Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Page 6
6 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 Helgarblað DV FRETT VIKUNNAR Bakið á Bush og kapítal- isminn „Útlenda frétt vikunnar er að minu mati tvlmælalaust bakið á Bush, eða öllu heldur bungan á baki Bush, hvernig svo sem hún er til komin. Hér heima er maður svo sem hættur að kippa sér upp við fréttir af umsvifum kaupsýslu- manna en sfðustu fréttir af Símanum fengu mig til að minnast gömlu samyrkjubúanna. Kapltalisminn er að verða að þvl sem mest angraði þá foröum, samyrkjubúin. Nema bara að nú eiga samyrkjubúin að vera i einkaeign, ekki hjá rfkinu. Ég er ekki frá þvf að betra sé að hafa sllkt á vegum ríkisins' Andrea Jónsdóttir rokkfræðingur. Frétt vikunnar ekki frétt „Eiginlega er frétt vikunnar ekkl frétt; að ekki skuli hafa náðst samkomu- lag i kennaradeil- unni. I fyrsta lagi finnastmérlaun kennara fyrir neðan allar hellur. I öðru lagi finnst mér frammistaða forustu samtakanna afar slök, þeim hefur gjörsamlega mistekist að vinna liðsmenn meðal almennings fyrir sanngjörnum kröfum sfnum. Og f þriðja lagi finnst mér miður að yfirmaður menntamála á íslandi skuli ekki hafa séð og nýtt sér tækifærin til umbóta seml þessari stöðu leynast." Ásgelr Frlðgeirsson, varaþing- maður og almannatengslafulltrúi Samsonar. Bílslys og Kerry „Mér kemur banaslysið í Þjórsárdalnum strax f hug en þar létu tveir ungir menn lífiö.Mérfannst það ansi skuggalegt. Svo er ég óskaplega ánægð með hvað Kerry stóð sig vel f þriðju og síðustu kappræðum þeirra Bush, ég vona bara að hann hafiþetta." Sóley Kristjánsdóttir, nemi og DJ. Kynlíf íslendinga „Frétt vikunnar þótti mér veraframmistaða ís- lendinga f kynlífmu, hún kom mérþægi- lega á óvart. Ég held að skýringin sé fs- lenska lambaketið og vel mætti mark- aðssetja fslenskt lambakjöt um allan heim sem sérlega fjöraukandi matvæli. Um kennaraverkfallið hefur allt verið sagt sem segja þarfog ég hefnúna einna mestar áhyggjur aö rússneski flot- inn úti fyrir Austfjörðum nái aldrei heim.“ Sigmar B. Hauksson, formaður félags skotveiðimanna. Óskilgetin konungsætt og Súpermann „Mér brá nokkuð að heyra þær fréttir frá Noregi að Ólafur V Noregskonungur hefði verið óskilgetinn, ekki sonur sins konunglega föður. En ég verð llka að nefna andlát Christoph- ers Reeve eða Súpermanns f vikunni.Sámað- ur var ekki síður hetja I sínu Iffi eft- iraðhannlamað- ist en á hvíta tjald- inu.Héráheimilinu klipptum viö þegar út mynd afhonum f Súpermannsbúningnum og hengdum upp I eldhúsinu." Margrét Lóa Jónsdóttir, skáld og ritstjórf. Gunnlaugur Briem trommuleikari hefur stefnt Skífunni og vill fá úr því skorið hvar réttur flytjenda tónlistar á hljómplötum liggur. Segir Gunnlaugur útgefendur blóðmjólka upptökur án þess að endurgjald komi til þeirra sem tónlistina leika. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn. Trommuleikarinn „Meðal starfsfélaga minna er ég kallaður naglinn. Ég stend á „Þetta er fallvaltur bransi og þeg- ar verið er að blóðmjólka vinnu manns á þennan hátt vil ég fá svör og skýrar línur," segir Gunnlaugur Briem trommuleikari, sem stefnt hefur Skífunni með aðstoð Félags íslenskra hljómlistarmanna. „Þetta snýst um flytjendarétt og er prófmál um hvar réttur flytjenda liggur varð- andi fluming á plötum," segir Gunnlaugur sem ber í borðið og segir hingað og ekki lengra. Málatilbúnaður þessi er búinn að vera lengi í undirbúningi og fer Gunnlaugur Briem fyrir tónlistar- mönnum sem fjölmargir vilja fá svör við sömu spurningum og hann. Þegar niðurstaða dómstóla liggur fyrir má búast við að ýmislegt verði að leiðrétta af því sem brallað hefur verið í útgáfumálum íslenskrar tón- listar: Týnda kynslóðin „Eitt versta dæmið sem