Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Síða 29
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 16. OKXÓBER 2004 29 helsta tónlistarstefnan núna. Ótal- margir eru að gh'ma við þetta form, ekki síst yngri tónlistarmenn.Jafnvel Bubbi Morthens er að gera sína fyrstu köntríplötu. „Já, er það. Ég hef nú ekki heyrt hana nema einhver lög svona í útvarpinu. Hann hefur nátt- úrlega í gegnum tíðina verið svoh'tið köntrí. Mikill gítar og þjóðlagablær yflr mörgum laga hans. Og textar sem taka á ýmsum málum sem liggja fólki næst." Björgvin er ekki heldur búinn að sjá heimildarmyndina Blindsker, sem er um Bubba. En þar er meðal annars tekið á hinni lífseigu þrætu um það þegar Bubbi söng í laginu Rækjureggí: „Ég er löggiltur hálfviti, hlust’á HLH og Brimkló." „Já, viltu tala um það? Nei, sko. Ef grannt er hlustað má heyra að Bubbi er auðvitað fyrst og fremst að skjóta á fólkið sem var að hlusta á okkur. Þetta sama fólk var líka að hlusta á hann. Breiður hópur. Og í laginu Bolur inn við bein á Smásögum skjótum við til baka, en góðlátlega. Við erum að fjalla um „plain" mann, sem er bolur inn við bein, er níu tii flmm maður, vill kaffið svart, vill hafa þetta einfalt, ekkert sushi og vesen, hann fílar Elvis og hann fílar Bubba af því að hann er bolur inn við bein og stoltur af því. Við erum að tala öðruvísi um þá sem filusta á Bubba en hann gerði um þá sem hlustuðu á Brimkló. Af meiri virð- ingu. Segjum þetta eðalfólk." Björgvin segir meirihluta fólks svo sem ekkert vita um hvað er verið að ræða. Nýjar kynslóðir hafa komið fram en þegar Bubbi var með sín skot var Brimkló ríðandi um héruð ár eftir ár, tók mið af Ragga Bjarna og Sumargleðinni og fleiri slíkum með vinsælu tónleikahaldi um land allt. Svo sló HLH rækilega í gegn og tók sitt pláss. „Þá var bara ein út- varpsstöð og eðlilegt að ungir menn, eins og Bubbi var þá, vildu sitt pláss. Þegar ég var að byrja í þessu var ég svo „skver" að ég vildi helst fara í FÍH og vera alvöru tónlistarmaður, taka mér Ragga Bjarna og Hauk Morteins til fyrirmyndar, enda bar ég og ber mikla virðingu fyrir þeim." Ekkert iafnast á við sviðið og góða híjómsveit Óneitanlega er landslagið breytt frá því Brimkló var stofnuð 1972 og fóru upp úr því um og trylltu lýðinn - alls staðar troðið hús og jafnvel oft í heila viku. Grýtta brautin malbikuð orðin og ekki eins mikið ryk. „Já, þá var stuð í þessu. „The wild wild north" eins og við kölluðum það. Það var mikið ævintýri og þá var þetta líka allt svo nýtt. Nú er áreitið orðið svo miklu, miklu meira og dagurinn flýgur áfram. Fólk verður beinlínis eftir sig í dagsins önn. Stöðug mötun upplýsinga og skotið er á þig úr öllum áttum." En er þá nokkuð upp úr þessu að hafanúna? „Það er upp og ofan. Stundum eru þetta sæmileg laun. Stundum stöndum við algerlega fyrir þessu sjálfir, fáir koma og eftir stendur kostnaðurinn sem við verðum að bera sjálflr. Fiestir okkar eru í öðrum verkefnum því erfitt að lifa á þessu eingöngu. Þetta er svo lítill markað- ur.