Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 Helgarblað DV 'r * jr Talin bera ábyrgð á dauða tveggja kristnlboða Lögreglan í Kaliforníu eru að yfirheyra 21 árs gamlan mann frá Winsconsin sem talinn er bera ábyrgð á morði tveggja kristniboða. Nicholas Scarseth gaf sig sjálfur fram við lögregl- una eftir að lýst hafði verið eftir honum. Hann hefur hvorki verið handtekinn né ákærður. Móðir Scarseth segir son sinn heittrúaðan kaþólikka sem hafi andúð á öðrum trúarbrögðum. Hún segir hann þó ekki ofbeld- isfullan heldur finnst honum gaman að rökræða og æsa fólk upp á móti sér. Lindsay Cuts- hall, 23 ára, og kærastinn hennar Jason Allen voru skotin í höfuðið af stuttu færi þar sem þau voru í útilegu. Fórnarlömb Hobsons jörðuð Um 150 manns fylgdu James og Joan Britton til grafar í vik- unni. Gömlu hjónin voru tvö af fórnarlömbum Mark Hobsons. Lík hjónanna fundust á heimili þeirra þann 18. júlí. „Þetta hryllilega athæfi hefur ekki aöeins snert tjölskyldur fórnar- lambanna heldur allt sam- félagið," sagöi presturinn. Iljónin voru afar vel liðin í hverfinu og nágrannarnir lýstu þeim sem rólegum og vingjarn- legum. Sama dag og þau fundust látin fundust einnig lík Claire og Diane Sanderson en Hobson er einnig talinn bera ábyrgð á dauða þeirra. Lá lifandi í líkkistunni Kínverskur maður sem hafði telcið tvö skólabörn í gíslingu var skotinn niður eftir að hann hafði hlaupið þrjár húsa- lengdir. Zhang Kailin, 36 ára, var skotinn í höfuðið og brjóstið. Lögreglan taldi Kailin látinn og var hann því settur í bráðabirgðar lík- kistu. Tveimur tímum síðar heyrðust hins vegar stunur úr kistunni og til mikillar undrun- ar var maðurinn enn á lífi. Kailin liggur nú alvarlega slas- aður á sjúkrahúsi en börnin sluppu ómeidd. Örlögum tveggja unglingsstúlkna var fléttað saman þegar geðsjúkur afbrotamaður rændi þeim. Stelpurnar sýndu ótrúlegt hugrekki þrátt fyrir ömurlega meðferð mannsins á þeim. Mojave eyðimörldn í Bandaríkjun- um hefur lengi verið vinsæll áfanga- staður fyrir unglinga. Landslagið er fallegt og asi og læti Los Angeles íjarri. Staðurinn hefúr lengi verið sam- komustaður unglinga þar sem þeir leggja bílunum sfnum, njóta útsýnis- ins og kynnast fýrstu ástinni. En sveit- in getur verið alveg jafn hættuleg og borgin eins og tvær unglingsstúlkur áttu eftir að kynnast seint í ágúst árið 2002. Hin 16 ára Tamara Brooks keyrði með kærastanum sínum Eric Brown Sérstæð sakamál upp að Mojave eitt kvöldið. Eric hafði nýlega eignast fallegan Ford Bronco. Innan við hálftíma hafði annar bíll lagt við hliðina á þeim. Ökumaðurinn var aleinn og mun eldri en ungling- amir. Roy Ratcliff, 37 ára, hafði stolið bflnum sem hann sat í og var í miklu uppnámi. Ránstilraun breytist í mannrán Tamara og Eric sátu í rólegheitun- um og hlustuðu á tónlist þegar Tamara fann að einhver var að fylgjast með þeim. Þegar hún sá andlit karlm- anns hélt hún fyrst að um lögregluna væri að ræða. Þegar maðurinn dró upp byssu vissi hún þó að svo væri ekki. „Látið mig fá peningana!" Þótt Eric væri stór og sterkur vissi hann að hann ætti ekkert í mann með byssu. „Út úr bflnum," öskraði maðurinn og geðveikin skein úr augum