Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Page 18
78 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 Sport DV ÍA-ÍBV 2 ■0 18. umf. - Akranesvöllur -19. sept Dómari: Gylfi Þór Orrason (2). Ahorfendur: 1113. Gaefti leiks: 4. Gul spjöld: lA: Stefán (7.), Grétar (53.), Guðjón (80.) - IBV: Páll (56.). RauB spjöld: Engin. Mörkin: 1-0 Julian Johnsson 16. skot úr teig Guðjón 2-0 Julian Johnsson 23. skot úr teig Stefán 2-1 Andri Ólafsson 83. skot úr teig Atli Leikmenn ÍA: Þórður Þórðarson 4 Hjálmur Dór Hjálmsson 4 (62., UnnarValgeirsson 1) Reynir Leósson 4 Gunnlaugur Jónsson 4 Pálmi Haraldsson 3 Guðjón Heiðar Sveinsson 2 (88., Þorsteinn Gíslason -) Grétar Rafn Steinsson 3 Helgi Pétur Magnússon 2 Julian Johnsson 4 Kári Steínn Reynisson 1 Stefán Þór Þórðarson 4 (90., Haraldur Ingólfsson -) Leikmenn ÍBV: Birkir Kristlnsson 2 Matt Garner 1 Tryggvi Bjarnason 3 Páll Hjarðar 3 Mark Schulte 2 Bjarni GeirViðarsson 1 (90., Bjarni Rúnar Einarsson -) Bjarnólfur Lárusson 3 Andri Ólafsson 3 (90., JónSkaftason -) Atli Jóhannsson 1 Einar Þór Dantelsson 4 Steingrímur Jóhannesson 1 (67., Magnús Már Lúðvlksson 1) Tölfræðin: Skot(ámark): 13-11 (7-6) Varin ikot: Þórður 4 - Birkir 5 Horn: 4-11 Rangstöður: 1 -3 Aukaspyrnur fengnar: 22-19 BESTURÁ VELLINUM: Julian Johnsson, (A FRAM-KEFLAVÍK 1-6 18. umf. - Laugardalsvöllur -19. sept. Dómari: Kristinn Jakobsson (5). Áhorfendur: 1501 G»8i leiks: 4. Gul spjöld: Fram: Hans Fróði (53. og 54.), Viðar (70.), Ragnar (72.). Rauft spjöld: Hans Fróði, Fram (54.). Mörkin: 0-1 Þórarlnn Kristjánsson 12. skalli úr markteig Ljubicic 0-2 Guðmundur Steinarsson 32. skot úr teig Ljubicic 0-3 Hólmar örn Rúnarsson 75. skotúrteig Ljubicic * 0-4 Hörður Sveinsson 83. skot úr teig Ljubicic 1-4 Fróði Benjaminsen 85. skot úr teig Ríkharður 1-5 Ingvi Rafn Guðmundsson 88. skotúrteig einlék 1 -6 Hólmar Örn Rúnarsson 89. skot úr teig Ljubicic Leikmenn Fram: Gunnar Sigurðsson 3 Ragnar Árnason 1 Hans Fróði Hansen 1 Eggert Stefánsson 1 (46., Andrés Jónsson 1) Daði Guðmundsson 2 # Andri Steinn Birgisson 2 Ingvar Þór Ólason 1 Viðar Guðjónsson 2 GunnarÞórGunnarsson 2 (72., ómar Hákonarson 1) HeiðarGeir JúKusson 1 (60., Fróöi Benjaminsen 1) Ríkharður Daðason 2 Leikmenn Keflavfkur: Magnús Þormar 3 n Guðjón Antoníusson 2 Stefán Gíslason 4 Haraldur Guðmundsson 4 Ólafur (var Jónsson 4 (80., Ólafur Jón Jónsson -) Ingvi Rafn Guðmundsson 5 Zoran Daníel Ljubicic 6 Jónas Guöni Sævarsson 4 Scott Ramsey 3 (76., Hörður Sveinsson 4) Þórarinn Kristjánsson 3 GuðmundurSteinarsson 4 (70., Hólmar örn Rúnarsson 4) Tölfræðin: Skot(ámark): 9-17 (1-10) Varin skot: Gunnar 4 - Magnús 0. Horn: 8-1 RangstöBur: 0-11 Aukaspyrnur fengnar: 13-11 BESTURÁ VELLINUM: Zoran Daníel Ljubidc, Keflaví ÍBV missti endanlega af íslandsmeistaratitlinum er þeir töpuðu gegn ÍA, 2-1. Þau úrslit breyttu reyndar engu þar sem FH vann sinn leik. Eyjamenn fengu þó silfrið en Skagamenn enduðu í þriðja sæti. Þeir hefðu þurft að vinna með fimm mörkum Eyjamenn áttu aldrei raunhæfa möguleika á