Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1981, Page 123
orðurlandameistari í þriðja sinn, hlaut 16‘/2 vinning af 20
nögulegum. í árslok tóku íslendingar þátt í mörgum skák-
Jttótum erlendis. Eftir þátttöku í alþjóðlegu móti í Stokk-
_° mi varð Haukur Angantýsson alþjóðlegur meistari. —
mar S. Einarsson var endurkjörinn forseti Skáksambands
s|ands. Skákskóli unglinga var starfræktur á Kirkjubæjar-
,austri um vorið. Skáksamband Islands ákvað að koma á fót
skáksögusafni.
Skiðaiþrótt. Nokkrir Islendingar tóku þátt í skíðamótum
1 Evrópu fyrstu mánuði ársins. Skíðamót barna 7—12 ára
(Andrésar Andarmót) var haldið í Hlíðarfjalli í marz. Is-
(ýndsmót unglinga var haldið á Siglufirði í marz. Skíðamót
Elands var haldið á Isafirði í apríl. Haukur Sigurðsson fékk
^ern gullverðlaun á mótinu og Gottlieb Konráðsson tvenn
gullverðlaun, en þeir eru báðir frá Ólafsfirði. I kvenna-
kePpninni urðu systurnar Steinunn og Ása Hrönn Sæ-
mundsdætur frá Reykjavík fremstar. Á mótinu var Sæ-
mundur Óskarsson kjörinn forseti Skíðasambands Islands.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri var viðurkennt sem
a,þjóðlegt skíðamótasvæði. Nýjar skíðalyftur voru teknar í
n°tkun, t.d. í Bláfjöllum við Reykjavík og í Ólafsfirði, og
uunið var að lyftum í Hlíðarfjalli og í Oddsskarði sunnan-
verðu.
Skotfimi. I febrúar var stofnað Skotsamband Islands, og
Var Axel Sölvason formaður þess. Islandsmót var haldið í
Eeykjavík í júní, og varð Jóhannes Jóhannesson Islands-
meistari.
Sund. Meistaramót Islands í sundi innanhúss var haldið í
marz, og voru þar sett nokkur ný íslandsmet. Islenzkt sund-
fólk tók þátt í alþjóðlegu sundmóti unglinga í Luxemburg í
apríl. Þar varð Margrét Sigurðardóttir fjórða í 100 metra
skriðsundi, en hundrað þátttakendur voru í þeirri grein.
^orðurkollumót í sundi fór fram í Bodö í Noregi í apríl.
ls,endingar urðu þar í neðsta sæti, en hlutu ein gullverðlaun,
°8 hlaut þau Hugi Harðarson frá Selfossi í 200 metra bak-
Sundi. Um mánaðamótin júní—júlí tók íslenzka sundlands-
'iðið þátt í átta landa keppni í Belgíu og í þriggja landa
(121)