Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1926, Side 93
vanþrifa og framfaraleysis; sjúklingar þessir voru
mjög veikir fyrir og þjáðust af meltingaróreglu,
langvarandi kvefi og ýmsum fylgikvillum, m. a. augn-
sjúkdómi, er jafnvel gat komist á svo hátt stig, að
sum börnin mistu sjónina. Nú leið á ófriðinn og rak
að því, að útflutningshömlur voru lagðar á danskar
mjólkurafurðir; lækkaði því mjög verð á nýmjólk i
Danmörku og efnalítið fólk gat því frekar veitt sjer
mjólkurmat og smjör. Brá nú svo við, að lítt varð
vart upþdráttasýki ungbarna og tók að heita mátti
alveg fyrir augnsjúkdómana. Samræminu í þessu efni
veittu menn ekki athygli þá, en hafa áttað sig á þvi
síðar, enda hefir komið í ljós, að umrædd ungbörn
er auðvelt að lækna með nýmjólk og lýsi, sem er
auðugast allra matvæla að A-efni. Bezt hefir reynst
þorskalýsi, en tilraunir sanna að mjög svipað því er
ýsu- og hákarlalýsi. Lakara er talið hvallýsi og síld-
arlýsi. Hrálýsi eða sjálfrunnið lýsi rennur úr lifrun-
um vegna þungans, sem á þeim hvílir í kagganum;
springur þá lifrin, enda kemur rctnun og til greina.
Gufubrætt lýsi mun nú venjulega unnið þannig, að
heitri vatnsgufu er veitt inn á milli lifranna og renn-
ur þá úr þeim lýsið. Pví miður er meðferð lifrar og
lýsis ekki sem þrifalegust á flestum bræðslustöðvum,
enda lifrin oft gömul og úr ýmsum tegundum fiskj-
ar. Auðvelt er, og sem betur fer alsiða í heimahús-
um hjer á landi, að vinna ágætt þorskalýsi úr nýrri
þorsklifur með því að hita lifrina í potti við hægan
eld og fleyta svo lýsið ofan af. Hrálýsi, sem lengi
hefir verið undir beru lofti, er talið kraftminna en
lýsi, sem öðru vísi er unnið, en ýmsum fellur það
betur. í kryddlýsi er ekki nema 30—40°/o af lýsi, hitt
eru önnur efni; kryddlýsi er því dýrara og kraft-
minna en hreint þorskalýsi.
Beinkröm er einn þeirra sjúkdóma sem oft lækn-
ast af fæði auðugu að A-efninu. Á siðari árum hafa
læknar unnið mjög að því að skýra orsakir og eðli
(89)