Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Side 2
2 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjaíds.
Hvað veist þú um
hamstra ?
1 Hvað heitir vinsælasta
tegundin?
2 Hvers konar dýr eru
hamstrar?
3 Hvað eignast þeir marga
unga?
4 Hvað er meðgöngutími
þeirra langur?
5 Af hverju hjóla þeir mest
á nóttunni.
Svör neðst á síðunni
Blaðaðívest-
norrænum
tímaritum
Vefsíðan
www.timarit.is
Á vefsíðunni er veittur
aðgangur að 300 þúsund
mynduðum blaðsíðum
blaða og
tímarita frá 1773-2001 frá
Færeyjum, íslandi og
Grænlandi. Aðgangur er
öllum opinn og stuðst er
við nýjustu tækni í geymslu
og miðlun upplýsinga.
Markmiðið er að bæta að-
gang að prentuðum biöð-
um og tímaritum og bjóða
upp á nýjar rannsóknarað-
ferðir. Auk almenns frétta-
efnis og auglýsinga er
þarna efni á sviði bók-
mennta, sagnfræði, ætt-
fræði og mannfræði. Vest-
nord er samstarfsverkefni
Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns, Foroya
landsbókasavn og Nunatta
Atuagaateqarfia.
Nýja bólan
Þegar eitthvað er ekki ný
bóla, erþað engin nýlunda,
ekki i fyrsta sinn sem eitt-
hvað (óæskilegt) gerist.
Bólusóttin var drepsótt sem
felldi þúsundir íslendinqa
fyrráöldum,hún
varyfirleitt kölluð
bóla eða bólan. Ýmis af-
brigði geisuðu afbólusótt
og margir urðu ónæmir
fyrir ákveönum sóttkveikj-
um. Þeir fengu þvl ekki sótt-
ina nema að ný bóla, ný
tegund, stingi sér niður.
Málið
1. Gullhamstur. 2. Nagdýr. 3.5 til 9.4.16
dagar. 5. Þeir eru næturdýr, velja fremur
nótt en dag til athafna.
Halldór talar en mætti segja meira
Gott að Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra skyldi loksins taka til máls
tun það sem Haildór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra var aldrei til umræðu um;
það er að segja aðdraganda fraksstríðsins.
Halldór var að vísu óspar á stuðningsyflrlýs-
ingar við stríðið áður en það skall á og var-
aði sterklega við hættunni miklu sem
heimsfriðnum stafaði af Saddam Hussein og
alllengi eftir að strfðsátök hófust fyrir alvöru
mælti hann líka hraustlega um þau hættu-
legu gereyðingarvopn sem brátt myndu
finnast og sýna fram á nauðsyn þessa stríðs
- og réttmæti þess stuðnings sem fslending-
ar veittu Bandaríkjamönnurn.
En eftir að það var ljóst orðið að í írak
myndu ekki finnast nein gereyðingarvopn
og stærsti hlutinn af málflutningi Banda-
ríkjamanna fýrir stríðið hafði verið byggður
á óskhyggju, fávisku og - í verstu tilfellunum
- hreinum blekkingum, þá skall á þögn í ut-
anríkisráðuneytinu. Og Halldór fékkst ekld
tíl að ræða málið, hvernig sem hann var
spurður.
Nú hefur Halldór loksins tekið af skarið og
fallist opinberlega á að hann eins og fleiri
hafi fengið rangar upplýsingar þegar þeir
gengu til liðs við stríðsmasldnu Bandaríkja-
manna. Halldór talar að vísu alltof hógvær-
lega og fæst ekki til að gagnrýna Bandaríkja-
menn á nokkum hátt, þrátt fyrir þeirra
röngu upplýsingar, en það er nú samt skárra
en ekkert ao hann skuli yfirleitt hafa fengist
til þess að ræða málið.
