Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Side 42
42 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 Helgarblað UV Menn þykjast vita aö ekki sé hægt að kaupa hamingju fyrir peninga, en það kemur ekki í veg fyrir að þeir eyði miklu fé i að kaupa sér vellíðan - reyndar er einhver arðsamasta iðja i heimi sú að selja þeim sem hamingjunnar leita sjálfshjálparbækur, leiðsögn um lífsstíl og pillur. Árni Bergmann fer yfir málið i vikulegum pistli sínum. Kátur og glaður Fyrráárum voru viðræðu- meðferðir einkum ætlaðar til að glíma við nei- kvæð fyrirbæri sem hrjáöu menn - þunglyndi, kvíða og fleira þesslegt. Nú er mestur vöxtur í meðferðum og námskeiðum sem eiga að magna vellíðanina sjálfa og litill vafi á þvi að sú þróun mun halda áfram afþungum krafti. i iitg * * ■- Þetta er svosem ekki nýtt. Nú eru til dæmis bráðum sjötíu ár síðan Dale Camegie gaf út stórfræga bók um hamingju velgengninnar, um það hvemig menn afla sér vina og hafa áhrif á aðra. En slíkum bókum fjölgar gríðarlega ört á seinni misser- um. Þær hafa lagt undir sig um 6% af bókamarkaðinum í Bandaríkjunum, enda jafnan fljótar að skjótast upp metsölulistann - nú síðast rýkur „Breyttu hfi þínu á sjö dögum" eftir Paul McKenna út eins og heitar lummur. Nafitið segir sína sögu: þau fýrirheit um hamingju sem lofa skjót- um árangri ganga best á markaði. Það munar engan um að spandéra einni viku og eiga von á að Éffe, stíga inn í þá næstu nýr maður og sælli. Árni Bergmann skrifar um leit mannkynsins að hamingju. Heimsmálapistill Er vellíðan mannréttindi? Sjáifshjálparbækumar mörgu em þó tiltölulega ódýr kostur í hamingju- leitinni. Útgjöld hamingjuleitenda taka hinsvegar undir sig stærðar stökk þegar þeir komast í hendurnar á ráðgjöfum eða lífsleikniþjálfurum, sem taka að sér að útrýma áhyggjum og magna upp bjartsýni og veflíðan og kannski taka fyrir allcm orkuleka eins og frægt varð hér á landi fyrir skemmstu. Á þessu sviði gerist eigin- lega alltof margt til að hægt sé að alhæfa: aflt frá saklausum hugleiðslu- æfingum til ótrúlegs samspils hind- urvitna og hættulegra tilrauna með að hafa endaskipti á öllum tengslum hamingjufikils við aðra menn. Hér er flóran endalaus að fjöl- breytni og útgjöldin ævintýraleg - kannski borga menn tugir þúsunda fyrir hvem klukkutíma á hraðbraut- inni til lífsgæfunnar. Svo mikið er víst að t.d. í Bretlandi em nú fleiri lffsstfls- gúrúar við störf en heimilislæknar og menn em mun fúsari til að hleypa þeim í sína vasa en „venjulegum" sál- ffæðingum. Það stafar líklega af því að lærðir sálfræðingar, sem fást við að leysa úr ýmsum andlegum flækj- um með samræðum, em ekki nærri eins harðir auglýsingamenn og þeir sjálfskipuðu andlegu leiðtogar sem sitja hátt á hverju strái - og ekki eins léttúðugir í fýrirheitum um skjótan og mikinn árangur. Fyrr á árum vom viðræðumeð- ferðir einkum ætlaðar til að glíma við neikvæð fyrirbæri sem hrjáðu menn - þunglyndi, kvíða og fleira þesslegt. Nú er mestur vöxtur í meðferðum og námskeiðum sem eiga að magna vellíðanina sjálfa og lítill vafi á því að sú þróun mun halda áfram af þung- um krafti. Aldrei fyrr hafa jafnmargir trúað því að þeir eigi ekki aðeins skil- ið að vera lausir við vanlíðan - heldur hafi þeir heilagan rétt til að láta sér líða vel. Þennan rétt em menn afar fúsir til að tryggja sér með kaupum á hinum réttu aðferðum, kennslu í réttu hugarfari - eða með töfrapiflum ef svo ber undir. Sómaskammt á dag! Lyfjaiðnaðurinn hefur einmitt