Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 Helgarblaö DV Lögregluhundurinn Rex, Lassie og aðrir undrahundar virðast ótrúverðugir leikarar spennuþátta í sjón- varpi. í raunveruleikanum eru þó til hundar sem er margt til lista lagt og margir þeirra engu síðri en sjónvarpshundarnir, jafnvel betri. Hundarnir sem gegna störfum hjá Lögreglunni í Reykjavík eru eld- klárir enda hafa þeir hlotið þjálfun sem kemur þeim á svipað vitsmunaplan og stálpuðu mannsbarni. > > > Hundum í þjónustu lögreglu, tollara og björgunarsveita hefur íjölgað verulega á síðustu árum. Hjá lögreglunni er nú fjöldi hunda að störfum um allt land og ganga til þeirra verka sem þeir eru þjálfaðir til. Þessar ferfættu löggur eru löngu búnar að sanna gildi sitt og geta í ákveðnum störfum leyst verkefni á nokkrum mínútum sem ella tæki heilan her manna fleiri klukkustundir að vinna. Hundarnir fá að jafnaði fjölbreytta þjálfun. Flestir hljóta þeir þjálfun í fíkniefnaleit sem er grunn- atriði við þjálfun þeirra. Sömu hundar eru svo þjálfaðir í sporleit og víðavangsleit. Þefhæmi hundanna er eitthvað sem fáir geta skýrt, en þess eru dæmi að hundur hafi fundið fikniefni sem búið var að sjóða inn í drifskaft bif- reiðar. „Hundamir eru mjög næmir. Ef ég ætlaði að smygla fíkniefnum þá myndi ég gera allt til þess að koma í veg fyrir að þau kæmu nokkum tfm- ann nálægt hundi. Við höfum gert alls konar tilraunir og emm í raun alltaf jafnhissa á því hversu næmleikinn er mikill hjá þessum dýmm," segir Þor- steinn Hraundal, yfirhundaþjálfi lög- regluhundanna, og tekur það jafn- ffamt ffam að fjöldi fikniefhahunda sé orðinn mjög mikil] hér á landi, bæði í þjónustu lögreglu og tollgæslu. Þannig hefur netið þrengst og erf- iðara er að smygla dópi til landsins en áður. Þekking og reynsla hefur gert það að verkum að þjálfun hundanna tekur mun minni tíma nú en áður. Hundarnir em svo næmir að þeir þurfa mjög litla nærvem við lyktina til þess að geta þefað uppi efnið. Við þjálfunina er notaður lítill miði sem er settur við hliðina á efninu. Miðinn er svo tekinn með töng og fal- inn á þeim stað þar sem hundurinn er þjálfaður. Einn svona miði er með miklu minni lykt en eitt slag af am- fetamíni. Þannig verða hundamir mun næmari fyrir lykt og em þannig þjálfaðir til þess að finna mjög lítið magn af fíkniefnum. Auðvitað er þeim á sama tfma einnig kennt að finna mikið magn af fíkniefnum. Búa hjá löggum „Við höfum í seinni tíð valið stálp- aða hunda en ekki hvolpa. Það er betra að kaupa ársgamlan hund og fá að pmfa hann. Ég sé það mjög fljót- lega hvort það borgar sig að þjálfa hundinn. Þetta em yfirleitt dýr sem fólk er að gefast upp á,“ segir Þor- steinn sem velur hunda sem em mjög virkir, jafnvel ofvirkir. Hundarnir þurfa að vera sterkbyggðir, duglegir, með mikið úthald og útsjónarsemi. Það er mjög gaman hjá þessum hund- um. Þeir fá mjög mikið út úr því sem þeir em að gera og em mjög fuílnægð- ir eftir daginn. Fyrir þeim er þetta allt saman leikur," segir Þorsteinn sem daglega fylgist með þjálfun og vinnu lögguhundanna. Þorsteinn hefur sjálfur átt hund lengi sem er hans heimilishundur en starfar jainframt Hundur við reglu- bundna leit Daglega er leitaö á flugvöllum, umferöarmiöstöövum, pósthúsum og