Furðulegt er hins vegar að Halldór skuli
reyna að ímynda sér að „fortíðin skipti ekki
máli“ í þessu sambandi og til lítils sé að
fjalla nákvæmlega um málið úr því sem
komið er. Vitanlega skiptir það miklu máli
að við fslendingar eins og aðrir fáum sem
nákvæmastar upplýsingar um hvemig það
vfldi tíl að okkar æðstu ráðamenn tóku
ákvörðun um að styðja svo umdeUdan
stríðsrekstur.
HaUdór ætti ekki að skirrast við að ræða
máUð og gera hreint fyrir sínum dyrum.
Hann er nýtekinn við embætti forsætisráð-
herra og mim eins og aðrir fá sína hveiti-
brauðsdaga í því embætti. Það mundi auka
mjög trú fólks á hinum nýja forsætisráð-
herra ef hann efiidi nú sjáífur tíl opinskárrar
og hreinskilinnar umræðu um þetta mál, og
sýna fólki fram á að HaUdór Ásgrímsson ótt-
aðist ekki umræður um erfið og viðkvæm
mál.
Illugl Jökulsson
N0KKUÐ HEFUR VERIÐ RÆTT að und-
anförnu um hvort og þá hvernig
æskilegt sé að innflytjendur til
íslands verði skyldaðir til að læra
íslensku. Enginn fer í grafgötur um
að vitaskuld er heppilegast fyrir þá
sem hingað flytjast að kunna sem
mesta og besta íslensku en á það
beinlínis að vera lagaskylda að ný-
búar læri íslensku?
UMRÆÐUR UM ÞETTA hafa einnig
verið áberandi í Danmörku, þar sem
aukinnar hörku í garð innflytjenda
gætir nú síðustu misserin og nú
hefur Bertel Haarder, ráðherra inn-
flytjendamála, boðað frumvarp sem
heimilar að sekta þá innflytjendur
sem sluksa dönskunámið. Sektin á
að nema um 360 þúsund íslenskum
krónum og mun eiga að dragast af
um 600 þúsund króna tryggingu
sem údendingar þurfa að leggja
fram áður en þeir fá dvalarleyfi í
Danmörku.
FANNEY RÚS ÞORSTEINSDÓTTIR laga-
nemi skrifar um málið á deiglan-
.com og segir þar meðal annars:
„Ráðherrann greindifrá því... að
með þessu væri verið að hjálpa inn-
flytjendum og auka atvinnumögu-
leika þeirra. Ætlunin væri ekki að ná
peningum inn í þjóðarbúið heldur
að fá fólk til að læra dönsku. Lang-
flestir nýir íbúar íDanmörku setjast
á skólabekk til að læra tungumálið
en næstum þriðjungur þeirra hættir
náminu. Sektimar eiga því að vera
leið til að minnka þetta hlutfall.
Þá var í vikunni einnig greint frá
tillögum Venstre um að auka heim-
= ildir barnaverndaryfírvalda til að
■« taka börn innflytjenda frá foreldrum
.o sínum og færa fósturforeldmm. Er
einkum haft íhuga að færa börn frá
í þeim fjölskyldum þar sem þeim eru
™ kennd gildi sem ekki geta liðist í
dönsku samfélagi.
'O
IRENE SIM0NSEN, talsmaður
x Venstre í innflytjendamálefnum,
sagði að margir innfíytjendur færu
™ til að mynda ekki leynt með haturs-
E fullar skoðanir sínar á Dönum. Eins
- og staðan væri í dag hefðu yfírvöld
- eingöngu heimildir til þess að taka
^ börn frá foreldrum þar sem greinileg
vanræksla ætti sér stað. Það væri í
■- raun einnig vanræksla að leyfa
o börnum ekki að aðlagast dönsku
þjóðfélagi og því væri þeim betur
borgið hjá fjölskyldum þar sem þau
læra dönskgildi.
snakke d
Fyrst og fremst
Öþörf myndbirting
ÞÓTT SKILJANLEGT SÉ sé að Danir,
sem og aðrar þjóðir, vilji að innfíytj-
endur aðiagist háttum landsins þá
verður ekki annað sagt en aðgerðir
af þessu tagi nái nokkuð langt og
skerði réttindi innfíytjenda svo um
munar. Það sem veldur undirritaðri
áhyggjum er hvort ekki líði á löngu
þar til íslendingar taki upp svipaðar
reglur hér á landi, því við höfum nú
löngum sótt í smiðju annarra Norð-
urlandaþjóða þegar kemur að inn-
flytjendalöggjöf. Til að mynda er
fyrirmyndin að hinni umdeildu 24
ára reglu í útlendingalögunum
fengin frá Dönum, en hún kveður á
um að maki útiendings skuli vera
eldri en 24 ára til að unnt sé að veita
honum dvalarleyfí aðstandanda.
