Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Qupperneq 31
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 31
Ríkisbókin
f síðustu viku kom út saga ráð-
herra íslands og forsætisráðherra
síðustu hundrað árin. Eins og kunn-
ugt er þá er útgáfan hluti af hundrað
ára heimastjórnarafmæli og því
gefin út á kostnað skattgreiðenda.
Það er svolítil kaldhæðni í bókaút-
gáfu forsætisráðuneytisins þegar
haft er í huga að bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs var einkavædd í fyrstu
rfldsstjórn Davíðs Oddssonar. Þegar
forsætisráðuneytið fær Hall Halls-
son eða einhvern annan vanan
sagnaritara til að rita sögu einka-
væðingar í landinu þá er ekki ólík-
legt að í ljós komi að einmitt þessi
einkavæðing hafi verið sú sem
einna mestum deilum olli. Það var
sannarlega hasar þegar bókaútgáfa
Menningarsjóðs var einkavædd!
Ráðherrabókin er auðvitað ágætis
rök fyrir því að einkavæðingin var
óvitlaus, enda er bókin bæði gamal-
dags og hallærisleg. Slíkar bækur
eiga að sjálfsögðu rétt á sér, spurn-
ingin er bara hvort ríkinu beri að
standa að slíkri útgáfu.
Saga karlaveldis
Þrátt fyrir þetta er rétt að hvetja
til lesturs bókarinnar, en á öðrum
forsendum en útgefendur vonast til.
í fyrsta lagi ættu konur landsins að
lesa bókina, enda er þar sögð saga
24 karla. Konur landsins geta við
lesturinn glaðst yfir því að hafa
í fyrsta lagi ættu
konur landsins að
lesa bókina, enda er
þarsögð saga 24
karla. Konur landsins
geta við lesturinn
glaðst yfir því að hafa
verið stjórnað öll
þessi ár afsvo miklum
stórmennum... Um
afreksverk þeirra er
engu logið heldur og
því þurfa konur ekk-
ert að vera að spyrja
sig að því afhverju
engar konur séu í
hópnum.
Birgir Hermannsson
telur forsætisráðherra-
bókirta nauðsynlega
lesningu.
Kjallari
verið stjórnað öll þessi ár af svo
miklum stórmennum. Á bókarkápu
er mynd af þeim öllum og inni í
bókinni eru margar myndir af þeim
lflca. Um afreksverk þeirra er engu
logið heldur og því þurfa konur
ekkert að vera að spyrja sig að því af
hverju engar konur séu í hópnum.
Eða hvað?
Ráðherrabókin er öðrum þræði
saga karlaveldis í landinu og um leið
rétdæting þess og upphafning. í síð-
ustu viku tók einn patríarkinn við af
öðrum í forsætisráðuneytinu og
fórnaði um leið kvenkyns ráðherra
fyrir karlkyns klíkubróður með
minni reynslu og minna fylgi á bak
við sig. Sagan heldur áfram með
sama hætti og fyrr.
Skyldulesning Samfylkingar-
fólks
Annar hópur fólks sem nauðsyn-
lega þarf að lesa bókina eru íslensk-
ir vinstri menn, hvort sem þeir eru
Vinstri-grænir eða í Samfylking-
unni. Sérstaklega er Samfylkingar-
fólki mikil nauðsyn á lestri bókar-
innar; hún ætti í raun að vera
skyldulesning í stjórnmálaskóla
Samfylkingarinnar. Af þeim 24 sem
minnst er á í bókinni eru þrír jafn-
aðarmenn og skipti forsætisráð-
herratíð þeirra engu máli íyrir
stjórnmálasöguna. Lestur bókar-
innar skerpir því hugann og leiðir
fólki fyrir sjónir hvers vegna Sam-
fylkingin var stofnuð. Flokkurinn
var stofnaður gegn ákveðnu valda-
kerfi í landinu, þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn léku (og leika enn) aðalhlutverk.
Ráðherrabókin er því vart annað en
óður til forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins
og forystumanna forvera þessara
flokka. Jafnaðarmenn fá að dingla
með, en aldrei að vera í aðalhlut-
verki. Staðreyndin er sú að forverar
Samfylkingarinnar höfðu mun
minni áhrif á stjórnun landsins en
sambærilegir flokkar í nokkru ná-
lægu ríki.
Boðflenna
Sagan hefur áhrif á sjálfsmyndina.
