Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Side 8
8 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Guðjón í Oz
borgiskuld
Guðjóni Má Guðjónssyni,
sem löngum hefur verið
kenndur við hugbúnað-
arfyrirtækið Oz, er
stefnt fyrir Héraðs
dóm Reykjavíkur í
dag vegna óút-
kljáðs skuldamáls
við íslandsbanka.
Aðspurður sagðist
Högni Friðþjófs-
son, lögmaður íslandsbanka,
ekki geta tjáð sig um kröfuna
á hendur Guðjóni vegna
bankaleyndar um slík mál.
Heldur hefúr halla undan
fæti í rekstri frumkvöðulsfyr-
irtækisins Oz á síðustu árum
eftir mikla uppgangstíma þar
á undan.
Skógræktá
Grundarfjörð
Grundfirðingar hafa
ákveðið að vefja bæinn
skógi. Bæjarstjómin sam-
þykkti samhljóða fyrir
helgi tillögu um þetta ffá
Sigríði Finsen, forseta
bæjarstjómar. Hefja á
undirbúning að þátttöku í
gróðursetningarverkefhi
Vesturlandsskóga með
það að markmiði að
mynda skjólbelti og úti-
vistarsvæði fyrir ofan þétt-
býli Grundarfjarðar, eins
og segir í samþykktinni.
Hafna kröfum
lóðareiganda
Kópavogsbær hafnar
kröfum eiganda Vatnsenda-
bletts 265 um ff ekari greiðsl-
ur vegna eignamáms á hluta
lóðar hans. Lögmaður lóð-
areigandans heldur því ffam
í bréfi til bæjarins að
eignamámsbætur
sem bærinn hafi þeg-
ar innt af hendi hafi
aðeins verið innborg-
un á tjón lóðareig-
andans. Þórður Þórð-
arson bæjarlögmaður
segir greiðsluna hafa verið
móttekna án fyrirvara og að
bærinn hafi þegar fengið
umráð yfir skikanum. Yfir
bænum vofir því málsókn
lóðareigandans.
Hóta að rífa
svefnkofa
Húseigandi áVatns-
endabletti 81 í Kópavogi
má búast við því að ólög-
leg viðbygging og „svefn-
kofi" á lóð hans verði fjar-
lægður af bæjaryfirvöld-
um. Bæjarráðið samþykkú
fyrir helgi að fela bygging-
arfulltrúa ffamkvæmd á
flutningi hússins ef þurfa
þykir. Skal það gert á
kostnað eigandans. „Bæj-
arráð samþykkir að eig-
anda verði gefinn ffestur í
2 vikur til að fjarlægja
ólöglega viðbyggingu og
nýjan svefnkofa á lóðinni.
Byggingarfulltrúa verði
falin ffamkvæmd á niður-
rifi bygginga ef þurfa þyk-
ir, á kostnað eiganda."
Kattakonan Guðrún Stefánsdóttir stígur nú í fyrsta skipti fram og segir sína hliö á
hinni skrautlegu sögu sem rakin hefur verið í DV i sumar. Börn Guðrúnar og sægur
af hundum og köttum hafa verið tekin af henni. Hún segir bæði ættingja og vini
hafa snúið við sér baki og almenning veitast að sér með fúkyrðum og barsmíðum.
Húsbilinn Hún skilaöi honum aftur til Ein-
ars Thoroddsen iæknis sem ábyrgðist
greiösiu á bilnum.
Guðrún Stefánsdóttir telur eiganda hússins sem hún leigði hjá á
Kjalarnesi viljandi hafa komið henni í allt það klandur sem hún
er nú komin í. Guðrún þvertekur fyrir að vera dýraníðingur. Allt
sem hún vilji sé að fá börnin sín aftur, fá ný dýr og búa í friði í
sveitinni.
„Það er allt rangt sem borið er
upp á mig í fjölmiðlum og ég er alls
ekki dýraníðingur. Þvert á móti get
ég ekki hugsað mér lífið án dýra,“
segir Guðrún Stefánsdóttir sem
nefnd hefur verið kattakonan.
Af Guðrúnu hafa verið teknir
tæplega þrjátíu kettir og sjö hundar.
Nú hafa börnin hennar þrjú einnig
verið tekin af henni. Húsbflnum,
sem Einar Thoroddsen læknir fjár-
magnaði kaup á, hefur hún skilað og
hún var borin út af heimili sínu á
Stekk.