Sagði meðal annars í greinargerð-
inni með íslensku lögunum að rík
vemdarsjónarmið lægju að baki og
byggt væri á reynslu nágrannaríkja.
EVRÓPURÁÐIÐ GAGNRÝNDI nýlega
dönsku innflytjendalöggjöfína og
tiltók einkum hina ströngu 24 ára
reglu. Er löggjöfm hin strangasta í
Evrópu og óttast ráðamenn í Evr-
ópuráðinu að fleiri þjóðir eigi eftir
að fylgja íkjölfarið með svipaða lög-
gjöf. Otti Evrópuráðsins er á rökum
reistur, enda hafa íslendingar þegar
fylgt Dönum hvað varðar24 ára regl-
una. Það er bara að vona að íslend-
ingar fylgi ekki í blindni sífellt
strangari innflytjendalöggjöf ná-
grannaþjóðar okkar, að minnsta
kosti ekki án þess að mjög veiga-
mikil rök búi þar að baki og að af-
loknum ítarlegum athugunum. “
VIÐ ÞESSU ER ÞVi AÐEINS að bæta að
við hlökkum til þegar danska pólitíið
fer að elta uppi íslendingana á
sósíal í Kaupmannahöfn og tékka á
dönskukunnáttu þeirra.
UNGUR LJÓSMYNDARI, sem
nokkuð hefur unnið fyrir DV ■
gegnum tíðina, tók í síðustu viku ■
myndir af Ástþóri Magnússyni á i|
fömum vegi þar sem hann sat og J
talaði í síma í bíl sínum á götu-
homi. Reiddist Ástþór þessu og iu
taldi innrás í einkalíf sitt. Ljós- s
myndarinn benti á rétt sinn til að "
ljósmynda á almannafæri. Kallaði
Ástþór á lögregluna en hún taldi sig
ekkert geta gert honum til hjálpar;
lagaheimild til myndatöku á opin-
bemm vettvangi væri ótvíræð.
Frá þessu sagði DV á laugardag
og birti myndir ljósmyndarans.
EFTIR KVARTANIR ÁSTÞÓRS á laug-
ardag vegna ffásagnar af þessu (og
birtingar myndanna) er það niður-
staða ritstjóra DV að fuUkomlega
ástæðulaust hafi verið að birta um-
ræddar myndir af forsetaffambjóð-
andanum. Þær vom að vísu ekki
teknar að ffumkvæði blaðsins en í
þeim var ekkert fféttagildi sem rétt-
lætti bbtinguna.
Ástþór Magnússon hefur því ver-
ið beðinn afeökunar af ritstjóra
TEKIÐ SKAL FRAM að í þessu er ekki
fólgin stefnubreyting af hálfu blaðs-
ins. Blaðið telur enn fyllilega rétt-
lætanlegt og oft æskilegt, auk þess
að vera algerlega löglegt, að birta
myndir sem teknar hafa verið á al-
mannafæri, jafnvel þótt samþykki
þess sem á myndinni er, liggi ekki
fyrir. Þessari stefnu hefur blaðið
hins vegar fylgt af gætni og sé um að
ræða myndir, sem ætla má að fólkið
á myndunum sé algerlega á móti að
verði birtar, þá hafa þær heldur ekki
verið birtar - nema klárlega sé um
að ræða myndir með ótvírætt frétta-
gildi og/eða sem snerta augljóslega
fréttír viðkomandi dags.
blaðsins.
Ritstjórar.