verið geypilega hugvitssamur í að nýta sér það hugarfar í samtímanum að ef einhveijum h'ður ekki rétt vel oftast nær, þá sé eitthvað að honum. Hann gerir sitt besta til að uppfýlla spádóm Aldous Huxleys í frægri skáldsögu frá 1932, „Veröld ný og góð“: þar er lýst framtíðarsamfélagi þar sem erfðafití og innræting gera hvem og einn sáttan við sitt hlut- skiptí - og ef eitthvað fer úrskeiðis má alltaf gleypa vægt veflíðunardóp sem heitir Sóma. Rannsóknafé fer nú á dögum í stórauknum mæli í að búa til hegðunarlyf sem eiga að vinna gegn dapurleika í efnuðum samfé- lögum - enda em „lífsstflslyfm" nú þegar seld fyrir um 23 milljarða dofl- ara á ári hveiju. Þessi þróun er ekki tengd Sjálfshjálparbækur Þær hafa lagt undirsig um 6% af bókamarkaðinum i Bandaríkjunum, enda jafnan fljótar að skjótast upp metsölulistann. því að t.d. þunglyndi hafi magnast að miklum mun á seinni árum. Mestu skiptir að flestir em, með góðri að- stoð auglýsinga frá lyfjafyrirtækjum, famir að trúa því að þeir eigi rétt á og möguleika til þess að láta efnavísind- in létta af þeim hverri óánægju og hverri áhyggju. Sóma okkar daga er serotónín (það efni í heUanum sem tengist velhðan) - það hefur tekist að koma inn í fóUc þeirri freistandi og nokkuð hæpnu kenningu, að aUur dapurleiki og kvíði sé ekki annað en skorttu á serotóníni og mörgum söluháum lyfjum er ætlað að vinna gegn honum. Viagra og skyld stinn- ingarlyf taka svo að sér að framlengja sjálfstraust og hamingju karla. Frá Palm Springs í Bandaríkjunum ber- ast fyrirheit um að hægt sé að gera aldraða unga og spræka með því að gefa þeim inn aUa hormóna á hverj- um degi. Og svo mættí lengi telja. í bók Davids Healys, „The Antí- depressant Era“, em lyfjafyrirtækin sótt tíl ábyrgðar fyrir að þau séu ekki bara að selja pfllur, þau „markaðs- setji sjúkdómana". Átt er við það, að þau fái með áróðri sínum fólk til að halda að öU vanlíðan sé sjúkdómur sem má gefa trúverðugt naifri og taka pfllu við. Vitanlega em til ágæt geð- hvarfalyf sem alvarlega veikt fólk þarf sannarlega á að halda - en markað- urinn leggur undir sig stærri og stærri svæði langt fyrir utan slíka nauðsyn. Þessi sjúkdómsvæðing er hábölvuð fyrir margra hluta sakir - m.a. vegna þess að hún leggst með vaxandi fargi á heUbrigðiskerfi þjóða og dælir tíl sín peningum sem betur hefðu farið tíl annarra og nauðsynlegri hluta. Hamingja og samfélag Ýmsum þeim sem stendur stugg- ur af sálrænu skottulæknahjafi og svo hamingjupiUum finnst lflca, að þessar hæpnu aðferðir tíl að stytta sér leið í hamingjuleitinni leiði athygfi frá ýmsu því sem miklu varðar um U'ðan fólks í mannlegu félagi. TU dæmis spumingum sem varða auð og rfld- dæmi og skiptíngu lífsgæða. Mjög fá- tæk samfélög eru um leið samfélög óhamingjusamra. En eftír að búið er að sjá fólki fyrir brýnustu þörfúm breytíst ekki mfldð. Fólk í ríkum löndum hefur kannski úr þrisvar sinnum meiru að spUa og er miklu heUbrigðara en menn voru fyrir 50 árum - en það hefúr út af fyrir sig Util áhrif á ham- ingjustatistflcina. Aftur á mótí má lesa það af könnunum, sem áður hafa verið raktar í þessum pistlum, að brött tekjuskipting innan samfélaga magnar mjög vanh'ðan meðal þegn- anna. Af þessu má draga þær ein- földu pófltísku ályktun, að öUum pfll- um betri og hoUari ávísun á veUíðan sé alvarleg vfleitni tíl að gera mann- legt samfélag sanngjamara en það er og manna mun minni en mark- aðslögmálin vUja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.