víöar. „Hann rauk rakleiðis upp að húsi þar sem kom / Ijós að ungur maður, sem hafðiný- verið yfirgefíð bæinn, hafði búið. Hann náð- ist svo á Akureyri og gekkst við glæpnum með honum hjá lögregluembættinu. Allir lögguhundarnir em í umsjón lögreglumanna sem hugsa um þá eins og sitt eigið húsdýr meðan hundurinn er ekki að gegna skyldum sínum hjá embættinu. I sumum tilfellum em hundamir í eigu embættisins, en aðrir em í eigu lögreglumanna. „Hundarnir sem ég er með em báðir bara eins og heimilishundar hjá mér eftir að vinnudegi líkur. Þeir em aldrei geymdir í búmm hér á stöðinni yfir nótt, frekar en aðrir hundar sem við embættið starfa eða em í eigu þess," segir Þorsteinn sem segir þjálfun lög- regluhunds valda miklu álagi, bæði fyrir hundinn og umsjónarmann hans. Sprengjuhundurinn Hrókur „Þegar við byrjum að þjálfa þá er þetta allt gert í gegnum leik. Þeir byrja í ffkniefnaleit, sú þjálfun tekur 4-5 vik- ur og lýkur með mjög þungu prófi sem reynir mjög mikið á, bæði á hundinn og þann sem er með hann. Hundurinn þarf að vera mjög agaður og hiýða húsbónda sínum skilyrðis- laust. Þessir hundar þurfa að vera húsum hæfir og færir um að fram- kvæma leit án þess að setja allt um koll,“ segir Þorsteinn sem hefur um- sjón með sérstaklega þjálfuðum sprengjuleitathundi. „Hundur sem er notaður til sprengjuleitar þarf að vera meira þjálfaður með það í huga að leita í fin- um húsum eins og til dæmis Alþingis- húsinu. Hann má alls ekki fara út af gólfinu nema honum sé boðið það sérstaklega. Slíkur hundur þarf að vera sérstaklega næmur og stilltur. Hann má ekki hoppa upp á húsgögn eða fara upp í sæti á bílum sem hann leitar í." Sprengjuleitarhundinn sem Þor- steinn hefur þjálfað má einungis nota við sprengjuleit og hefur hann nóg að gera sem slíkur enda kröfur um víð- tækt öryggi hins opinbera orðnar tals- vert meiri í seinni tíð. Hrókur heitír sprengjuhundurinn og er af tegund- inni springer spaniel sem Þor- steinn segir ffábæra hunda til lögregluverka. Heimsækir fínu húsin „Hrókur er mikið hörkutól og hættir aldrei fyrr en hann hefur klárað sín mál. Það eru gerðar mikla kröfur nú um sprengjuleit og vemd gegn hvers konar hryðjuverkum og þessir hundar em notaðir til þess að þjónusta opinbera aðila, þar sem gerðar em láöfur um slíka leit. Hann hefur aldrei fundið neitt og ég vona að hann finni aldrei neitt. Honum er haidið í mjög góðri þjálfun, hann þarf að vera mjög ömggur með sig. Hann er látinn leita nokkmm sinnum í viku að sprengjum. I flestum tilfellum er hann látinn finna eitthvað til þess að hann missi ekki trúna á sjálfum sér. Hundurinn þarf að vera mjög sterkur bæði andlega og líkamlega," segir Þorsteinn um hundinn. Hrókur er þó nokkuð ærslafúllur en hagar sér að jafnaði nokkuð vel þegar hann er í þjónustu hins opinbera enda tíður gestur bæðir á Alþingi og að Bessa- stöðum. Hefur vit á við átta ára barn Scháfer er sennilega frægasta hundakyn sem komið hefur frá Þýska- landi. Scháferhundar em annálaðir fyrir trygglyndi, greind, hugrekki og aðiögunarhæfni. Þeir henta ákaflega vel til þjálfunar og em mikið notaðir tii lögregiu- og herstarfa, sem leitar- og björgunarhundar en einnig sem blindrahundar. Þorsteinn hefur átt Scháfer í mörg ár. Hundurinn hans, Skolli, er