Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1975, Side 58
nafninu kílópond (kp), kílógrammkraftur, eða aðeins „kíló-
gramm“, sbr. „kílógramm“-metri og „kílógramm" á fersenti-
metra.
Rafkrafturinn frá hleðslunni 1 kúlomb í r metra fjarlægð =
9 • 109/r2 njúton á hvert kúlomb sem þar er.
Segulkrafturinn frá 1 ampers straum í löngum, beinum vír, sem
verkar á 1 metra kafla af öðrum straumvír samsíða í r metra
fjarlægð = 2 • 10_7/r njúton á hvert amper í þeim vír.
Þrýstingur.
1 njúton á fermetra (N/m2) = sá þrýstingur sem þrýstir á 1 fermetra
af sléttum fleti með kraftinum 1 njúton homrétt á flötinn, þegar
þrýstingurinn verkar jafnt á alla hluta flatarins. Þessi þrýstings-
eining er stundum kölluð pascal (Pa).
1 bar = 105 N/m2.
1 millibar (mbar) = 100 N/m2.
1 mm kvikasilfurs við staðalskilyrði (mmHg) = 1,333 22 mbar
= 133,322 N/m2.
1 þumlungur kvikasilfurs við staðalskilyrði (inHg) = 33,8638 mbar
= 3386,38 N/m2.
1 kílógramm(kraftur) á fersentimetra (kg/cm2) = 14,2 pund(kraftar)
á ferþumlung (lb/in2) = 0,980 665 bar = 98066,5 N/m2.
1 pund(kraftur) á ferþumlung (lb/in2, psi) = 0,0703 kg/cm2 =
6894,8 N/m2.
1 loftþyngd (staðalgildi) = 1,013 25 bar = 1013,25 mbar =
760 mmHg = 29,92 inHg = 1,033 23 kg/cm2 = 14,7 lb/in2
= 101325 N/m2.
Vinna, orka, varmi.
1 júl (joule, J) = vinnan sem krafturinn 1 njúton framkvæmir þegar
átakspunkturinn hreyfist 1 metra í kraftáttina. J = N • m.
1 erg = ÍQ-1 júl.
1 kílóvattstund (kWh) = 3,6 • 106 júl.
1 kílógramm(kraft)-metri = 9,806 65 júl.
1 bresk varmaeining (B.T.U.) = 1055 júl.
1 elektrónuvolt (eV) = 1,60 • 1(H9 júl.
1 kg efnis umbreytt í orku = 9 • 1016 júl.
1 megatonn af TNT (sprengiorkan) = 4,2 • 1015 júl.
1 kaloría (varmaeining, ,,hitaeining“) = 4,2 júl. Kalorían er sú
varmaorka sem þarf til að hita 1 gramm af vatni um 1 °C. Orku-
magnið fer að örlitlu leyti eftir hitastigi vatnsins, og er því
kalorían ekki nákvæmlega skilgreind nema hitastigið sé til-
greint. Nafnið kaloría hefur stundum verið notað í merkingunni
kílókaloría (1000 kaloríur), einkum í sambandi við varmagildi
fæðutegunda og varmaþörf bygginga.
Eðlisvarmi vatns við 15°C = 4185,5 (J/kg)/°C = 1,0 (kaloría/g)/°C.
(56)