Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1981, Blaðsíða 68
'
í norð-norðvestri frá Reykjavík þegar dimmir að kvöldi. Venus verður
þá einnig í svipaðri átt, miklu þjartari, en ennþá nær sól og lægra á
lofti. Hinn 27. maí er Merkúríus lengst í austur frá sól og jafnframt
pólhverfur (sest ekki). Hann verður þá í 10° hæð í norðvestri frá Reykja-
vík við sólsetur. Á þeirri stundu er Venus í 5° hæð yfir sjóndeildarhring,
helmingi nær sól en Merkúríus.
Júní
Venus er kvöldstjarna, lágt á lofti í norðvestri frá Reykjavík við sól- f
setur. Þótt hún sé að fjarlægjast sól, lækkar hún heldur á lofti. Hæð
hennar við sólsetur er 5° í byrjun mánaðarins en 3° í mánaðarlok.
Júli
Venus er kvöldstjama, en mjög lágt á lofti, aðeins 2-3° yfir sjón-
deildarhring í vest-norðvestri frá Reykjavík við sólsetur. Undir mán-
aðarlok fer Mars að sýna sig sem morgunstjama lágt í norðaustri í
birtingu, en hann er daufur og lítt áberandi.
Ágúst
Mars er morgunstjarna á austurhimni. Hann er í tvíburamerki, en
reikar austur á bóginn og er kominn í krabbamerki í mánaðarlok.
Hefur hann þá náð 21° hæð yfir sjóndeildarhring í birtingu í Reykjavik.
Mars er með daufasta móti, lítið bjartari en pólstjarnan, en rauðleitari.
Venus er kvöldstjarna og fjarlægist sól, en afstaða hennar til sólar er
óhagstæð, svo að hún er mjög lágt á lofti, aðeins 1-2° yfir sjóndeildar-
hring í vestri við sólsetur í Reykjavík.
September
Mars er morgunstjarna á austurhimni og hækkar stöðugt á lofti.
Hann er í krabbamerki, og þótt hann sé með daufasta móti, ber hann
af öðrum stjörnum í merkinu, því að þar er engar bjartar stjörnur að
finna.
Október
Mars er morgunstjama, kemur upp rétt eftir miðnætti og er kominn
hátt á loft í birtingu. Hann er í ljónsmerki á austurleið og fer rétt norðan
við stjörnuna Regúlus (19. okt.). Hann er óvenju daufur, en einkennist
af rauða litnum. Júpíter og Satúmus eru nokkru austar, í meyjarmerki.
Þeir ganga bak við sól í mánuðinum og fara að sjást sem morgun-
stjörnur á austurhimni í mánaðarlok, en eru þó lágt á lofti, einkanlega
Júpíter, sem er um 8° nær sólu. Merkúríus, sem þá er að nálgast útstöðu
vestan við sól, verður nokkurn veginn mitt á milli þeirra, bjartari en
Satúrnus, en daufari en Júpíter.
Nóvember
Af reikistjörnunum er Venus eina kvöldstjarnan, en þótt hún sé langt
í austur frá sól, er hún svo sunnarlega á himinhvolfinu að hún kemur
(66)