Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2004
Sport DV
Gunnar leik-
reyndastur
Hinn 27 ára gamli Gunnar Ein-
arsson er leikreyndasti leikmaður
Keflavíkurliðsins. tíunnarhófúr-
Keflavík heldur áfram þátttöku í Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik karla í
kvöld. Portúgalska liðið Madeira kemur í heimsókn en liðin mættust tvívegis i síð-
ustu keppni þar sem Keflvíkingar sigruðu á heimavelli en töpuðu útileiknum
naumlega með einu stigi.
f Unilsb'*'
valsdeildarferil sinn árið 1994
þegar hann var á sautjánda ári og
hefur leikið 12 tímabil og 451 leiki
ails rneð Keflavík. Þá á tíunnar 27
landsliðsleiki að baki og 39 leild
með imglingalandsliðinu.
Gunnar var valinn besti leik- '
maður tímabilsins í fyrra á
lokahófi Keflavíkur. Harui'
var lykilmaður . .
hjá Keflvflcing-
um sem urmu
Allir ógnandi ó vellinum
tvöfalt annað
árið í röð og stóðu \
sig að auki vel í Bikar-
keppni Evrópu. Ef mið-
að er við frammistöðu
kappans í leiknum
gegn Reims má búast ,1
við öðru glæsilegu
tímabili hjá Gunnari ;
og mega andstæð-
ingar hans hverju
sinni búast við ;
harðri keppni á £%■■
báðum endmn
vallarins.
Dómarar ekki
hliðhollir
Keflavflc og Madeira mættust
öðru sinni í Portúgal á heimavelli
Madeira. Þar voru það heima-
menn sem réðu lögum og lofum
framan af en rétt eins og í Slátur-
húsinu komu Keflvfldngar sterkir
til baka í þriðja fjórðungi þar sem
þeir gerðu harða atiögu að portú-
galska liðinu. Keflavflc vann leik-
lilutann 32-19 en gekk ekki jafhvel
í lokafjórðungnum. Skot Derricks
AOen á lokasekúndum leiksins
geigaði en þjálfarar Keflvfldnga
vildu meina að brotið hafði verið
á Alien en eins stigs tap er þó
staðreynd, 108-107. Keflvfldngar
gengu svekktir af velli enda hárs-
breidd frá því glæsilega afreki að
sigra báða leikina gegn hinu
sterka liði Madeira. Það var sem
fyrr Nick Bradford sem var öfl-
ugastur í liði Keflavflcur, skoraði
heil 38 stig, gaf 6 stoðsendingar
og stal sex boltum.
Bradford
öflugur í
fyrra
Það var í lok nóvember á sfð-
asta ári sem Madeira skellti sér í
heimsókn í Sláturhúsið í Keflavík.
Keflavflc hafði ekki tekið þátt í
Evrópukeppni í heilan áratug og
voru menn þar á bæ staðráðnir í
að láta ekki sitt eftir liggja. Kefla-
vflc vann fyrri leik liðanna, 99-88.
Tvö stig skildu liðin að í hálfleik
en Keflvfldngar gerðu út um leik-
inn í þriðja fjórðungi með því að
skora 32 stig gegn 20 stigum Mad-
eira. Nick Bradford fór fyrir Kefla-
víkurliðinu í leiknum. Skoraði 29
stig, tók 12 fráköst og gaf 4 stoð-
sendingar. Leikmennimir þrfr,
sem er enn að finna innan raða
Madeira, riðu ekki feitum hesti í
leiknum. Þeir skoruðu aðeins 14
af 88 stigum gestanna sem náðu
þó að hefna ófaranna á sínum
heimavelfi.
S Keflvíkingar taka á móti portúgalska liðinu Madeira í Bik-
M arkeppni Evrópu í Sláturhúsinu í Keflavík í kvöld. „Við
f\ vinnum leikinn, það er ekkert öðruvísi," sagði Sigurður Ingi-
* mundarson, þjálfari Keflavíkurliðsins, vígreifur fyrir komandi
’ átök. „Við erum ekkert að ofmeta okkur eða vanmeta neitt. Við
ætlum bara að spila okkar leik. Við spiluðum gegn þessu liði í
keppninni í fyrra en þá vann hvort liðið einn leik. Liðið hefur
breyst mikið og það eru aðeins tveir leikmenn frá því í fyrra. Til
Madeira hafa streymt leikmenn af ýmsu bergi brotnir en við
erum búnir að kortleggja liðið vel.“
Að sögn Sigurðar er lið Keflavíkur
lítið sem ekkert að velta sér upp úr
því hvað andstæðingarnir gera
hverju sinni. „Þetta snýst mikið
um hvort við náum að setja
upp okkar spil. Ef það geng
ur upp erum við í góðum
málum. Þannig erum við
ekkert að velta mótherjun-
um fyrir okkur heldur ein-
beitum okkur að því að
gera þesssa hluti sem við
viljum gera.“
Keflvfldngar mæta til
leiks enn sterkari en í sigur-
leik liðsins gegn franska lið-
inu Reims, en Mike Matthews
er horfinn á braut og Nick
Bradford kominn í hans stað
Eins og flestir vita lék Bradford
með Keflavflc í fyrra og átti
stóran þátt í velgengi liðsins,
bæði í deildinni hér heima
og í Evrópuleikjunum.
„Liðið er öflugra
með tilkomu
Bradfords
„Liðið er öflugra með tilkomu Bradfords og
hann tryggirþað sem við viljum; að allir á vell-
inum séu ógnandi. Með þannig liðsskipan er
erfitt við okkur að eiga."