hans. Ratcliff skipaði Eric að leggjast á jörð- ina og snéri sér svo að Tamöru. Hann sagðist ekki ætla að meiða hana, hann ætlaði aðeins að taka bflinn. Tamöru létti en við það virtist maðurinn skipta um skoðun og batt hana fasta inni í bflnum. Þessu næst læddist Roy að öðrum bfl sem hafði verið lagt í nágrenninu. Inni í honum sátu Jacque Morris, 17 ára og kærastinn hennar Frank Mel- ero. Áður en þau vissu þrýsti Roy byssunni upp að höfði Melero. Þegar unglingarnir höfðu látið manninn fá alla peningana sína skipaði hann Mel- ero út úr bflnum og batt hann á hönd- um og fótum. Jacque skipaði hann hins vegar upp í bflinn hjá Tamöru. Þótt stelpumar væm á svipuðum aldri og báðar í ffamhaldsskóla höfðu þær aldrei sést áður. Þótt þær væm bundnar á fótum og höndum tókst þeim samt að haldast í hendur þegar bfllinn keyrði af stað. Nokkrum mínútum seinna hafði Melero tekist að leysa sig. Hann hringdi strax í mömmu sína sem hringdi í lögregluna. Melero tólcst að gefa lögreglunni greinagóða lýsingu á bflnum og leitin að manninum hófst strax. Líkt og í bíómynd Móðir Tamöm var erlendis og afar bmgðið er hún fékk fréttimar. Móðir Jacque var hins vegar steinsofandi. „Ég vakti manninn minn og sagði honum að Jacque hefði verið rænt. Hann trúði mér ekki. Við fórum strax upp á lögreglustöð en vorum send heim til að sitja við símann ef hún myndi hringja. Allt í einu fýlltist garð- urinn af lögregluþjónum og ég sagði við Ron að þetta væri eins og í bíó- mynd. Hann reyndi að róa mig og minnti mig á hversu sjálfstæð og þroskuð Jacque væri. Ég trúði alltaf að hún kæmi aftur heim. Melero kom til Tamara og Bush Tamara hitti Bush for- seta Bandaríkjanna stuttu eftir að hún losnaði undan Roy Ratcliff. Maður sem danska lögreglan hefur lýst eftir síðan 2001 fannst niðurgrafinn í yfirgefnum garði. Morðingi mannsins var drepinn fyrr í sumar. Morðinginn var sjálfur myrtur Nú þegar danska lögreglan hef- ur nafngreint l£k mannsins sem fannst í frystikistu á sveitabæ ná- lægt Hróarskeldu sem Jens Wagn Flannov telur lögreglan að Flannov hafi sjálfur borið ábyrgð á morði áður en hann lést. Lík sem fannst niðurgrafið í yfirgefnum garði við Holbæk er af hinum 51 árs Benny Cederquiest sem hvarf í desember 2001. Lík Flannovs fannst í lok júlí mánaðar. Um fimm manns, þar á meðal fyrrum vinir Flannovs, hafa verið dæmdir fyrir morðið. Lögreglan telur að Cederquiest hafi verið drepinn í leiguíbúð sinni í Bröndby. Ferðir Flannovs hafa verið raktar í íbúðina og kenning lögreglunnar er sú að Flannov hafi drepið hann og hirt af honum skilríkin áður en hann gróf líldð niður. Flannov hirti því atvinnuleysisbætur Cederquiest í nærri tvö ár áður en hann var myrtur auk þess sem einhver hefur tekið út af bankareikningi hans. Lögregl- an í Hróarskeldu hefur beðið alla sem einhverja vitneskju hafa um málið að gefa sig fram. crwctikUta Jens Wagn Flannov fannst i S^veitabJ.Hann hafði verið harinn ti!dauða. Fimm manns sitja mm fynr morðið. Benny Cederquiest Hvarfidesem- I ber 2001. Morðinginn hirti atvinnu- leysisbæturnar og mjög líklega tók | hann peninga út af bankabók hans. <
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.