Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 7
DV Helgarblað
Quarashi í spennitreyju
Þær fréttir berast úr Útvarpshús-
inu við Efstaleiti að meðlimir sveit-
arinnar Quarahsi æði þar um ganga
til alls líklegir en þó heftir. „Við erum
hreinlega viti okkar íjær,“ segir Sölvi
Blöndal trommuleikari. „Einn er þó
sýnu verr á sig kominn en við hinir
og þetta góða fólk í sjónvarpinu
ákvað bara að grípa til sinna ráða.
Ómar er mjög slæmur svona út á við
en við Tiny erum meira slæmir inni í
okkur. Þess vegna þurfti ekki treyj-
una á okkar, sjónvarpsfólki tókst að
tala okkur tvo til. Álagið á Quarashi
hefur verið mjög mikið undanfarið
og ekki bætir jólaþunglyndið úr
skák. Þetta var hreinlega lokaúrræð-
ið fyrir hann Ómar.
En grínlaust, við komum fram í
Mósaík á þriðjudaginn og flytjum
Straight Jacket. Mósaíkliðið er hæfi-
leikafólk og var tilbúið að leika sér
með okkur, bjó til myndband með
laginu og það verður sem sagt
frumflutt í þættinum. Þannig að
fréttin um Quarashi í spennitreyju á
sér ótrúlega eðlilegar og heilbrigðar
skýringar," segir Sölvi Blöndal og
glottir við tönn.
Quarashi í spennitreyju
Menningarvitamir í
Mósaik náðu að koma
böndum á rappdrengina.
Spaugstofan Þessirvinsælu,
elskuðu og dáðu spaugarar verða |
„portúgalskir" í sínu gríniíkvöld.
Spaugstofan
á suðrænum
nótum
Spaugstofan er á dagskrá Sjónvarps í kvöld
aö venju en þátturinn veröur um margt
sérstæöur. Þrátt fyrir skammdegi á Islandi
veröa Spaugstofumenn I sól og sumaryl.
Áhorfendur fá sem sagt að berja augum
afrakstur feröar þeirra frá I haust þegar þeir
fóru til Portúgals og tóku upp efni þar. Er
þetta samkvæmt samningum en allt er nú
gert til aö hliöra til fyrir jóladagskrá. Þáttur-
inn i kvöld og sá næsti byggja aö mestu á
„portúgölsku “ gríni Spaugstofumanna. Þeir
Spaugstofumenn nota tækifærið og ieggja
lokahönd á Aramótaskaupiö á meðan.
Björn, þu ert
engiim Ronny
Reagan!
Björn Bjarnason dómsmálaráöherra heldur
sínu striki ódeigur á vefsíðu sinni þrátt fyrir
niövísur Kristjáns Hreinssonar og aörar úr-
töluraddir kommatitta. Ronald Reagan
hefur löngum verið ein afmörgum hetjum
Björns og hann vitnarí fleyga gamansemi
hans þess efnis aö.fjárlagahallinn væri
orðinn nógu stór til aö sjá um sig sjálfur!
Reagan haföi meiri áhyggjur afþeim, sem
ríkisvaldið væri aö sliga með ofþungum
sköttum, enda lækkaöi hann skatta og
lagði grunn að góöu hagvaxtarskeiði í
Bandaríkjunum. Hið sama hefur Ceorge W.
Bush veriö að gera í forsetatlð sinni.“
Pólitiskri söguþekkingu Björns er viöbrugö-
ið, auk gamanseminnar. Hún á því kannski
viö nú setning hliöstæð þeirri sem Dan
Quayle fékk eitt sinn að
heyra frá Lloyd Bent- 11
sen:„Senator, you are
noJackKennedy.’- f
Dómsmálaráð-
herra,þú erteng-
inn RonnyReagan!
Björn Bjarnason
Bregður á leik á
heimasíðu sinni líkt
og fyrri daginn.
Með viðtali við
Jón Gústafsson
sem birfist í DV
16. október
síðastliðinn var
þessi ljósmynd.
Við útlitshönnun
féll út merking
myndarinnar en hana tók Friðrik
Kingo Andersen.
Víkinga band
Hand smíðað silfur og gull band
925 sterling silfur kr. 44.900,-
Einnig fáanlegt í 14 kt gulli
Hermann Jónsson Úrsm(ðameistari
Veltusundi 3, við Ingólfstorg s: 551 3014
okkur.
Vandaðir slökunarstólar
með leðuráklæði og
skemli
Verð áður kr. 73.000.
Italsofa
Bycast leður 3+1+1
Verð kr. 255.000.-
2ja ára ábyrgð
nfeei
Ital sofa
Sófasett 3+1+1 með slitsterku
áklæði sem auðvelt er að þrífa.
Verð kr. 179.000.-
Italsofa
Sófasett 3+1+1 með slitsterku
áklæði sem auðvelt er að þrífa.
Verð kr. 171.000.-
Frábært úrval af ítölskum
leðursófasettum.
Gæði og gott verð!
Jólagjafirnar
Blaðagrindur
m/glerborði kr. 15.000.-
Fatahengi kr. 9.900.-
NvlrnmiA
Hornsófi með slitsterku áklæði sem
auðvelt er að þrífa. Verð kr. 155.000.-
V______________________________________________
Nýkomin sending af
glæsilegum
C0 húsqöqn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375
Opið virka daga 10-18 - Laugard. 11-18 - Sunnud. 13-16
__________________________________________________J
hornsófum