Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1934, Qupperneq 5
I'Sðurarstkini konnntgs:
1. Pgri Amalia Karólina Karlotta Anna, íædd 29. sept. 1853, gift
21. dez. 1878 Ernst Ágúst Vilhjálmi Adólfi Georg Friöreki, her-
toga af Kumbralandi og Brúnsvik-Lfineborg, f. 21. sept. 1845.
2. Valdimar, fæddnr 27. október 1858; honum gift22. októberl885
llarla Amalia Franziska Belena, prinzessa af Orléans, f. 13.
jan. 1865, dáin 4. dez. 1909. Börn þeirra: a. Áki (sji hér á efiir).
b. Axel Kristján Georg, fæddur 12. ágúst 1888; honum gift 22.
mai 1919 ilargrit Sofia Lovisa Ingibjörg, prinzessa af Sviþjóð,
f, 25. júni 1899. c. Eirtkur (sjá hjer á eftir) d. Viggó (sjá hér
á eftir). e. Margrtt Franziska Lovisa Uaria Helena, fædd 17.
sept. 1895, gift 9, júni 1921 Renatus Karli Mariu Jósep, prinzi
af Bourbon-Parma, f. 17. okt. 1894.
Áki Kristján Alexander Róbert, fæddur 10. júni 1887, prinz
og greifi af Rósenborg; honnm gift 17. janúar 1914 greiíadóttir
Matthildur Calvi di Bergólo, prinzessa og greifaynja af Rósen-
borg, fædd 17. sepL 1885.
Eirlkur Friörekur Kristján Alexander, f. 8. nóv. 1890, greifi
af Rósenborg; honum gift 11. febr. 1924 Lois Booth, greifaynja af
Rósenborg, f. 2. ág. 1897.
Viggó Kristján Adólfur Georg, f. 25. dez. 1893, greifi af Rósen-
borg; honum gift 10. júní 1924 Eleanor Margaret Green, greifa-
ynja af Rósanberg, f. 5. nóv. 1895.
Samkvæmt lögum um ákvörðun tlmans 16. nóv. 1907 skal hvar-
vetna á lslandi telja eyktir eftir miðtima á 15. lengdarstigi fyrir
vestan Greenwich. í almanaki þessu eru þul allar stundir taldar eftir
þessum soonefnda islcnika meðalttma, og eru þær 28 minútum hærri
en eftir miötima Reykjavikur, sem þangað til 1908 hefir verið fylgt i
almanakinu.
Hver dagur er talinn frá þvi klukkan er 12 að nóttu (miðnætti)
til sömn stundar næstu nótt, svo að þær 12 stundir, sem eru frá
miðnætti til klukkan 12 að degi (miðdegis), eru táknaðar með »f. m.s
(fyrir miðdegi), en hinar 12 fra miðdegi til miönættis með »e. m.«
(eftir miðdegi).
(3)