og Lúkasjenko forseti
Hvíta-Rússlands í augum fólks á Vest-
urlöndum. En það ríkir bara ekki lýð-
ræði í Rússlandi í dag. Samkvæmt
stjómarskránni mega allir taka þátt í
pólitík en það gildir greinilega ekki um
Khodorkovskí. Hann lét peninga
renna til menntunar og alis konar
Kasparov vill koma Pútín frá
Nú hafa verið stofnuð samtök sem
nefnast Kommiti' 2008. f þeim em
frjálsyndir Rússar sem hafa það
markmið að koma Pútiri frá völdum
árið 2008 og byggja upp nýtt lýðræði
óháð peningaöflunum í landinu. í
hópnum er meðal annars að finna
Évgem' Kiseljov sem stýrði sjónvarps-
stöð þangað til árið 2003. Þá var henni
lokað og ástæðan var sögð fjárhags-
legs eðlis. En allir vita að ástæðan fýr-
ir lokuninni var sú að Pútín þoldi ekki
þá gagnrýni á sig sem þar kom fram.
Eg spyr Múratov um þessi samtök
sem njóta forystu Gam's Kasparov
skákkempu.
„Þetta em ágæt samtök. Kasparov
er gáfaður og duglegur maður og þeir
em margir ágætir sem starfa með
honum. Staðan í Rússlandi núna er
sú við virðumst vera á hraðri leið aft-
ur til Brésnevs-tímans. Þegar menn
eins og Kasparov og félagar sti'ga fram
og viija breyta til, þá er ekkert nema
gott um það að segja."
Nú berja aðstoðarritstjóramir að
dyrum og vilja skyndifund með rit-
stjóranum. Ég kveð því Múratov sem
gefur mér nýja bók um Pútín að skiln-
aði.
Teflt við veqfarendur fyrir 50
kall
Þegar ég hef yfirgefið byggingu
Novæja Gaseta geng ég út í náiægan
skemmtigarð og fæ mér sæti á bekk.
Rétt hjá teflir maður við vegfarendur
fyrir 20 rúblur, ígildi 50 króna. Öld-
ungur leikur á saxófón og brúðhjón
renna framhjá ásamt vinum og
vandamönnum. Fjöldi fólks er þarna
á spjalli, margir með bjórflöskur í
hendi. Það er regn í lofti en lífið virðist
einfalt og áhyggjulaust þama í hita-
svækjunni. Ritskoðun Pútíns, skipu-
lögð glæpastarfsemi og vandamál
milljarðamæringa - alit virðist svo
fjarlægt hér og nú. Nema hvaö ég tek
eftir því að þegar pör eiga leið hjá
heldur karlmaðurinn yfirleitt á veski
konunnar.
Betlari eða stjörnufræðingur
Er ég geng út úr garðinum fer að
rigna. Ég spenni upp regnlilíf og sé þá
gamla konu í dembunni miðri og býð
henni að ganga með mér. Hún er lítil
og með rytjulegt grátt hár, klædd
snjáðum kjól og slitnum skóm. I flest-
um öðrum borgum yrði hún stimpluð
betlari. Gangan að neðanjarðarstöð-
inni er löng og við spjöllum margt.
Hún segir mér að hún heiti Elena og
eigi eina dóttur sem er viðskiptafræð-
ingur.
Sjálf er hún stjörnuffæðingur.
Áður fyrr vann hún sem kennari við
Lermonosov-háskólann í Moskvu.
Nú er hún rússneskur ellilífeyrisþegi
sem vann allt sitt líf í þágu Sovétríkj-
anna en dregur nú naumlega fram
lífið í hinni rándýru Moskvuborg á
smánarlegum eftirlaunum í hinu
nýja Rússlandi.
Hún er með stór brún augu og
brosir þegar ég spyr hana um uppá-
haldsstjömuna hennar.
„Það er leyndarmál," svarar hún.
Tekur svo fastar utan um mittið á mér
svo við rúmumst betur undir regnhlíf-
inni í dembunni.
Þegar við kveðjumst kyssir hún
mig á kinnina og óskar mér alls hins
besta. Elena og hlýja hennar enda
þessa grein.
I formi til framtíðar
Námskeið hefjast 30. ágúst
Emilía Sigurður Már Gígja Hildur Björk
Borgþórsdóttir, Hlíðdal, sjúkraþjálfari Þórðardóttir, Hilmarsdóttir,
sjúkraþjálfari og fþróttakennari sjúkraþjálfari fþróttakennari
O Karlar - 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 16.900 kr.
O Konur - 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 16.900 kr.
O Konur +25 kg - 16 vikur, þrisvar sinnum í viku. 34.900 kr.
Innifalið í átaksnámskeiðunum er: 3 fastir tfmar á viku, aðgangur að opnum
tlmum og taekjasal, mappa full af fróðleik um þjálfun, næringu og Iffsstll, tlmi með
þjálfara I tækjasal, fyrirlestur um næringarfræði og llfsstll, fitumælingar og þrekpróf,
regluleg vigtun, matardagbók og hreyfingardagbók, samanburður á mælingum I
lok námskeiðs og vatnsbrúsi.
Skráning í síma 511-1575 og á www.hreyfigreining.is
llGREINING
HEItSURÆKT
Höfðabakka 9 Sfmi: 511-1575 www.hreyfigreining.is