Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Side 51
DV Sport LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 57 Hammáað skila gullinu Fimleikadómarax hafa farið þess á leit við Bandaríkjamann- inn Paul Hamm að hann skili gullverðlaunum sínum sem hann hlaut á ólympíuleikunum. Dóm- urunum er gert að sök að hafa gefið aðalkeppinauti Hamms, Suður-Kóreumanninum Yang Tae-young, of lága einkunn sem varð til þess að Hamm seig fram úr og stóð uppi sem sigurvegari. Þremur dómurum var vikið úr starfi vegna málsins. Það var Al- þjóðafimleikasambandið sem óskaði eftir því að Hamm myndi framselja gullið til Tae-youngs. Talsmönnum Hamms finnst framferðið með ólíkindum og segja hneyksli að reynt sé að varpa ábyrgðinni yfir á aðra með þessum hætti. Það komið gagnrýní á dómgæsluna fimleikakeppni leikanna og mál Hammseralls ekki það eina 4sem hefur komið uppíAþenu. í kjölfarið hefur virðing íþróttarinnar hrapað enda aldrei gott í íþróttunum þegar bestí maðurinn/liðið vinnur ekki. Paul Ilamm vann einnig silfur á slá og með bandaríska liðinu f íjölþrautinni. Hann er mjög sár og hefur þegar snúið aftur til síns heima í Bandarfkjunum. FH-ingar unnu það frækilega afrek að tryggja sér sæti í 3. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu á miðvikudagskvöld. Hinir gjöfulu Gaflarar gerðu sér lítið fyrir og báru sigurorð af skoska úrvalsdeildarliðinu Dunfermline í Skotlandi, 1-2 og fóru því samanlag áfram 4-3. f fyrstu umferð slógu FH-ingar út velska liðið Haverfordwest og það nokkuð sannfærandi. Það blés reyndar ekki byrlega fyr- ir FH-inga í leiknum í Skotlandi því þeir lentu undir á 72. mínútu en þá skoraði Gary Dempsey. Öll sund virtust lokuð en FH-ingar fundu út- gönguleið ogÁrmann Smári Bjöms- son jafnaði metin á 83. mínútu en hann hafði komið inn á sem vara- maður aðeins þremur mínútum áður. Það var síðan hinn frábæri danski varnarmaður, Tommy Niel- sen, sem tryggði FH-ingum sigur með marki á lokamínútunni. Meiri- háttar sigur því staðreynd. Þrátt fyrir að fáir hafi búist við þessum sigri var margt sem benti til þess að FH væri ekki með neitt síðra lið en það skoska. Gaflararnir góðglöðu vom klaufar að missa fyrri leikinn í jafn- tefli og gerðu sér þá vel grein fyrir því að þeir gætu alveg slegið þetta skoska lið út. Með fulla trú á árangri í farteskinu héldu FH- ingar til Skotíands, stað- ráðnir í að spila af krafti sinn alþekkta og skemmtí- lega sóknarbolta og það skilaði liðinu áfram í 3. umferð. Afskaplega sáttir Guðmundur Árni Stefánsson er formaður knattspyrnudeildar FH og DV-Sport sló á þráðinn til hans í Mónakó þar sem hann var viðstadd- ur dráttinn. Guðmundur Árni var sáttur: „Maður er varla búinn að jafna sig eftir þennan sögulega sigxn,“ sagði hann og bættí við: „Það var ágætt að fá þetta þýska lið því við ættum að eiga möguleika í það þótt við vit- um ekki svo mik- ið um það á þess- ari stundu. Á hinn bóginn má segja að fjárhagslega hefði ver- ið best að fá Middles- borough, þeir voru stærsta liðið sem við gátum dregið en það stendur enginn í þessu til að græða peninga. Við viljum komast áfram og emm þar af leiðandi af- skaplega sáttír þessa dagana og nú er bara að setja punktinn yfir i-ið í keppnunum hér heima." sms@dv.is FH-ingar slógu út skoska liðið Dunfermline í Evrópukeppni félagsliða. Náðu þeim árangri að verða fyrsta íslenska knatt- spyrnuliðið til að komast í þriðju umferð keppninnar. Sögulegur sigun FH-inga í Skotland i « www.toyota.is Sýningin er opin iaugardag kl. 12 - 16 sunnudag kl. 13 - 16 TODAY TOMORROW TOYOTA um helgina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.