“ Og Björgvin nefiiir athyglisvert fyrirbæri sem heita má þjóðfélags- breyting, en það er kaffihúsamenn- ingin. Hann merkir breytingu á und- anförnum fjórum árum. Áður hafði bjórinn breytt miklu og pöbbarnir. „Nú er þetta orðið meira eins og er- lendis, fólk situr á kaffihúsum á kvölds og morgna og skrafar. Það er bara gott mál. Við erum orðnir kosmópólítan og þá krefst þetta annarrar einbeitingar." Menn þurfa með öðrum orðum að vera útsjónarsamir þegar þeir reka band af þessari stærðargráðu. „Hugsanlega gæti verið hag- kvæmara að reka lítinn bát með fámennari áhöfir. En við viljum hafa þetta svona. Og það er gríðarlega dýrt. En aðalatriðið er að enn er gaman. Ekkert jafnast á við það að vera á sviðinu með góða hljómsveit, það er fullt í kofanum og viðbrögð ffá fólki. Við erum aldeilis ekki að fara í okkar síðustu sjóferð enn þá.“ jakob@dv.is Brimkló eru að ræsa vélarnar með nýja plötu í far- teskinu. í þessu viðtali fer Björgvin Halldórsson aðeins í saumana á kán- trí-tónlistinni, eða „köntrí” eins og hann vill kalla fyr- irbærið sem nú tröllríður öllu á ís- landi. Sterk meló- dían og texti sem segir sögu er að virka. Og þar fara boltarnir i Brimkló fremstir í flokki, syngja um bolinn og tala af virðingu um þá sem hlusta á Bubba urlega góð lög og góða texta og hver texti er sögubrot. Segir sögu. Við erum með texta eftir Jónas Friðrik, Ómar Ragnarsson, sem samdi fyrir Brimkló á sínum tíma, og Kristjáns Hreinsson og fleiri góðir. Ég á þarna part í texta líka. Textarnir eru sér- staklega góðir. Við gerðum plötu sem hét Sannar dægurvísur. Þar voru lög eins og „Nína og Geiri", „Herbergið mitt" og svona dægur- vísur. Þá kom út safnplata fyrir nokkrum árum sem heitir Sígildar sögur. Það má líta á þetta sem eins- konar þríleik." Talað beint tii hlustandans Og þá er skírskotunin ekki síðri þegar tegund tónlistarinnar er ann- ars vegar. Brimkló má heita sú hljómsveit sem fer fremst í flokki allra þeirra íslendinga sem flutt hafa kántrí-tónlist. „Köntrí. Ég segir alltaf köntrí. Það er þá svona landstónlist. Hún bygg- ist upp á einföldum en samt flókn- um lögmálum: Sterkri melódíu, flauelsmjúku en þéttu hljómfalli og sterkum texta sem talar beint til hlustandans - kitlar eyrað." Björgvin segir Brimkló aldrei hafa lagt uppúr því að vera skáldlegir. „Haustlaufin falla og himininn hlær. Það er sterk melódían og svo textinn sem ber þetta uppi. Við höfum gert þó nokkuð af plötum, þessi er núm- er sex, og við viljum tala beint til hlustandans." Á Smásögum eru frumsamin lög og erlend sem hafa verið staðfærð. Að sögn Björgvins eru Brimklóarliðar mjög ánægðir með hvemig til hefur tekist. Textarnir em fullorðnari en í gömlum lögum á borð við Las það í Samúel og Greiddi í píku svo dæmi séu nefnd. Vissulega er slegið á létta strengi en kominn er eilítið alvarleg- ur tónn í textana. Kannski eðli máls- ins samkvæmt. „Menn eldast og við færumst stöðugt nær endastöðinni." Brimkló Fer landleiðina til Akureyrar í dag -„köntríróds“-og það er alltafjafn gaman I rútunni. Stundum flýgur engill, þögn og svona en sög- urnar eru óteljandi. Bolurinn vill ekkert sushi og vesen Svo virðist sem „köntríið" sé Enn eitt portrettið af mér? Nei, er það? Ég var að senda ykkur splunkunýjar myndir af bandinu. Já, þið hringduð í mig í gær og voruð eitthvað að spyrja mig hvern- ig ég hefði það. Einhver gúrka. Þegar það er mikið að gera hjá Geira Óla og Gauja litla er hringt í mig," segir Björgin Halldórsson - sjálfur Bó. Klikkar ekki. Klikkar aldrei. Hljómsveitin Brimkló blæs til stórdansleiks á Akureyri í kvöld. „Ak- ureyringar og nærsveitarmenn. Stórdansleikur á Oddvitanum, Akur- eyri á laugardagskvöldið. Það er hljómsveitin Brimkló sem leikur ffam á rauða nótt. Brimkló