Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1975, Síða 57
1 almanakssekúnda = 1/31 556 925,974 7 hluti úr lengd hvarfársins,
eins og það var árið 1900. Grundvallareining tímans í stjömu-
fræði síðan 1952. Atómsekúndan var skilgreind þannig, að
hún yrði sem næst almanakssekúndunni að lengd.
1 dagur (meðalsóldagur) = meðallengd sólarhringsins yfir árið =
24 stundir = 1440 mínútur = 86400 sekúndur (meðalsól-
sekúndur) = sú tímaeining, sem venjulegar klukkur eru miðað-
ar við; of breytilegur til að vera grundvallareining í eðlisfræði
eða stjömufræði. Almanakssekúndan jafngildir meðalsól-
sekúndunni eins og hún var árið 1900.
1 stjömudagur = snúningstími jarðar miðað við stjömuhimininn
(nánar tiltekið vorpunkt himins) = 23 stundir 56 mínútur
4,1 sekúndur.
1 hvarfár (árstíðaár) = tíminn milli sólhvarfa = 365,242 20 dagar.
1 stjömuár = umferðartími jarðar um sólu miðað við fastastjömur
= 365,256 36 dagar.
Tíðni.
1 herts (Hz, eldra tákn c/s) = tíðni reglubundins fyrirbæris sem
endurtekur sig einu sinni á sekúndu.
Tíðni hljóðaldnanna í A-tóninum, sem hljóðfæri eru stillt eftir, á að
vera 440 Hz.
Hæsta tíðni sem mannseyrað heyrir = um 2 ■ 104 Hz.
Hraði.
1 metri á sekúndu (m/s) = hraði hlutar sem fer vegalengdina 1 metra
á hverri sekúndu án hraðabreytinga.
1 km/klst. = 0,278 m/s.
1 míla/klst. = 1,61 km/klst. = 0,447 m/s.
1 hnútur = 1 sjómíla/klst. = 0,514 m/s.
Hraði hljóðsins í lofti við 0°C = 1193 km/klst. = 331 m/s.
Hraði ljóssins í lofttómu rúmi (staðalgildi) = 299 792,5 km/s =
2,997925 ■ 108 m/s.
Hröðun.
1 metri á sekúndu, á sekúndu (m/s2) = hröðun hlutar sem eykur
hraðann jafnt og þétt um 1 metra á sekúndu á hverri sekúndu.
1 „g“ = þyngdarhröðunin (fallhraðaaukningin) við yfirborð jarðar
(staðalgildi) = 9,806 65 m/s2.
Kraftur.
1 njúton (newton, N) = krafturinn sem beita þarf á massann 1 kg til
að valda hröðun sem nemur 1 m/s2 þegar viðnám er ekkert.
1 dyn = 10~5 N.
Þyngdarkrafturinn sem stafar frá 1 kg í r metra fjarlægð =
6,67 • lCHVr2 njúton á hvert kg sem þar er.
Þyngdarkrafturinn á 1 kg við yfirborð jarðar (staðalgildi) =
9,806 65 N. Þessi stærð er stundum notuð sem krafteining undir
(55)