Sigurður Ingimundarson
Óttast enga mótherja og
ætlar sér sigur I hverjum leik.
hann tryggir það sem við viljum; að
allir á vellinum séu ógnandi. Með
þannig liðsskipan er erfitt við okkur
að eiga."
Bestir þegar mest á reynir
Keflavflcurhraðlestin virðist virka
betur en áður þegar um stærri
áskoranir er að ræða. Það sást best í
leiknum gegn Reims sem fyrirfram
var talið sigurstranglegra gegn
áhugamannaliði Keflvfldnga. Sig-
urður fullyrti að keppnin væri mikil
áskorun og góður vettvangur fyrir
menn til að auglýsa sig.
„Nú þekkja menn betur að hverju
þeir ganga og þetta er skemmtilegt
reynsla. En það liggur mikil vinna að
baki og því er gaman að sjá menn
nýta tækifærið. Þeir eru margir
hverjir að spila hörkuvel í þessum
leikjum," sagði Sigurður Ingimund-
arson.
Gunnar Einarsson, fyrirliði
Keflavflcurliðsins, er einmitt einn af
þessum mönnum, en hann hefur
látið ljós sítt skína svo um munar í
Evrópukeppninni og sýnt og sannað
að þar er einn allra mikilvægasti
leikmaður Keflavíkur á ferðinni.
Hann skoraði 22 af 28 stigum sínum
í fyrri hálfleik gegn Reims en þar
gerði Keflavflcurhraðlestin út um
leikinn og átti Reims-liðið
enga möguleik gegn
Keflvfldngum.
Engin tilviljun
Gunnar fullyrðir að
árangurinn í leiknum
gegn Reims var engin
tilviljun og að vel smurt
Keflavíkurlið hafi ein-
faldlega verið of mikið
fyrir kokhrausta atvinnu-
menn franska liðsins.
„Það segir líka meira
en mörg orð að leikmenn
Reims tóku aðvaranir
annarra liða, sem höfðu
Gunnar Einarsson Gunnar Einarsson fór á
kostum gegn Reims. Endurtekur hann leikinn
gegn Madeira?
leikið gegn okkur, ekki alvarlega.
Þeim var tjáð að við værum með gott
lið og gætum spilað góðan körfu-
bolta en mættu engu að síður daufir
til leiks," sagði Gunnar og bætti við
að Keflavflcurliðið stæði sterkara að
vígi í dag.
„Með tilkomu Nicks Bradford
verðum við enn erfiðari við að eiga
því hann fellur vel að því sem við
erum að gera, enda þekkir hann vel
til. Stóð sig gríðarlega vel í Evrópu-
keppninni í fyrra og erum við því
komnir með meiri ógn en áður,“
sagði Gunnar Einarsson, fyrirliði
Keflavflcur.
Leikurinn er í Sláturhúsinu í
Keflavflckl. 19.15. sXe@dv.is
Þórarinn Kristjánsson hittir gamlan félaga úr Keflavík
Æfir með Ólafi og félögum hjá Torquay
Samningur Þórarins við bikar-
meistara Keflavflcur er runninn út
og hann hyggst ekki skrifa undir
nýjan samning við félagið fýrr en
hann hefur fullreynt hvort hann
komist í atvinnumennsku.
Þórarinn fór með Haraldi Frey
Guðmundssyni til norska liðsins
Aalesund á dögunum. Þeim gekk
báðum vel, Haraldur er búinn að
skrifa undir samning við félagið og
Þórarinn heldur í þá von að hann fái
samning hjá félaginu.
„Þeir ætla aðeins að fá einn
framherja og eru enn að skoða
leikmenn og ekki búnir að semja við
neinn þannig að ég á enn
möguleika," sagði Þórarinn sem
sagðist hafa skilið við félagið á
jákvæðum nótum. „Þeir sögðust
hafa verið mjög ánægðir með mig en
ætluðu samt að skoða fleiri menn
áður en þeir ákveða sig."
Þórarinn er með fleiri jám í
eldinum. Til greina kemur að fara til
reynslu til fleiri félaga í Noregi og
Svíþjóð og svo mun hann fara til
reynslu til enska 1. deildarliðsins,
sem í raun er enska 3. deildin,
Torquay sem Ólafur Gottskáldsson,
fyrrum leikmaður Keflavflcur, leikur
með.
Fertil Englands
„Umboðsmaðurinn er að vinna í
mínum málum og það gæti dottið
inn eitthvað í Noregi eða Svíþjóð. Ég
fer væntanlega til Óla og félaga
fljótlega en það liggur ekki fyrir
hvenær það gæti orðið nákvæm-
lega,“ sagði Þórarinn sem er ekki
búinn að fá nýjan samning frá
Keflavflc en önnur lið á íslandi hafa
sett sig í samband við hann og boðið
honum samning.
„Ég á von á nýjum samningi frá
Keflavflc fljótlega en ég er ekkert að
flýta mér. Annars er ég opinn fyrir
öllu og ekkert víst að ég verði áfram
hjá Keflavík. Ég er með önnur
tilboð sem ég mun skoða," sagði
Þórarinn.
henry@dv.is
„Það er ekkert
víst að égverði
áfram hjá
Keflavík. Ég er
með önnur
tilboð sem ég
mun skoða."
Þórarinn Kristjánsson
Enn án félags en er meö
samninga frá Islenskum
félögum. Mun fara til
reynslu til enska félagsins
Torquaysem Ólafur
Gottskáldsson leikurmeö.