hefur ekki leik- ið fyrir norðan í marga mánuði og því kominn ú'mi til að sleppa almenni- lega fram af sér beislinu í góðu stuði með Brimkló á Akureyri. Munið stórdansleikinn í Oddvitanum, Akur- eyri með hljómsveitinni Brimkló. Brimkló í Oddvitanum laugardags- kvöld," segir í fréttatilkynningu frá Bó sem hefúr tekið að sér framkvæmda- stjóm fyrir sveitna. „Það verður ein- hver að gera það. En í Mjómsveitinni erum við allir fremstir meðal jafn- ingja," segir hann og gefur lítið fyrir spuminguna hvort hann sé ekki ör- ugglega aðalstjarnan í Brimkló. „Ég hef verið munstraður sem skipstjóri á bátinn, til að halda utan um þetta og reka." Landleiðin „köntrí róds" að þessu sinni Enn glímir þessi fornfræga hljómsveit við þjóðveginn, „þessa grýttu braut", eins og segir í laginu. „Grýttir vegir leynast á stöku stað. En ekki á þjóðbrautinni lengur. Hún var grýtt, en nú er búið að malbika. Þetta var flott lag hjá Magga Eiríks. Grýtt braut, rokk í því, grjót. Malbik- uð braut? Ekki nógu mikið rokk í því." Er ekki erfítt að ræsa vélarnar? „Jú, jalih, við emm að spila mikið núna. Spilum aðra hvora helgi og höfúm verið í Jiljóðverinu. Þetta kemst upp í vana. Egill Ólafsson sagði einhverju sinni, og var nokkuð gott, að erfiðast væri að komast upp úr sófanum. Um leið og þú kemst uppúr honum og ert kominn af stað lifnar allt við. Og það er nú helsti hvatinn, auk þess sem þetta er nú atvinna margra okkar. Og ekki skemmir að vinna við það sem þú hefur gaman af. Þetta er síbreytilegt og skemmtilegt." Brimkló er stórhljómsveit skipuð Björgvin (söngur og gítar), Arnari Sigurbjörns (söngur og gítar), Magn- úsi Einarssyni (mandólín og söng- ur), Haraldi Þorsteinssyni (bassi), Ragnari Sigurjónssyni (trommur), Þóri Baldurssyni (hljómborð) og Guðmundi Ben (gítar og söngur). Er alltaf jafn gaman írútunni? „Stundum fljúga englarnir yfir vötnin, þögn og svona, en það er svo margt sem gaman er að ræða og sögurnar óteljandi. Þetta er stórt band í dag, sjö manns. Við höfum ákveðið í þetta skipti að keyra. Taka þetta landleiðina. „Köntrí róds." Og við hlökkum til. Við höfum ekki spil- að á Akureyri í hálft ár." Hafnarfjörður - Memphis ís- lands „Nú stöndum við á tímamótum. Við vorum að klára plötu sem heitir Smásögur. Við „störtuðum" hljóm- sveitinni aftur í fyrra eftir langt hlé. Móttökurnar hjá landanum voru svo skemmtilegar og hlýjar að við ákváðum að halda eitthvað áfram. Við stöldruðum við eftir túr í fyrra og ákváðum að gera plötu. Hún kemur út eftir viku." Björgvin hefur gert margar plötur í gegnum tíðina en hann segir að sérlega gaman hafi verið að gera hana þessa. Brimkló hefur ekki gert plötu síðan 1986 og það þótti við hæfi að finna skemmtilegan upp- tökustað til sem myndi veita þeim andagift. „En ekki nema í Memphis ís- lands, í Hafnarfirði. Og í gamla góða Hljóðrita. Þar tóku gömlu innrétt- ingarnar á móti okkur og vöktu upp gamlar minningar." Nafriið má heita sérlega vel valið í ljósi sögu Brimklóar og tónlistar- innar sem slíkrar. Björgvin segir þá hafa gengið í nafhabanka þar sem finna mátti hugmyndir eins og Við heygarðshomið og Sögur. „Og svo þetta. Smásögur. Við emm með gíf- Björgvin Halldórsson Ekkert jafnast ó við það að standa uppi ó sviði með góða hljómsveit og troðið i kofanum.„Við erum ekki búnir að fara okkar síð- ustu sjóferð enn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.