Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1975, Page 52
VEÐURATHUGUNARSTÖÐVAR
Galtarviti
Gufu-
skálar
Reykjavík^
Keflavíkur-
flugvöllur
Reykjanesviti
Fagurhólsmýri
Mýrar
Stórhöfði •
Loftsalir
Uppdrátturinn hér að ofan sýnir nokkrar veðurathugunarstöðvar,
sem oft er getið um í útvarpi. Alls eru veðurathuganir gerðar á u.þ.b.
80 stöðum á landinu og úrkomumælingar á 40 stöðum.
VEÐURMET
Mesti hiti sem mælst hefur á fslandi er 30,5°C, mælt á Teigar-
homi, Beruflrði, þann 22. júní 1939. Mesti hiti í Reykjavík mældist
17. júlí 1950: 23,4°C. Mestur kuldi mældist á Grímsstöðum 22. jan.
1918: —37,9°C. Daginn áður mældist mestur kuldi í Reykjavík:
—24,5°C. Mest sólarhringsúrkoma mældist á Vagnsstöðum í Suður-
sveit 27.-28. febrúar 1968: 234 mm. Mestur 10-mín. meðalvindhraði
mældist í Vestmannaeyjum 23. okt. 1963 : 200 km/klst. Mestur
loftþrýstingur mældist í Stykkishólmi 16. des. 1917: 1054,2 mbar
(miðað við sjávarmál). Minnstur loftþrýstingur mældist í Vest-
mannaeyjum 2. des. 1929: 919,7 mbar.
Mesti hiti sem mælst héfur á jörðinni við staðalaðstæður er
58,0°C, mælt í San Luis Potosí í Mexíkó þann 11. ágúst 1933.
Mestur kuldi mældist við stöðina Vostok á Suðurskautslandinu
24. ágúst 1960: —88,3°C. Mest sólarhringsúrkoma mældist á eynni
Réunion í Indlandshafi 15.-16 mars 1952: 1870 mm. Mestur vind-
hraði mældist á Washingtonfjalli í New Hampshire í Bandaríkjunum
24. apríl 1934: 362 km/klst. Mestur loftþrýstingur mældist í Agata
í Síberíu 31. des. 1968: 1083,8 mbar. Minnstur loftþrýstingur
mældist 1000 km norðvestur af eynni Guam á Kyrrahafi 24. septem-
ber 1958: 877 mbar.
(50)