Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2004, Qupperneq 21
3DV Sport
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 21
Ekki var spáð miklu markaregni fyrir leik íslands og Ungverjalands í Búdapest. Þeir sem spáð höfðu
markalausu jafntefli urðu að gleypa þá spá með öllu þvi mörkunum rigndi í Ungverjalandi.
Unprsk markasúpa
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu er án stiga eftir fyrstu
tvo leikina í undankeppni HM.
Um helgina lágum við fyrir
Búlgörum en í gær töpuðum
við fyrir Ungverjum í Búdapest.
Fyrri hálfleikur byrjaði ekkert
sérstaklega vel því Jóhannes Karl
Guðjónsson fékk að h'ta gula spjaldið
eftir 55 sekúndur og varð því að leika
nánast allan leikinn með gult spjald á
bakinu. Ekkert sérstök staða fyrir
mann eins og Jóhannes sem kann því
vel að leika fast.
Það var allt annað yfirbragð á
íslenska hðinu strax í byrjun heldur
en var gegn Búlgaríu á Laugardals-
velh um síðustu helgi. Iiðið var vel
skipulagt og baráttan til mikfllar
fyrirmyndar. Eins og við var að búast
lá íslenska Uðið frekar aftarlega og
freistaði þess að sækja hratt.
Sú taktík gekk vel því Eiður Smári
var mjög h'flegur fr ammi og duglegur
að sækja boltann aftur á miðjuna. Á
36. minútu lék Eiður laglega á tvo
vamarmenn Ungverja og komst í
opið færi. Skotið var hins vegar ekki
nógu hnitmiðað og fór beint á Gabor
Kiraly, markvörð Ungverja.
Eiður Smári skorar
Aðeins þrem mínútum síðar
komst Eiður Smári aftur í fínt færi og
í það skiptið urðu honum á engin
mistök. Þórður Guðjónsson sendi
laglega sendingu frá hægri kanti,
Eiður laumaði sér fram fyrir
vamarmann og stangaði boltann af
miklu afli í netið. Algjörlega óverjandi
fyrir Kiraly markvörð.
Ungverjar vom sfegnir og náðu
ekkert að ógna íslenska markinu það
sem eftir lifði fyni hálfleiks. Reyndar
náðu þeir svo gott sem ekkert að
ógna íslenska markinu í hálfleiknum
enda var vörnin þétt og Árni Gautur
ömggur. Besta færi Ungverja í
hálfleiknum var skot fyrir utan teig
sem Árni Gautur varði ömgglega.
íslenska liðið byrjaði síðari
hálfleikinn af miklum krafti og
Þórður Guðjónsson komst í
sannkallað dauðafæri á 49. mínútu er
hann fékk að valsa einn og óáreittur
upp hægri kantinn og inn í teiginn.
Þórður skaut fast að marki en skot
hans fór rétt fram hjá marki
Ungverja. Þarna hefði Þórður getað
gert betur en það munaði litlu.
Ungverjar vakna
Skot Þórðar var eins og vænn
kinnhestur í andht Ungverja sem
hófu að sækja þéttar og markvissar
að íslenska markinu. Jafiit og þétt
þyngdist sókn Ungverja og maður
fékk það að tilfinninguna að
jöfrtunarmarkið lægi hreinlega í
foftinu.
Sú tilfinning var rétt því á 63.
mínúta bar þung pressa Ungverja
árangur. Heimamenn sendu laglega
sendingu frá hægri yfir á fjærstöng
þar sem Arnar Grétarsson gleymdi að
dekka Zoltan Gera. Sá ungverski
þakkaði pent fyrir sig með því að
skalla boltann í netið. Erfitt er að
segja hvort Árni Gautur hefði átt að
verja skallann en hann leit ekkert
sérstaklega út þegar skallinn kemur á
nærstöng.
Ungverjar vom ekki mettir og þeir
settu annað mark á okkur korteri fyrir
leikslok er rangstöðugfldra
íslendinga brát, Sandor Torghelle
slapp í gegn og lagði boltann
auðveldlega í fjærhornið. Aftur leit
Árni Gautur ekkert sérstaklega vel út
en hann staðsetur sig alveg við
nærstöngina er skotið kemur.
Markið var reyndar nokkuð
umdeilt því íslenska liðið vildi fá
aukaspyrnu rétt á undan er Eiði
Smára var bmgðið fyrir utan
ungverska teiginn. Norski dómarinn
dæmdi ekki neitt, Ungveijar
brunuðu upp og skomðu.
Héldu flestir að íslenska liðið
hefði lokið keppni þama en svo var
núekki.
Þeir rifu sig strax upp og byijuðu
að þjarma að Ungverjum. Eiður
Smári átti síðan snilldarsendingu á
Indriða Sigurðsson á 78. mínútu.
Indriði var einn á auðum sjó og lyfti
boltanum laglega yfir Kiraly.
Þessi lokakafli leiksins var alveg
rosalegur því Ungverjar komust aftur
yfir á 80. mínútu er íslenska vömin
svaf illilega á verðinum. Það nýtti
Imre Szcabics sér vel og laumaði
boltanum auðveldlega í íslenska
markið. Ótrúlegur leikkafli.
Lítið gerðist á lokakaflanum og
annað tap því staðreynd.
henry@dv.is
Barátta Það var hart banstíleik íslands
og Ungverjalands í Búdapest Igær, Heiðar
Helguson sést hér íátökum wð einn
leikmann ungverska liðsins.Meiðar barðist
grimmilega íleiknum en tokstekki að
skora
Fögnuður Það ríkir þjóðhátíðarstemning i Króatíu þessa dagana vegna árangurs knattspyrnulandsliðsins. Það gerði sér litið fyrir og sigraði i
Svíþjóð í gær og er efst í riðli okkar Islendinga.
Króatar þurfa að sigra
Skelltu Svíum í Stokkhólmi
Einn annar leikur fór fram í riðli
okkar fslendinga í gær en þá tóku
Svíar á móti Króötum í Stokkhólmi.
Króatar byrjuðu vel um síðustu
helgi er þeir lögðu Ungverja á
heimavelli, 3-0. Svíar byrjuðu ekki
síður vel en þeir rasskelltu Möltu á
útivelli, 7-0.
Þessi tvö lið eru talin vera þau
bestu í okkar riðli en Króatar em
með besta liðið í riðhnum miðað við
fyrstu tvo leikina því þeir gerðu sér
lítið fyrir og lögðu Svíana, 1-0.
Það var Darijo Srna sem skoraði
eina mark leiksins á 63. mínútu.
Króatar eru því efstir í riðlinum
eftir tvo leiki með fullt hús stiga.
Svíar hafa þrjú stig, sem og Búlgarar.
og Ungverjar. ísland og Malta sitja
síðan í neðstu sætunum en hvorugt
liðið er komið með stig.
Úrslitin í riðlinum sýna það sem
menn töluðu um í upphafi að hann
væri mjög jafn. Eins og staðan er í
dag virðast Króatar hafa örlítið
forskot á hin liðin en undankeppnin
er löng og það þarf síður en svo að
vera raunin á næsta ári.
íslendingar eiga næst leik gegn
Möltu á útivelli en í kjölfarið á því
fáum við hið skemmtilega landslið
Svía í heimsókn og þá verður
vonandi uppselt á Laugardalsvelh.