snýr að mér er hljómplata Bjart mars Guðlaugsson- ar, Týnda kynslóð- in, þar sem ég út- setti, stjórn aði upp tökum og lék á fjölmörg hljóðfæri. Þessi plata seldist vel, í um 15 þúsund eintök- um, og síðar var ég svo að sjá þessi lög dúkka upp á barnaplötum hér og þar án þess að nokkuð endur- gjald kæmi til flytjenda og þeirra sem báru hitann réttur hér á landi er vel tryggður en það sama verður ekki sagt um rétt flytjenda," segir Gunnlaugur Briem sem vill í eitt skipti fyrir öll fá úr því skorið hvaða umboð útgefendur hafa til að ráðskast með upptökur sem þeir hafa í fórum sínum. Endurnýting „Það er verið að margnýta vinnu okkar án þess að nokkuð komi í okkar hlut. Það er mergurinn máls- ins," segir Gunnlaugur Briem sem hlaut allt að því heimsfrægð fyrir trommuleik sinn með Mezzoforte. Síðan þá hefur hann verið afkasta- mikill við trommuleik og líklega slegið taktinn á fleiri ís- lenskum hljómplötum Gunnlaugur Briem Lemur I borðið og vill að útgefendur gangi i taktfstörfum sínum. mmu en nokkur annar núlifandi íslend- ingur. Naglinn! „Það rikir algert stjómleysi þegar kemur að réttindum tónhstarmanna hér á landi og tími til kominn að gera eitthvað í því. Meðal starfsfélaga minna er ég kallaður naglinn. Eg stend á mínu og í þessu máli stend ég einnig fyrir rétti allra félaga minna sem allt of lengi hafa borið skarðan hlut frá borði þegar vinna okkar er blóðmjólkuð af útgefendum." Það er Brynjólfur Eyvindsson sem rekur málið fyrir Gunnlaug Briem en til varnar fyrir Skífuna er stjörnulögfræðingurinn Sigríður Rut lúlíusdóttir. f3ereyskur gullbark! Hafnarfirði Þvoþvott' ínágua>a ° Un9“ barJZfUStu H'r°S°d,áttlns,tiL,T‘ heldu'WtguL!Sgme'°kki sPyrst út o abZ9U °9 fíbmeó oaM° af hanssagae?f*murfó,fíið,''set?MUJetto hún þó víðn L umraun hennar cÍL ^aría en 0/f: . Sh"*°'L,lZ!Z"e‘'°°‘™JZ!Z;iiiei°' wzs}™**'.s£Sír xzsSZ'rs&zi ■'Fyvöterdá somleg, “segir Marfa Elling- sen og erþa ekkiorði °faukið. Aö vera eða ekki vera leiðinlegur - þar er efinn Bush vinnur samkvæmt kenningu Gísla Marteins Á fundi í gærkvöldi sat Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarps- maður og varaborgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, við pallborð ásamt Karli Th. Birgissyni og fleirum á fundi sem ungir jafnaðarmenn og ungir sjálfstæðismenn héldu. Þar viöraði Gísi Marteinn mjög frum- lega kenningu í tengslum við for- setakosningarnar í Bandaríkjun- um. Gísli telur að Bush muni sigra kosningarnar. Og af hverju? Jú, hann er einfaldlega skemmtilegri en Kerry. Og skemmtilegri fram- bjóðandinn sigrar alltaf! Bush sigraði Gore, enda fannst öllum, jafnvel Gore sjálfum, Bush skemmtilegri. Clinton sigraði Bob Gísli Marteinn Baldursson Viðrar frum- lega kenningu sem gengur út á að skemmt- anagildið sé öðru æðra I forsetakosningum. Dole og efaðist enginn um hvor þeirra er skemmtilegri. Clinton sigraði einnig Bush eldri, sem þótú hins vegar miklu skemmtilegri en Dukakis, þurr ríkisstjóri frá Massachusetts. Þar áður sigraði Ronald Reagan bæði Mondale og Carter, enda Reagan heitinn ein- hver sá orðheppnasú sem um get- ur. Carter aftur sigraði sitjandi for- seta, Gerald Ford, sem þótti með leiðinlegri mönnum. Þannig rakú Gísli Marteinn sig aftur langar götur og allt kemur heim og saman. Nixon, þá loks hann vann, var það gegn Hubert Humphrey, ævintýralega leiðin- legum. Gísli Marteinn gekk vitaskuld lengra og sagði eðlilegt að almenn- ingur, jafnt í Bandaríkjunum sem og víðar um heim, liú svo á að stjórnmálamenn sem hann muni hafa fyrir augunum lengi væri skárra að væru ekki mjög leiðinleg- ir. Davíð Oddsson má þakka fyrir að þykja skemmtilegur en Halldór Ásgrímsson er hins vegar í hættu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.