fslands- meistaratitlinum í gær því þeir hittu fyrir Skagalið sem lék loksins eins og það á að sér. Skagamenn hreinlegu tættu Eyjamenn í sundur í fyrri hálfleik á Skaganum og ÍBV mátti þákka fyrir að vera aðeins 2-0 undir í leikhlé. Þeir náðu síðan aldrei að ógna Skagamönnum í síðari hálfleik þrátt fyrir að hafa skorað eitt mark. Skagamenn eygðu von um silfur á íslandsmótinu með því að leggja ÍBV með fimm marka mun. Það leit alls ekki út fyrir að vera óvinnandi vígi þegar þeir höfðu náð tveggja marka forystu eftir 23. mínútna leik. Bæði mörkin skoraði Julian Johnsson á fjærstöng eftir sendingar frá vinstri. Matt Garner, bakvörður ÍBV, leit ekkert sérstaklega út í báðum mörkunum. ÍBV átti ekki margar fallegar sóknir en þeir áttu nokkur ágæt skot að marki sem fóru annað hvort í markslána eða Þórður varði vel. Eyjamenn byrjuðu síðari hálfleikinn með stórsókn en hún bar ekki árangur og eftir það var eins og allur vindur væri úr Eyjaliðinu. Þeir klóruðu í bakkann undir lokin en lengra komust þeir ekki. Silfrið var þó þeirra og það er vissulega glæsilegur árangur hjá liði sem margir spáðu að myndi falla í upphafl Vonbrigði Skagamenn enduðu tímabilið á jákvæðum nótum en tímabilið í heild Jiljóta að vera þeim gríðarleg vonbrigði. Það var hrein unun að fylgjast með þeim í síðari hálfleik þar sem þeir sóttu án afláts upp báða kantana. Dældu glæsilegum boltum inn í teiginn og hefðu hæglega getað skorað mörkin fimm sem þá vantaði í fyrri hálfleik. Leikgleðin og viljinn var alls ráðandi hjá ÍA og þessi fyrri hálfleikur hjá þeim var klárlega með því besta sem sést hefur í deildinni í sumar. Svona geta Skagamenn hæglega spilað en undirritaður sá þá síðast leika álíka vel í meistarakeppninni í vor. Einhverra hluta vegna tókst þeim síðan ekki að leika svona í sautján umferðir og Ólafur Þórðarson verður að taka á sig hluta af sökinni þótt hann hafi kennt leikmönnum sínum alfarið um er þeir hafa ekki sigrað. Eftir höfðinu dansa limirnir og því verður Ólafur að gera sér grein fyrir ætli hann sér að ná lengra með liðið. Julian Johnsson kórónaði gott tímabil með fínum leik og tveim mörkum. Hjálmur var verulega sprækur Hetja Skagamanna Færeyingurinn Julian Johnsson var hetja ÍA gegnlBVen hann skoraöi bæði mörkin I sigrinum á IBV. DV-mynd Hari meðan hans naut við en eitraðar sendingar hans sköpuðu oft mikla hættu. Stefán Þórðarson hefur öðlast nýtt h'f á kantinum en hann hefði verið helmingi betri hefði hann spilað fótbolta einu sinni í 90 mínútur. Ef hann væri ekki sívælandi og röflandi væri Stefán verulegt vopn en hann virðist ekki gera sér grein fyrir því. Batnandi mönnum er samt best að lifa. Köflótt sumar „Þetta er búið að vera köflótt," sagði Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA. „Þetta tímabil er búið að vera hálfgrátlegt. Við vissum fyrir mótið að við hefðum mannskap til þess að klára dæmið. Þegar maður hugsar til baka er ansi mörg stig sem við misstum frá okkur. Við getum samt bara kennt sjálfum okkur um. Það er ekkert ef í þessum bransa.