Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Qupperneq 44
44 LAUOARDAGUR 28. ÁGÚST2004
Helgarblað DV
Macaulay Culkin hefur marga fjöruna sop-
ið og var af flestum talinn útbrunninn um
fjórtán ára aldur en hefur nú snúið aftur
Macaulay Culkin byrjaði feril
sinn fjögurra ára gamall þegar for-
eldrar hans létu hann leika í litlum
leikritum. Hann varð svo skyndilega
stjarna þegar hann stal senunni af
John Candy í mynd John Hughes
„Uncle Buck" og stórstjarna þegar
hann lék Kevin McCailister í Home
Alone. Á næstu árum lék hann í My
girl, The Good Son og Home Alone 2
sem allar urðu mjög vinsælar.
Það var svo árið 1994 þegar hann
tók að sér hlutverk Richie Rich í
samnefndri kvikmynd að halla fór
undan fæti hjá barnastjörnunni.
Hann hvarf gersamlega. Hann var
orðinn fjórtán ára og ákvað að
setjast í helgan stein og ætlaði aldrei
að snúa aftur. Hann bara hætti og
var að eigin sögn alveg sama um
hvað fjölmiðlar höfðu að segja um
málið.
Eftir brotthvarf hans af hvíta
tjaldinu skellti strákur sér í skóla í
New York og lifði eins og venjulegur
unglingur, eða allavega venjulegt
skilnaðarbarn. Foreldrar hans, Kit
Culkin og Pat Brentrup, skildu árið
1995 og varð harðvítug deila um for-
ræði og peninga þeirra á milli til
þess að Macaulay litli sleit algerlega
samskiptum við föður sinn. Hann
hefur ekki yrt á hann síðan þá.
Árið 1998 Þegar Macaulay varð
sautján ára giftist hann Guiding
Light-leikkonunni Rachel Miner,
kærustu sinni úr skólanum. Þeirra
hjónaband hélt í tæp tvö ár. Þau
skiidu árið 2000 í góðu og eru enn
góðir vinir.
Nokkrum dögum eftir skilnað-
inn, eftir að hafa verið úr sviðsljós-
inu í sex ár (fyrir utan reglulegar
fréttir af vinskap hans og ætlaða
barnaníðingsins Michaels Jackson
og ýmsum fjölskyldu- og peninga-
tengdum málaferlum), söðlaði hann
um, dreif sig til London og tók að sér
hlutverk fimmtán ára drengs sem
tældur er af þrítugri konu í leikriti í
West End. Leikritið vakti mikla
lukku og þótti Culkin sýna stórkost-
leg tilþrif í hlutverld drengsins.
Þessa sjö mánuði sem hann var í
London, og hann kallar „útlegðina",
segist hann hafa drukkið flösku af
víni á hverju kvöldi og lifað eins og
bóhem. Hann leit á þetta sem frí
frekar en vinnu enda var piltur ekki í
neinum fjárhagsvandræðum. Hann
fékk ekki að vita hvað hann átti mik-
inn pening fyrr en hann varð átján
ára og það var talsvert mikið.
Það var svo árið 2003, eftir níu
ára frí sem upphaflega átti að vera
endalegt, að hann sneri aftur í indí-
myndinni (independant film) Party
Monster þar sem hann lék samkyn-
hneigðan, krakkreykjandi morð-
ingja sem drepur dópsalann sinn
með því að sprauta hann með stíflu-
eyði og henda honum í á. Við gerð
myndarinnar var Culkin mjög hlé-
drægur og gersamlega laus við alla
stjörnustæla og ekki var mikið ijall-
að um endurkomu hans í fjölmiðl-
Culkin og Wood
Strákurirm sem var
alltafeinn heima.þ.e.
Culkin, sést hér ásmt
annarri barnastjörnu
sem er reyndar öllu
frægari I dag, Elijah
Wood. Hann er
þekktastur fyrir
hlutverk sitt sem
Fróöi Baggi I
Hringadróttinssögu.
um enda var búið að telja hann af í
bransanum fyrir löngu þrátt fyrir
London-mánuðina. Þær fáu fréttir
sem birtust í fjölmiðlum í kringum
leik hans í myndinni voru á þá leið
að hann væri sjálfur samkyn-
hneigður, í meðferð, fangelsi eða
tengdust næturheimsóknum hans f
Neverland Michaels Jackson.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
hann er búinn að vera í sambandi
með úkraínsku leikkonunni Mila
Kunis sem leikur Jackie í That 70’s
Show og ljær Meg Griffin í Family
Guy rödd sína í tvö ár. Þau skötu-
hjúin unna sér vel í New York. Hann
hefur aldrei farið í meðferð, aldrei
lent í fangelsi en reykir þó eins og
strompur (við tökur á Party Monster
fékk hann það hlutverk að kenna
Marilyn Manson að reykja, sjáið þið
það fyrir ykkur?) og vill ekki heyra
minnst á vinskap sinn við Michael
Jackson eða æduð kynferðisbrot
hans gegn börnum.
Culkin er guðfaðir tveggja barna
Jacksons, Paris og Prince, og því
virðist hann ennþá vera góður vinur
og félagi furðufuglsins.
Eftir ágætisframmistöðu í Party
Monster fékk hann sitt næsta hlut-
verk, í indí-myndinni Saved! sem er
einmitt sýnd á kvikmyndahátíð í Há-
skólabíói um þessar mundir. Þar leik-
ur hann fjölfatlaðan bróður stúlku
sem verður ólétt í kristilegum skóla.
Nýju hlutverkin hans eru kannski
engar stjömurullur en Culkin er að
sögn hæstánægður með lífið og leik-
inn og segist ekki hafa áhuga á að
verða stjarna á ný, hann sé bara feg-
inn að vera ekki algerlega útbmnnin
eins og flestar fyrrverandi barna-
stjörnur.