Framsóknarflokkurinn álítur það
sjálfsagt mál að taka við forsætis-
ráðuneytinu þrátt fyrir lítið fylgi hjá
kjósendum. Öðrum flokkum -
nema helst Sjálfstæðiflokknum
-finnst líka sjálfsagt að Framsókn
leiði ríkisstjórnir. Þetta verður að
breytast. Daður Samfylkingarinnar
við Framsóknarflokkinn er beinlínis
ósiðlegt! Samfylkingin var stofnuð
öðrum þræði til að lækka rostann í
Framsóknarflokknum og breyta
valdakerfinu í landinu. Þetta verður
ekki gert með öðrum hætti en þeim
að Framsóknarflokknum
verði vísað í það sæti sem
honum ber og kjós-
endur telja hann
verðugan. 11,6 pró-
senta fylgi Halldórs
Ásgrímssonar í
Reykjavík norður í
síðustu kosning-
um bendir ein-
dregið til að
hann sé
boðflenna í
stjórnar-
ráð-
inu.
Hvað segir
mamma
„Ég er afskaplega stolt af henni
og finnst hún frábær,“ segir
Hfldur Rúna Hauksdóttir, móðir
Bjarkar Guðmunds-
dóttur, um nýja
plötu dótturinnar,
Medúlla. „Ég hlusta
oft á hana og sér-
staklega finnst mér
útsetningarnar góð-
ar. í sjálfú sér á ég
leð að segja hvort
platan hafi komið mér á óvart.
Einhvem veginn er þetta
þróun og eitt leiðir
af öðm. Næst getur
maður átt von á
einhverju allt öðm
og úr annarri átt.
Svo er alltaf jafn
gaman þegar hún
kemur manni á
óvart og það gerir Björk í
hvert skipti."
• í hátíðarræðu
sinni gaf Guðmundur
Ámi lítið fyrir þann
orðróm að hann væri
á leið í formannsslag-
inn. Þvert á móti
hvatti hann Samfylk-
ingarmenn, unga og
aldna, til að standa saman. Það hef-
ur kannski dregið úr slagkrafti ræðu
Guðmundar að hinn ræðumaður
kvöldsins var Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, varaformaður Samfylk-
ingarinnar. í ræðu sinni skautaði
hún hins vegar léttilega fram hjá
öllu tali um formannsslaginn og
mun í staðinn hafa heillað fundar-
gesti með reynslusögum frá náms-
ámm sínum í Danaveldi...
• Miðað við fund ungkratanna í
firðinum er baráttan milli össurar
Skarphéðinssonar og Ingibjargar
Sólrúnar rétt að byrja. Ýmsir búast
hins vegar við óvæntum útspilum
og var það mál stjórnmálaskýrenda
á ölstofunni um helgina að Tryggvi
Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði,
væri að hugsa sér tU hreyfings.
Tryggvi hleypti öllu í bál og brand
þegar hann óvænt bauð sig fram til
formanns, á móti
Össuri, við stofnun
Samfylkingarinnar.
Flestir telja þó ólík-
legt að Tryggvi yfir-
gefi hið ljúfa lands-
byggðarlíf og skelli
sér aftur í slaginn...
• Aðalfundur
Ungra Jafnaðar-
manna í Hafn-
arfirði var hald-
inn í Alþýðu-
húsinu á föstu-
daginn. Guð-
mundurÁmi
Stefánsson al-
þingismaður
var leynigestur
fundarins og Katrín
Júlíusdóttir fundar-
stjóri. Guðmundur
var svo kosinn sér-
stakur heiðursmeð-
limur ungkratanna
en síðasti heiðurs-
meðlimur var varaþingmaðurinn
Jón Kr. Óskarsson. Það mun vera
Afgreiðslufólk
úti á þekju
Gunnar hringdi:
Alveg finnst mér makalaust
hversu afgreiðslufólk í verslunum
er stundum út á þekju. Iðulega er
eins og blessað fólkið sé hreinlega
ekki í lflcamanum þegar viðskipta-
Lesendur
vini ber að garði. Þegar loks tekst
að hafa upp á afgreiðslumanni
nær hann varla að klára afgreiðsl-
una án þess að næsti starfsmaður
eða þá einhver félaginn komi og
haldi honum uppi á snakki, rétt
eins og maður sé ekki viðstaddur.
Hvað þá að einhverju máli skipti
að verslanir byggja grundvöll sinn
á okkur viðskiptavinunum. Er ekki
hægt að halda námskeið fyrir þetta
fólk?
hafnfirsk hefð fyrir
því að heiðursfélag-
inn fái rós í verð-
laun. Að þessu sinni
var rósin víst bleik
og mun Guðmund-
ur Árni hafa haft á
orði að eitthvað
hefði litur kratarósarinnar fölnað
frá því sem áður var...
Fáðu flott
munnstykki
<^Lyf&heilsa
ww.nícorette.is
yH White-Westinghouse
- amerisk gæða heimilistæki
Þvottavél
Topphlaðin
-10 kg -
Þurrkari
-10 kg-
RAFVORUR
DALVEGI 16c • 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 ■ RAFVORUR@RAFVORUR.IS
*