“ Eyjamenn virtust ekki vera tilbúnir í verkefhið. Þeir virkuðu taugaóstyrkir og spilamennska þeirra var einföld og fyrirsjáanleg. Þeir létu mótlætið fara snemma í taugarnar á sér og ósjaldan mátti litlu muna að upp úr syði á vellinum. Eyjamenn gerðu sig seka um skelfilegan fautaskap í leiknum sem var þeim ekki til sóma. Þeir hefðu betur eytt kröftunum í að reyna að spila fótbolta. Það gerði Einar Þór Daníelsson - þótt hann hefði reyndar eytt nokkrum tíma í þras - og eina hættan skapaðist af honum. Bjarnólfur var sprækur í fyrri hálfleik en skipti of snemma úr loiattspyrnu yfir í slagsmál og var hann ekkert með í síðari háifleik. Það verður samt ekki tekið af ÍBV að árangur þeirra f sumar er glæsilegur. Þeir búa yfir sterkri liðsheild og leikmenn hafa ávallt verið tilbúnir að fóma sér fyrir liðið og félagana. Það hefur fleytt þeim langt í sumar og verður spennandi að sjá hvort þeir fylgi því eftir næsta sumar. henry@dv.is Keflvíkingar höfðu að engu að keppa en rúlluðu yfir Fram Púað á Fram sem slapp enn og aftur Síðustu fimm ár hafa stuðnings- menn Framara jafnan staðið upp og hyllt sína menn eftir lokaleik Is- landsmótsins en nú var öðru nær. Eftir 1-6 tap gegn Keflavík á Laugar- dalsvelli púuðu þeir fáu stuðnings- menn Fram sem eftir voru á vellin- um en stuttu áður höfðu þeir fagn- að jöfnunarmarki Grindvíkinga gegn Víkingi sem eitt varð til þess að Framarar féllu ekki að þessu sinni. Keflvíkingar geta verið stoltir enda höfðu þeir að engu að keppa og eiga mikilvægan bikarleik fyrir höndum. Framarar vom sprækir rétt í upp- hafi leiks en Keflvíkingar veittu hins vegar harða mótspyrnu, vom miklu betri aðilinn nánast frá upphafi til enda og fimm marka sigur þeirra var síst of stór. mark Keflvíkinga lá í loftinu en það kom ekki fyrr en á 76. mínútu og á lokamínútunum opnuðust allar flóðgáttir Það má kannski segja að Framarar verðskuldi úrvalsdeildar- sæti að ári en þá bara vegna þess að KA og Víkingur voru verri en þeir. Heppnir 17 stig hafa ekki í langan tíma dugað til þess að halda liði uppi en góður kafli fyrst eftir að Ólafur Krist- jánsson tók við liðinu gerði gæfumuninn. Það má sérstaklega hrósa miðju- spilinu hjá Keflvíkingum, þeir spil- uðu sig hvað eftir annað framhjá áttavilltum leikmönnum Fram og unnu þeir Ingvi Rafn Guðmundsson og Jónas Sævarsson af miklum dugnaði. Maður leiksins var hins vegar Zoran Ljubicic sem átti hverja sendinguna af annarri á samherja sína í sókninni sem sköpuðu jafnan mikla hættu. Ljubicic lagði upp fimm af sex mörkum Keflvíkinga, flest með hárnákvæmum og vel tímasettum sendingum. Mín mistök „Ég sé eftir að hafa breytt vörn- inni fyrir leikinn. Það eru mín mis- tök og ég tek þau á mig. Þjálfarinn gerir breytingar og hann verður að standa og falla með þeim. Sem betur fer var ég ekki felldur af þeim þegar á heildina er litið en í þessum leik var það falleinkun", sagði Ólafur Kxistjánsson þjálfari Fram. hrm Faðmlag Framarar föömuðust en skömmuöust sin fyrir frammistööuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.