Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1926, Síða 117
ritaði margar fróðlegar historiubækur, hvar á meðal
er pað merkilega verk Lexicon historicum, í tveimur
bindum, Historia memorabilis, Historia genealogica1 2 3 * *)
og prestatal i Eyjafjaröar- og Þingeyjarsýslum á ís-
landi frá byrjun seytjándu aldar til ársins 1830’). Hér
að auki ritaði Bergur eitt mikið icvæðasafn (í flmm
bindum) af merkilegustu fornum og nýjum kveöling-
um ýmsra skálda8), og valdi hann hér til einkanlega
þá kveðlinga, sem aldrei höfðu prentaðir verið, hvað
hann gerði i þeim tilgangi að reyna til að frelsa téð
Ijóðmæli frá glötun og undirgangi og í von um, að
þau kynni einhvern tíma prentuð að verða. Til þessa
kvæðasafns lagði Bergur álitlegan part af kveðlingum,
sem hann sjálfur yrkti. — Jafnframt öllu þessu fyrr
nefndu hélt Bergur við sig grundvallaðri og skyn-
samlegri þekkingu í theologia [þ. e. guðfræði] og
samantók frá árinu 1827 til 1831 inclusive 18 helgi-
dagapredikanir, sem merkilegar þóktu þeim fáu, sem
vit höfðu á slíku og sem þær heyrðu eða sáu.
Af fyrr téðum ritgerðum vildi Bergur þó ekkert
afhenda til prentunar, þar eð honum, sem mælt,
geðjaðist lítt að sumum bókaútgáfum og háttsemi
prentverkanna á þeim árum á íslandi og í Danmörku.
Samt framlagði hann nokkrar historíur sínar undir
skoðun þess hálærða historíuskrifara, sýslumanns
Jóns Espólíns, sem autoriseraði og samþykkti þær.
Auk alls hins fj'rr téða, er Bergur starfaði við rit-
gerðir og bókmenntir, hafði hann líka á áminnztu tima-
bili aðskiljanlegar commissionir á hendi fyrir ýmsa
*nenn, æðri og lægri stéttar, sömuleiðis hafði hann
1) t>. e. ættsrtala Bergs sjálfs, sem hann nefnir svo og er meö
•ajálfri ævisögunni i frumriti.
2) Mest af þessu, sem hér er nefnt, munu vera uppskriítir; at-
hugasemdir Bergs um presta i Eyjaf,- og Pingeyjarsýslum (2 bl.)
®ru i JS. 321, 4to. (ehdr.).
3) Tvö bindi þessa kvæðasafns eru nú i JS, 478, 8vo., og 486,
'8vo. (þar og einnig ævisaga þessi).
(113)
8