þjálfaður sem fíkniefnaleit- arhundur og til sporleita. Skolli er alvörulögregluhundur sem hefur verið þjálfaður til margra ólíkra verka og er skarpgreindur. „Hann er að mörgu leyti eins og lög- regluhundurinn Rex, bara miklu betri. Rex er reyndar gefið mannsvit meðan Skolli hefur vit á við átta ára krakka. Hann kann þó ekki að reikna en kann mjög margt engu að síður. Það er mjög auðvelt að fá hann til þess að gera hluti sem hann er ekki þjálfaður sérstaklega í," segir Þorsteinn um Skolla sem er ekki hans fyrsti Scháfer- hundur. Fyrri hundur Þorsteins var áiíka greindur og Skolli og hafði sam- bærilega þjálfun að baki. Hann gekk hreint til verka og kom eiganda sínum stöðugt á óvart með metnaði og verkviti. Scháfer þefaði uppi nauðgara „Hundurinn sem ég áttí á undan Skolla var mjög sambærilegur vits- munalega séð," segir Þorsteinn um hundinn sem meðal annars kom upp um nauðgara á Austfjörðum, öllum að óvörum. „Hann leysti mál úti á landi sem hefði getað orðið mun flóknara án hunds. Þetta var nauðgun á hóteli á Austfjörðum. I fyrstu var talið að nauðgarinn væri einn af hót- elgestunum. Ég var kailaður þangað þar sem lögreglumaðurinn sem hringdi í mig var viss um að hundur- inn gæti leyst þetta verkefni. Ég hafði hins vegar efasemdir um það þar sem hundurinn hafði enga þjálfun fengið til þess að fást við svona mál. Við 1 Hrókur, Sko/li urnirgegna ólíki &r fíkniefnnlmtsrr 9 Porstemn Hund- vm hlutverkum.Skolli 'nundur auk þess sem 'oi ymis önnur störfá sérÞiaifaður sprengju- genr ekkert annað. v n \ 1| ~ yi e i 1 zJm Hjá lögreglunni í Reykjavík eru sjö lögreglu- hundar. Fimm þeirra fydgja vöktum, einn á hverri vakt. Hver hundur er þjálfaður í ffkniefnaleit, vopnaleit, sporieit, víðavangsleit, hlutaleit, göngueftirfiti og til að verja umráðamann sinn og aðstoða hann við að handtaka t.d. hættufega menn. Fyrsti hundurinn var fenginn þjálfaður frá Bretlandi árið 1971. Síðan hafa hundar óslitíð verið í þjónustu lögreglunnar. Hundarnir fá að jafnaði mun meiri hreyfingu en venjulegir heimilishundar og eíga þeir skemmtilega og íjölbreytta ævi. Sjö ferfætt- ar hetjur „Hundursem er not- aður til sprengjuleitar þarfað vera meira þjálfaður með það í huga að leita í fínum húsum eins og til dæmis Aiþingishús- inu. Hann má alls ekki fara út afgólfinu nema honum sé boðið það sérstaklega ákváðum að kanna hvort hundurinn myndi koma okkur á sporið. Eina vísbendingin sem við höfðum var sokkur sem nauðgarinn hafði skil- ið eftir. Við fengum sokka af öllum hótelgestum og settum þá inn í eitt herbergið. Svo létum við hundinn þefa af sokknum sem nauðgarinn hafði skilið eftir. Þegar hundurirm komst í sokkahrúguna kom í ljós að enginn af sokkum hótelgestanna passaði við nauðgarasokkinn. Þetta sparaði mikinn tíma, ef hundsins hefði ekki notið við hefði eflaust þurft að yfirheyra alla hótelgestí sem hefði bæði verið tímafrekt og valdið mikf- um óþægindum. Við notuðum svo áfram sokkinn af nauðgaranum og létum hundinn sporleita fyrir framan hótefið. Hann rauk rakleiðis upp að húsi þar sem kom í ljós að ungur mað- ur, sem hafði nýverið yfirgefið bæinn, hafði búið. Hann náðist svo á Akureyri og gekkst við gfæpnum." freyr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.