Á húsbíl á hestmannamót
Allt hófst þetta með því að Guð-
rún fór á hestamannamót með börn
sín og hundana sjö á nýjum húsbíl
sem Einar Thoroddsen hafði að-
stoðað hana við að kaupa. Hún seg-
ist hafa farið frá öllu hreinu og fínu,
kettirnir hcift nóg að borða enda að-
eins staðið til að vera tvo daga í burt.
„Þegar ég kom heim var búið að
brjótast inn í húsið, rústa öllu og
kettirnir horfnir. Við gerðum ekki
annað en ganga um og horfa á eyði-
legginguna en fórum síðan til vina
okkar sem búa í sveit og vorum hjá
þeim í heyskap," segir Guðrún, en
ástæða þess að hún á alla þessa
ketti segir hún vera músagang í
húsinu.
Húseigandi hótaði
barninu
„Húsið var allt morandi
í músum. Svo mikið var
um þær að heimiliskett-
irnir náðu ekki að halda
þeim frá,“ segir Guðrún og
bætir við að læðurnar hafi
allar eignast kettlinga á
sama tíma og þess vegna
hafi kettirnir fjölgað sér
svo mikið. Hún hafnar
því alfarið að kettirnir
hafi verið illa haldnir,
allt hafi þetta verið sett
á svið af eigandanum,
Hreiðari Aðalsteins-
syni.
„Þegar við vorum
á leið heim af
hestamannamót-
inu, þá hringdi
Hreiðar í farsíma
dóttur minnar og
hafði í hótunum
við hana. Sagði
við hana: „Nú er
búið að taka
kettina af
mömmu þinni,
næst verða
hundarnir teknir
og síðan þið.“
Guðrún segir barninu hafa verið
mjög brugðið. Þetta sé nákvæmlega
það sem gerðist síðar. Allt væri þetta
að undirlagi Hreiðars sem vildi
hefna sín á
henni
og
koma henni út úr húsinu. „Ég borg-
aði alltaf leiguna á réttum tíma enda
sá bankinn um að millifæra af mín-
um reiking," segir hún.
Kattakonan, Guðrún Hefur misst
heimili sitt, börn, hunda og ketti. Stend
ur ein uppi húsnæðislaus og aiisiaus.
Birna Þórðardóttir miður sín eftir stuld á rauða gönguleðurjakkanum sínum
Þetta var skelfileg lífsreynsla án jakkans
Bima Þórðardóttir blaðamaður
segir farir sínar ekki sléttar eftir að
rauða leðurjakkanum hennar var
stolið af heimili hennar. Bima hefur
notað jakkann sem vörumerki sitt í
menningargöngum sínum um mið-
borg Reykajvíkur. Hún fór í tvær slikar
göngur í góða veðrinu í gær án jakk-
ans. „Þetta var eiginlega skelfileg h'fs-
reynsla að fara í þessar göngur án
jakkans," segir Bima. „Það eina sem ég
hafði vom rauðu hanskamir sem
passa við hann.“
Birna býr á mótum Óðinsgötu og
Freyjugötu og segir að þjófnaður-
inn hafi átt sér stað í kringum tvö til
hálfþrjú um aðfaranótt sunnudags.
„Útidyrnar hjá mér vom opnar. Sá
eða sú sem rændi mig stal jakkan-
um, handtöskum og bakpoka sem
vom rétt fyrir innan útidyrnar," seg-
ir Birna. „Svo virðist sem viðkom-
andi hafi ekki farið inn í íbúðina að
öðm leyti því ég sakna einskis ann-
ars úr íbúðinni.
Bima segir jakkann sérsaumaðan
ítalskan jakka sem ekki passi á aðra en
hana. Auk þess var gsm-síminn henn-
ar í jakkanum. „Þetta var gamall og lú-
inn Nokia-sími. Hann er engum til
gagns nema mér. Þetta er því töluvert
tilfinningalegt tjón íyrir mig."
Menningargöngur Bimu standa
yfir allt árið. Hún hvetur þjófinn að
skila jakkanum íyrir næstu göngu.
„Göngur mínar standa líka yfir
veturinn enda ekkert síðra að skoða
menningarverðmæti borgarinnar á
þeim tíma ársins," segir hún
„Ef viðkomandi hefur samband við
mig og skilar mér jakkanum aftur
verða engin eftirmæli af þessum
þjófnaði," segir Birna. „Ég skal meira
að segja bjóða þjófnum upp á kaffi og
kleinur ef ég fæ jakkann í hendumar
aftur."
„Mér finnst brýnast aö foreidrar barna og unglinga noti sinn lausa tíma
sem mest til þess að vera með þeim/' segir Herdís Egilsdóttir, kennari á eftirlaunum.