Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1934, Síða 23
IVIars er i ársbyrjun i steingeitarmerki og reikar nú austur
um vatnsberamerkið, iiskamerkið, iirútsmerkið, nautsmerkið, tvi-
buramerkið, krabbamerkið, ljónsmerkið, og er við árslok kominn
austur í meyjarmerkið. Hann er i hásuðri: P. 14. jan. kl. 2 e. m.,
þ. 17. mars kl. 1 e. m., þ. 3. sept. kl. 10 f. m., þ. 14. okt. kl. 9 f. m.,
þ. 17. nóv. kl. 8 f. m. og þ. 17. dez. kl. 7 f. m.
•Xúpíter er i ársbyrjun i meyjarmerki og reikar fyrst austur á
bóginn, en snýr við þ. 7. febr. og reikar nú vestur á leið fram til
11. júni. Pá snýr bann aftur austur á bóginn og er kominn inn í
merki metaskálanna við árslok. Hann er í hásuðri: P. 3. jan. kl. 7
f. m., þ. 19. jan. kl. 6 f. m., þ. 4. febr. kl. 5 f. m., þ. 19. febr. kl.
4 f. m., þ. 6. mars kl. 3 f. m., þ. 20. mars kl. 2 f, m., þ. 2. april kl.
1 f. m., þ. 15. apríl á miðnætti, þ. 29. april kl. 11 e. mM þ. 30. júlí
kl. 5 e. m., þ. 4. sept. kl. 3 e. m., þ. 20. nóv. kl. 11 f. m. og þ. 28.
dez. kl. 9 f. m.
8atórnuK er við ársbyrjun i steingeitarmerki, og reikar fyrst
austur á við inn i vatnsberamerkið, en snýr þar við 9. júni og reikar
svo vestur á bóginn, þar til hann snýr við aftur þ. 27. okt., og er þá
i steingeitarmerki. Úr þvi reikar hann austur á við til ársloka Hann
er enn i steingeitarmerki við áramót. Satúrnus er i hásuðri: P. 17.
jan. kl. 2 e. m., þ. 27. mars kl. 10 f. m., þ. 29. april kl. 8 f. m.,
þ. 12. ágúst kl. 1 f. m., þ. 25. ágúst á miðnætti, þ. 9. sept. ki. 11 e.
m., þ. 23. sept. kl. 10 e. m., þ. 23. okt. kl. 8 e. m., þ. 23. nóv. kl. 6
e. m. og þ. 26. dez. kl. 4 e. m.
Úranu* og Ncptúnu* sjást ekki með berum augum.
Úranus er i ársbyrjun austarlega í fískamerki, en kemst um tima
vestast i hrútsmerkið; við árslok er hann aftur i fískamerki. Hann er
gegnt sólu þ. 23. okt. og er þá um lágnættið i hásuðri, tæpar 37* fyrir
ofan sjóndeildarhring Reykjavikur.
Neptúnus er allt árið i ljónsmerki. Hann er gegnt sólu þ. 2. mars
og er þá um lágnættið í liásuðri, 34* fyrir ofan sjóndaildarhring
Reykjavikur.
(21)